Fréttablaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 63
Staða leikskólastjóra við leikskólann Sæborg
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Sæborg lausa til umsóknar.
Sæborg er fjögurra deilda leikskóli við Starhaga í Reykjavík. Leikskólinn stendur á fallegum stað við fjöruna með útsýni yfir Reykja-
nesið og að Bessastöðum. Unnið er í anda Reggio Emilia og mikil áhersla er lögð á skráningar, skapandi starf og opinn efnivið.
Unnið er með lýðræði í leikskólastarfinu þar sem börnin tjá skoðanir sínar, geta valið og hafnað og haft áhrif á eigin þekkingaröflun.
Lögð er áhersla á hlutverk kennarans við að skrá upplifanir og hugmyndir barnanna og gera þær sýnilegar. Deildir eru aldursskiptar
og starfsfólks flyst milli deilda með börnunum að hausti. Skólaþróun er stór þáttur í starfi leikskólans en Sæborg hefur 6 sinnum
fengið hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs og hefur tekið virkan þátt í Barnamenningarhátíð undanfarin ár.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt
leikskólastarf í Sæborg.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari og greinargerð um framtíðarsýn
umsækjanda á starf í leikskólanum.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. júlí 2018. Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2018.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda
leikskóla. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir, skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskólamála, sími 411 1111.
Netfang: ingibjorg.m.gunnlaugsdottir@reykjavik.is
Meginhlutverk leikskólastjóra er að:
• Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og
stefnu Reykjavíkurborgar.
• Bera ábyrgð á daglegu starfi í leikskólanum.
• Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra
og starfsmenn.
• Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans
og umbótaáætlunum.
• Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
• Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla
á leikskólastigi.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
Ánægðir viðskiptavinir
eru okkar besta auglýsing
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu,
getu og reynslu starfsmanna.
Hver einstök ráðning er mikilvæg
fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis
og viðkomandi einstaklings að vel
takist til.
RÁÐNINGAR
ATVINNUAUGLÝSINGAR 19 L AU G A R DAG U R 1 0 . M A R S 2 0 1 8
1
0
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
A
-0
1
B
8
1
F
2
A
-0
0
7
C
1
F
2
9
-F
F
4
0
1
F
2
9
-F
E
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
0
s
_
9
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K