Fréttablaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 28
hefur þetta haldið,“ segir hann.
Þegar Dagný var á förum út í
háskólann í Flórída fyrir rúmum sex
árum kveðst hún hafa verið spurð:
„Bíddu, ætlið þið ekki að hætta
saman áður en þú ferð?“ „Nei,“ svar-
aði ég. „Ég hætti bara með honum á
Skype ef þess þarf.““
En voru þau aldrei hrædd um að
hitt héldi framhjá? Dagný er fyrri
til svars. „Ég held við séum bæði
svo opin að við myndum segja hinu
upp áður. Ef ég hefði orðið skotin í
strák úti hefði ég bara hringt og sagt:
„Ómar, þetta er búið.“ Ég hef alveg
verið spurð: „Varstu aldrei með ein-
hverjum öðrum? En eitthvað smá?“
Nei, er svarið.“
Ómar kveðst ekki beint hafa óttast
framhjáhald af hennar hálfu. „Auð-
vitað poppaði stundum upp – hvað
ef? Dagný á rosalega marga karlkyns
vini því það eru aðallega karlmenn
kringum fótboltann þarna úti. Eina
kvenfólkið sem hún umgekkst var
liðsfélagarnir.“ Hún tekur undir
það. „En ég bara ólst mikið upp með
strákum og í hópverkefnum í skólum
enda ég einhvern veginn alltaf á
að vera með strákum. Enda spurði
Ómar stundum: „Eru engar stelpur í
þessum áföngum með þér?“ Jú, þær
voru þarna en mér fannst ég ekki eiga
neina samleið með þeim.“
Ómar segir rökræður yfir hafið
stundum hafa tekið á. „Það getur
bara verið drulluerfitt ef það koma
upp vandamál og við erum ekki sam-
mála um eitthvað að geta ekki verið
saman að rífast um það, heldur hvort
í sinni heimsálfu.“ „Ég gat bara skellt
á,“ skýtur Dagný inn í. „Já, þá gat ég
ekki hlaupið á eftir henni og útskýrt
hlutina heldur þurfti að hringja og
hringja. Og mér fannst líka erfitt
þegar vel gekk hjá henni að geta ekki
verið á leiknum og faðmað hana á
eftir og fagnað með henni,“ segir
Ómar sem kveðst alltaf hafa reynt að
fylgjast með þegar hún var að spila,
þó hann þyrfti að vaka á nóttunni til
þess.
Þau segjast hafa gengið í gegnum
samskiptabyltingu í tölvunum. „Fyrst
var eitthvert forrit sem hét Viber,
eftir það kom Skype, svo Imessage,
síðan Facetime, við fylgdum bara
þróuninni,“ lýsir Ómar og Dagný
tekur við: „Stundum var þetta erfitt
út af tímamismuninum. Ég var upp-
tekin þegar Ómar var laus og hann
þegar ég var laus. Það gátu alveg liðið
þrír dagar þannig að við komumst
ekki í símann en þá gátum við alltaf
sent SMS. Við reyndum líka að láta
ekki líða meira en þrjá mánuði milli
þess sem við hittumst. Ef það dróst
lengur varð tíminn alltof lengi að
líða. Mér fannst það erfiðast.“
Urðu vinir fyrst
Dagný kveðst alltaf hafa komið heim
um jól og auðvitað líka til að spila
með landsliðinu og þá hafi Ómar
sótt hana á völlinn og verið með
henni allan tímann nema leikdag og
nóttina fyrir hann. „Ég gat samt ekki
bara eytt tíma með honum, ég varð
líka að rækta tengslin við fjölskyldu
mína og hans, vera með landsliðinu
og stundum hitta aðra vini mína. En
við vorum eins mikið saman og hægt
var. Ómar lenti samt oft í því að vera
bara með – hálfgert úti í horni.“
„Það var kannski stundum pirr-
andi meðan það leið en svo þegar
maður hugsar aftur í tímann þá situr
það ekkert í mér, enda er ég ekkert
eini maðurinn í heiminum hennar
Dagnýjar, hún á líka fjölskyldu og
vini,“ segir Ómar skilningsríkur.
Vilja þau kannski gefa öðrum
pörum góð ráð sem eru í fjarbúð? „Ég
held að ef fólk er nógu góðir vinir
þá gangi þetta upp. Við urðum vinir
áður en við urðum kærustupar og
það er góð undirstaða,“ segir Dagný.
Ómar er sama sinnis. „Okkur finnst
alltaf gaman saman. Vissum að einn
daginn kæmi að því að fótboltaferill-
inn tæki enda og þá tæki við aðeins
venjulegra líf.“
Hann viðurkennir að hafa beðið
þeirrar stundar. „Ég vissi líka að mig
langaði að klára skóla, finna mér
vinnu og eignast heimili. Nú er það
allt komið og við getum ekki verið
lengur hvort í sinni heimsálfu eftir
að barnið fæðist,“ segir hann en sver
einlæglega af sér að hafa beitt ein-
hverju trixi til að Dagný yrði ólétt.
