Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Side 35
Konudagurinn 16. febrúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
Heilyndi.is
Gjöf handa þeim
sem þér þykir vænt um
Ég hef velt fyrir mér lífinu og til-verunni lengi og alveg frá barns-aldri var ég að nudda foreldra
mína og þess háttar. Ungur varð ég
slæmur í baki og ekki hjálpaði til að
ég hóf snemma störf sem bifvéla-
virki og hef starfað lengi í því fagi. Ég
man fyrst eftir verulegum verkjum 18
ára gamall. Ég prófaði margt en fékk
aldrei bót meina minna nema bara
tímabundið – allt þar til ég kynntist
meðferðinni KCR (Kinetic Chain Rel-
ease), sem er eins og rauður þráður
í gegnum starf mitt núna. skotinn
Hugh Gilbert setti þetta saman og
þetta er afrakstur af hans ævistarfi
hingað til. skurðlæknar í skotlandi
eru farnir að segja fólki að fara í KCR
áður en það tekur ákvörðun um að
fara í aðgerð.“
Þetta segir skúli sigurðsson, mað-
urinn á bak við meðferðarstöðina
Heilyndi.is. skúli býður upp á verkja-
meðferð, fyrirbyggjandi verkjameð-
ferð og andlegt viðnám við streitu.
„KCR er hannað til að koma líkaman-
um í jafnvægi og laga líkamsstöðuna.
Meiðsli eða röng líkamsstaða til langs
tíma skapar vana í því hvernig vöðva-
rnir halda líkamsstöðunni sem veldur
því að háls, hryggur og mjaðmagrind
fara úr jafnvægi. Ákveðin röð af
teygjum og hreyfingum vinnur gegn
þessu og stuðlar að því að líkaminn
komist aftur í sitt náttúrulega jafn-
vægi.
CTR (Connective Tissue Release) er
síðan framhald af KCR. „Þá erum við að
fara dýpra inn í bandvefinn. ef þú hefur
lent í áfalli – það getur verið andlegt
áfall eða slys – þá er bandvefurinn það
fyrsta sem mætir á staðinn og læsir
líkamanum. Það geta verið 20 ár síðan
áfallið átti sér stað en bandvefurinn er
ekki enn búinn að fatta að hættan er
liðin hjá. spennan viðhelst í líkamanum
en við leysum úr flækjunni með einföld-
um hætti,“ segir skúli.
Ekki hægt að aðskilja hið líkamlega
og hið andlega
KCR og CTR eru líkamlegar með-
ferðir, nokkuð sem skúli kallar því
skemmtilega nafni „mannréttingar“.
en oft verða líkamlegar og andlegar
meinsemdir ekki aðskildar og skúli
býður líka upp á meðferðir þar sem
unnið er gegn streitu með því að rjúfa
viðgang vanahugsunar: „Því sem við
getum lagað líkamlega getur hug-
urinn breytt á hálfri mínútu. ef þú
ferð í ræktina, búinn að vera stress-
aður allan daginn, nærð svo úr þér
stressinu og allt í þessu fína lagi, þá
færðu kannski óvænt símtal sem
setur allt á hvolf og þú uppgötvar að
þú ert orðinn alveg jafn stressaður
og fyrir ræktina. spennan orðin alveg
jafn mikil í líkamanum. Það sem ég
reyni að kenna fólki er hvernig við
getum talað við líkamann, það er
það sem ég kalla „ friðarumleitanir“.
Hitt, KCR og CTR, er það sem ég
kalla mannréttingar, það er líkamlegi
þátturinn. Hið verklega.
Allt sem fram fer í huganum reynir
líkaminn að vera tilbúinn undir. ef þú
ert stressaður, reiður og hræddur,
þá skynjar líkaminn bara að þú andar
grunnt og mikið er um að vera, hann
setur líkamann á viðbúnaðarstig.
Bandvefurinn strekkist til að hækka
blóðþrýstinginn. Ónæmiskerfið og
þau kerfi sem viðhalda okkur, eru sett
til hliðar á meðan við erum að undir-
búa okkur fyrir hugsanlega baráttu.
Viðbúnaðarstigið er auðvitað mishátt
eftir aðstæðum en mörg okkar búum
stöðugt á þessu viðbúnaðarstigi. Þess
vegna verðum við útbrunnin og þreytt.“
Hægt að ná miklum árangri á stutt-
um tíma
„Til að ná góðum árangri þarf fólk ekki
að koma mjög oft. eftir því sem þú
lærir betur á sjálfan þig og lærir að
láta lífið ekki yfirtaka þig, því sjaldn-
ar þarftu að koma. Ég leiði fólki fyrir
sjónir að það er sinn eigin læknir,“
segir skúli. Hann nefnir til sögunnar
tvær meðferðir í viðbót sem eru í boði
hjá honum:
„Jóga þerapía – þú sest eða liggur
en ég hreyfi útlimina, sveigi og teigi,
þar vinnum við mjög djúpt. Allar
tilfinningar eru í líkamanum, ef þú
ert kvíðinn þá er tilfinningin einhvers
staðar í líkamanum.
Jóga nidra, djúpslökun, þar sem
hægt er að beita ásetningi. Við förum
með þér í bilið milli svefns og vöku en
þar er hægt að breyta auðveldlega
vana sem þú ert fastur í.“
Ljósmyndari á nuddbekkinn
ljósmyndarinn einar Ragnar Har-
aldsson, sem tekur myndirnar við
þessa grein, lagðist á bekkinn hjá
skúla og lætur vel af. „Það vakti
athygli mína að hann fer beint í
meinið. Ég er slæmur í mjóbakinu
eftir gömul meiðsli og hann fór beint
á veika staðinn. Þetta var dálítið eins
og vera bæði hjá sjúkraþjálfara og
nuddara. Hann nuddar mann bara
í gegnum fötin og mér fannst þetta
mjög markvisst og leið vel á eftir,“
segir einar.
Gjöf fyrir þá sem þér þykir
vænt um
Á vefsíðunni heilyndi.is eru gagnlegar
og skýrar upplýsingar um þjónustuna.
Þar er líka hægt að bóka tíma og
kaupa gjafabréf. skúli telur þetta
vera góða gjöf á konudaginn og við
önnur tækifæri:
„Þetta er gjöf handa þeim sem þér
þykir vænt um – tækifærisgjöf sem
endist lengi. einn tími í KCR og nudd,
tekur aðeins 80 mínútur, en áhrifin
eru langvarandi. Ég fæ fólk sem hefur
verið með verki í mörg ár, það kemur
bara einu sinni og þarf ekki að koma
aftur fyrr en eftir tvö ár. en nauðsyn-
leg forsenda árangurs er að fólk sé
móttækilegt og jákvætt gagnvart
meðferðinni – vilji breytingu,“ segir
skúli að lokum.
Sjá umsagnir um starf Skúla á
Facebook-síðunni www.facebook.
com/heilyndi/.