Fréttablaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 30
Við mælum okkur mót við Brúarskólanema í verslun Bauhaus rétt við Úlfarsfellið. Davíð Thor Morgan er fjórtán ára, en
alveg að verða fimmtán. Hann
er einn nemenda í grunnskólum
Reykjavíkur sem taka þátt í verkefn-
inu Atvinnutengt nám. Verkefnið er
ætlað nemendum sem hafa dregist
verulega aftur úr í námi og líður
ekki vel í hefðbundnum grunnskóla.
Nemendurnir sem taka þátt í því eru
launþegar hjá Reykjavíkurborg en
starfa víðsvegar í einkafyrirtækjum
og opinberum stofnunum um borg-
ina. Þeir sem eru í 9. bekk frá rúmar
600 krónur á tímann en þeir sem
eru í 10. bekk fá rúmar 800 krónur.
„Ég bara er ekki viss, kannski
svona þrjá til fjóra mánuði. Ég er
bara hérna á miðvikudögum frá
9-13,“ segir Davíð þegar hann er
spurður að því hvað hann sé búinn
að vera lengi hjá Bauhaus.
Davíð segist ekki kunna sérlega
vel við sig í Brúarskóla. „Það eru allt
of strangar reglur þar,“ segir hann.
„Ég hef áhuga á að gera eitthvað,
að vinna með höndunum. Þetta er
góður staður fyrir það,“ segir Davíð
um vinnuna í Bauhaus. Hann segist
sinna þeim verkefnum sem lögð
eru fyrir hann. „Stundum er ég að
vörumerkja og eitthvað. Svo er ég
að pakka inn og stundum er ég ekki
að gera neitt,“ bætir hann við. Davíð
segir starfsfólkið í Bauhaus taka sér
mjög vel. „Það er góður andi hérna,“
segir hann og segist vel geta hugsað
sér að vinna í Bauhaus þegar hann
er útskrifaður úr 10. bekk í Brúar-
skóla, eða fara í framhaldsskóla.
Arna Hrönn Aradóttir, starfs-
maður Þjónustumiðstöðvar Árbæj-
ar og Grafarholts, hefur umsjón
með Atvinnutengdu námi af hálfu
Reykjavíkurborgar. Hún heldur utan
um skráningu, sér til þess að nem-
endur fái greitt fyrir sína vinnu og er
tengiliður við grunnskóla og vinnu-
staði nemenda.
Arna segir að ein rannsókn hafi
verið gerð á verkefninu, árið 2013.
Þá var könnuð staðan á krökkum
sem höfðu lokið námi í grunn-
skóla og höfðu gengið í gegnum
verkefnið. Ungmennin voru spurð
í rannsókninni hvernig þau hefðu
upplifað verkefnið og hver staða
þeirra væri þegar rannsóknin var
gerð. „Við vildum vita hvernig
þeim fannst þetta verkefni, hvern-
ig þeim leið eftir að þau byrjuðu í
verkefninu og hvernig mætingin,
líðanin og námsárangurinn hefði
batnað,“ segir Arna og bætir við
að niðurstaðan hafi orðið sú að
nemendum hefði liðið betur eftir
að þau byrjuðu. Úrtakið í rann-
sókninni var 109 nemendur og af
þeim tókst að ná í 84. Niðurstaðan
var að 60 prósent nemenda sem
svöruðu voru í námi, einhverjir
voru í vinnu og enn aðrir að gera
eitthvað annað. Einungis einn eða
tveir höfðu ekkert fyrir stafni og
fengu þeir viðeigandi aðstoð. „Það
er mjög ánægjulegt að þau fóru öll
að gera eitthvað tengt því sem þau
fengu að taka þátt í þegar þau voru
í atvinnutengda náminu. Þau voru
að stefna á kokkanám, þau voru að
stefna á leikskólakennara, á háriðn,
einhver í bifvélavirkjun og einhver
í málmiðn. Öll voru þau að stefna á
eitthvað og það er auðvitað það sem
við viljum,“ segir Arna.
Hún segir að það sé alltaf grunn-
skólans að meta það hvort barn
þurfi á verkefninu að halda og skól-
inn geti þá mælt með þessu úrræði.
„Barnið þarf að uppfylla ákveðin
atriði þannig að skólinn fari að
mæla með þessu úrræði.“ Arna segir
að eftirspurn eftir þátttöku í verk-
efninu sé mjög mikil. Þess vegna sé
mjög mikilvægt að atvinnurekendur
sýni því áhuga og séu fúsir til að taka
nemendur að sér.
Þeir atvinnurekendur sem Frétta-
blaðið hefur rætt við eru ánægðir
með hvernig til hefur tekist og
margir þeirra fá nemendur til sín ár
Tækifærin finnast
víðar en í bóknámi
Það er mikilvægt að unglingar sem þrífast illa í hefðbundnu bók-
námi finni sér stefnu í lífinu. Mörg reykvísk börn fá mikla hjálp í
gegnum verkefnið Atvinnutengt nám. Þar fá þau aðstoð frá eldra og
reyndara fólki við að stíga sín fyrstu skref í nám eða á vinnumarkað.
Hinn fjórtán ára gamli Davíð Thor Morgan segir að sér finnist gaman að vinna með höndunum og því henti starfið í Bauhaus honum vel. FréTTaBlaðið/VilHelM
Theodór Páll Theódórsson, til vinstri,
segir að eina skemmtilega fagið í
grunnskóla hafi verið heimilisfræði.