„Ég myndi segja frá því ef það væri
þannig. Það var sko ekki.“
Dagný kveðst hafa verið að fresta
barneignum en forlögin tóku í taum-
ana. „Eftir EM, eftir HM, hugsaði ég
og hélt svo að ég gæti lengt frestinn
þar til ég legði skóna á hilluna en nú
er barnið á leiðinni. Mér finnst ég
samt eiga smá inni til að verða betri
í boltanum og þykir enn ótrúlega
gaman í atvinnumennsku erlendis
svo ég stefni ótrauð út – með Ómar
og barnið.“
Talið berst að tekjumöguleikum
í boltanum og Dagný lýsir reynslu
sinni af þeim. „Þegar ég fór frá Val
hélt ég til Bandaríkjanna í háskóla,
þar sem skólagjöldin voru felld niður
vegna þátttöku minnar í fótboltaliði
skólans. Önnin kostar svona fimm
milljónir og ég fékk allt frítt, bækur,
skóla, allt. Það er besti samningur
sem ég hugsanlega gat fengið, miðað
við kvennabolta. Svo fór ég til Bayern
München, það var mjög lélegur
samningur og mér líkaði illa bæði
þar og í Þýskalandi almennt. Þá fór
ég til Portland í Bandaríkjunum og
fékk vel borgað.“
Bæði dálítið kappsöm
Dagný stundar nám í Keili, tók einka-
þjálfaranám í fjarnámi þegar hún var
úti í atvinnumennsku og nú er það
styrktarþjálfun sem hún leggur stund
á. „Þetta er ein önn sem ég bæti við
mig, bæði bóklegt og verklegt nám.
Það bóklega tek ég í fjarnámi en
þarf að mæta í Keflavík eða Reykja-
vík tvær helgar í mánuði til að læra
æfingarnar sjálf og hvernig ég á að
koma þeim áfram. Ég kann svo sem
flestar æfingarnar enda búin að vera
lengi í íþróttum en það er verið að
fínpússa þær. Ég þarf líka að fara yfir
íþrótta- og næringarfræðina til að
geta aðstoðað aðra. Svo er ég þjálfari
yngri flokka hér á Selfossi. Var að
hugsa um að fara að vinna eitthvað
en hefði aldrei getað það, miðað við
hvað ég er búin að vera lasin á með-
göngunni.“
Spurningu um hvort litið sé á hana
sem stjörnu á Selfossi svarar Dagný:
„Ég held fólk sé ánægt að hafa mig
hér. Þegar ég sagði yfirþjálfara yngri
flokkanna af ástandi mínu, áður en
við sögðum foreldrum okkar frá því,
varð hann mjög glaður, (hlæjandi) lá
við að hann fagnaði meira en Ómar!“
„Það fer ekki framhjá manni í
búðinni að fólk veit hver hún er,“
segir Ómar. „En það eru allir rosa-
lega almennilegir, bara Íslendingar
almennt, þeir eru ekkert að trufla
okkur.“ „Það var frekar þegar við
vorum á Tene,“ segir Dagný. „Og svo
langar yngri krakkana að fá selfí með
mér, það er bara ekkert mál.“
Þeim Dagnýju og Ómari líður
greinilega vel saman og innt eftir
hvernig þau skemmti sér best svarar
hann: „Ég held við skemmtum okkur
best í Þykkvabænum í einhverju fjór-
hjólaveseni. „Já, úti að leika okkur og
líka í íþróttahúsinu þar,“ segir hún
og bætir við brosandi: „En oft þegar
við komum heim úr íþróttunum
tölum við reyndar ekki saman, það
er aðeins of mikil keppni milli okkar.
Lilja, mamma hans Ómars, hefur
sagt: „Jæja, á ég að búa um í hinu her-
berginu?““ „Já, við erum bæði dálítið
kappsöm,“ viðurkennir Ómar bros-
andi. „Sérstaklega þegar við erum
hvort gegnt öðru. Ef við horfum á
íþróttir í sjónvarpinu reynum við að
halda ekki með sama liði eða keppn-
ismanneskju, til að hafa smá spennu.“
„Við erum bæði ljón, það er stál í
stál að sögn stjörnufræðinga,“ botnar
Dagný.
„Við erum bæði
ljón, það er
stál í stál að
sögn stjörnu-
fræðinga,“
segir Dagný.
FréttaBlaðið/
Eyþór
↣
En oft þEgar við komum
hEim úr íþróttunum
tölum við rEyndar Ekki
saman, það Er aðEins
of mikil kEppni milli
okkar
Dagný
1 0 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r28 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
1
0
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
9
-B
2
B
8
1
F
2
9
-B
1
7
C
1
F
2
9
-B
0
4
0
1
F
2
9
-A
F
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
0
s
_
9
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K