Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2018, Qupperneq 38
Konudagurinn 16. febrúar 2018KYNNINGARBLAÐ „Íslenskar konur eru skvísur fram eftir öllum aldri“ Stíll, Síðumúla 34 Við erum með föt fyrir konur frá aldrinum um 25 ára og alveg upp úr. Það er nefnilega svo merkilegt að íslenskar konur eru skvísur fram eftir öllum aldri, þær verða mjög seint gamlar. Hingað kemur ein reglulega, sem er áttræð, og fatar sig upp,“ segir Guðný Kristín Erlingsdóttir, eigandi kvenfata- verslunarinnar Stíll, sem hún hefur rekið í 17 ár. Ákveðin þáttaskil urðu í rekstrinum þegar Guðný flutti versl- unina af laugavegi og upp í Síðu- múla: „Við erum í vissum skilningi frum- byggjar í þessari bylgju nýrra versl- ana hér síðustu misserin, við komum hingað með þeim fyrstu og margar hafa fylgt í kjölfarið. Okkur líkar rosalega vel hérna og mér finnst þetta vera orðinn nýi miðbærinn. Hér rölta oft um vinkvennahópar, ganga Síðumúlann og Ármúlann og kíkja í verslanir. Eftir að við fluttum hingað gátum við líka stækkað verslunina og aukið úrvalið, sem var mjög jákvætt,“ segir Guðný. Stíll leggur áherslu á gæðavörur á hagstæðu verði. „Við svona rétt löfum í meðalverði, erum ekki með ódýrustu fötin í bænum en erum langt fyrir neðan þau dýrustu. Við leggjum mikla áherslu á gæðin og ég vil fullyrða að hér fá konur mjög góð föt á sann- gjörnu verði. Það hefur líka hjálpað okkur að föt hafa almennt lækkað í verði, líka í innkaupum, og 15% tolla- niðurfelling á innfluttum fatnaði sem átti sér stað fyrir tveimur árum hefur skilað sér beint inn í verðlagið hjá okkur.“ Stíll býður upp á klassísk föt sem henta konum á öllum aldri, í bland við tískusveiflur: „Við erum mikið úrval af bux- um og kjólum í klassískum sniðum en síðan líka flíkur á borð við leggings- buxur og rifnar gallabuxur. Við erum líka með vítt stærðaval, frá 36 upp í 46, en ekki beinlínis yfirstærðir.“ Stíll leggur áherslu á góða þjón- ustu og ráðgjöf, léttan anda og að viðskiptavinum líði vel í versluninni. að sögn Guðnýjar er mikil vinna að reka góða fataverslun og þetta sé bara starf fyrir þá sem vilja vera í því af lífi og sál: „Þó að ég hafi verið í þessum rekstri í 17 ár er ég alltaf jafnt spennt þegar það koma nýjar vörusendingar. Þetta er svo skemmtilegt.“ Gjafabréf í Stíl er klárlega góð konudagsgjöf en Guðný bendir eigin- mönnum líka á að skoða Facebook- síðuna www.facebook.com/stillfas- hion.is/ því þar birta konur oft góðar ábendingar til eiginmanna sinnar um gjafir. Stíll er til húsa að Síðumúla 34 og er opin virka daga frá kl. 11 til 18 og laugardaga frá kl 11 til 16. Símanúmer er 551-4884. Hundurinn Hódor (eftir persónu úr Game of thrones) er einstakur karakter og setur skemmtilegan svip á verslunina. mynd Einar Ragnar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.