MynD/Sigurjón ragnar
eftir ár. Einn þeirra er Ásgeir Bach-
mann, framkvæmdastjóri Bauhaus.
„Þegar vel tekst til þá sér maður
ánægða unga einstaklinga sem öðl-
ast sjálfstraust og vilja til að leggja
eitthvað af mörkum. Oft er það
þannig að unga fólkinu sem nær
ekki að sinna skólanum finnst það
vera út undan gagnvart jafningjum
sínum og jafnöldrum. Það kemur
oft ekki með fullt sjálfstraust. Um
leið og ungmennin fara að vinna
með fullorðnu fólki sem hjálpar því
áleiðis með fyrstu skrefin og þau fá
síðan verkefni við hæfi þá sjá þau að
þau geta þetta líka. Þá kemur trúin
og það skiptir miklu máli,“ segir
Ásgeir.
Hann segir að Bauhaus hafi tekið
✿ Fjöldi nemenda í atvinnutengdu námi
100
80
60
40
20
0
89
67
70
67
75
72
85
20
11
-20
12
20
12
-20
13
20
13
-20
14
20
14
-20
15
20
15
-20
16
20
16
-20
17
20
17
-20
18
að sér einn til tvo nemendur á hverju
einasta ári. Ásgeir starfaði hjá Byko
áður en hann fór til Bauhaus og þar
tók hann líka á móti nemendum í
tengslum við þetta verkefni. Hann
segir flesta einstaklinga hafa komið
vel út hjá sér. „En þá skiptir líka máli
að foreldrarnir séu jákvæðir fyrir
þessu, að börnin fái stuðning fyrir
þetta heima fyrir,“ segir Ásgeir og
viðurkennir að það sé allur gangur
á því hvort börnin fái þennan mikil-
væga stuðning heima fyrir.
Ásgeir segir starfsmenn vera mjög
jákvæða gagnvart verkefninu. Hvort
sem það er hér eða í Byko þá hafa
starfsmenn aldrei tekið neikvætt í
þetta. Þeir hafa bara tekið mjög vel
utan um krakkana og hjálpað þeim
áleiðis. Það er algjörlega til fyrir-
myndar.“
Hann segir dæmi um að börn
komi síðar í launuð störf hjá Bau-
haus eftir að hafa verið þar í
atvinnutengdu námi. „Já, já. Það
eru alveg dæmi um það. Þá eru það
yfirleitt helgarstörf með skóla og
þvíumlíkt.“
Mörgum þeim sem hafa farið í
atvinnutengt nám hefur farnast vel
á eftir. Einn þeirra er Theódór Páll
Theódórsson kokkur, sem ólst upp
í Grafarvogi og gekk í Engjaskóla.
Hann er með lesblindu og var í sér-
deildarbekk í grunnskóla.
Hann segir að bóklegt nám hafi
aldrei höfðað til sín. „Eina fagið
sem mér fannst skemmtilegt í
grunnskóla var heimilisfræði. Eftir
það langaði mig alltaf til að vinna
í eldhúsi og verða kokkur,“ segir
Theódór.
Hann fékk pláss á Grand Hót-
eli tvisvar í viku í atvinnutengda
náminu. „Ég var á þriðjudögum í
eldhúsinu. Þá var ég að hjálpa til
með hópa og með undirbúning. Á
fimmtudögum var ég meira í bak-
aríinu með bökurum. Að undirbúa
brauðbakstur og svona,“ segir hann.
Um leið og Theódór Páll útskrif-
aðist úr grunnskóla fór hann með
ferilskrá og labbaði inn á hvern
einasta veitingastað sem hann fann
til að leita að vinnu. Hann var um
stutta stund á Orange, en hætti fljót-
lega þar. Eftir það gekk atvinnuleit-
in ekki eins og best varð á kosið fyrr
en Theodór Páll talaði við heimilis-
fræðikennarann sinn úr grunnskóla
sem kom honum að á samning hjá
La Primavera. Síðar fylgdi hann eig-
anda La Primavera yfir í Hörpuna.
Hann útskrifaðist sem kokkur árið
2013. Þá sótti hann um starf á Hótel
Reynihlíð, þar sem hann var yfir-
kokkur í tvö og hálft ár. „Að vera
tvítugur og yfirkokkur úti á landi,
það var svolítið stórt stökk,“ segir
hann. Eftir starfið á Hótel Reynihlíð
hefur Theodór Páll unnið á Húsavík,
Egilsstöðum og víðar. Nú er hann í
afleysingum hjá HB Granda og ætlar
svo að vera í veiðihúsi við Blöndu í
sumar.
Theódór Páll lætur mjög vel af
atvinnutengda náminu á grunn-
skólaárunum. „Ég hef séð fullt af
fólki sem er í skóla án þess að bók-
nám henti því og ég veit um fullt
af fólki sem hefur flosnað upp frá
skóla af því að bóklegi parturinn er
erfiður,“ segir hann.
ég veit um fullt af
fólki sem hefur flosn-
að upp úr skóla af því
að bóklegi parturinn
er erfiður.
Jón Hákon
Halldórsson
jonhakon@frettabladid.is
1 0 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r30 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
1
0
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
9
-9
E
F
8
1
F
2
9
-9
D
B
C
1
F
2
9
-9
C
8
0
1
F
2
9
-9
B
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
0
s
_
9
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K