Fréttablaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 114
Hljómsveitin Dr. Spock ásamt Une Misére keyra jaðar-sportshátíðina AK Extreme
í gang á Græna hattinum þann
fimmta apríl næstkomandi. Finni í
Dr. Spock segir það ekki hafa verið
mikið mál að taka þetta gigg að sér.
„Við erum bara gíraðir fínt fyrir
þetta. Við eigum eftir að koma til
Akureyrar að kynna plötuna, Leður,
þannig að þetta féll bara einhvern
veginn eins og flís við rass þegar við
vorum beðnir um hrista aðeins upp
í Akureyringum.“
Nú eruð þið þarna að koma fram
með miklum ungliðum eins og
JóaPé og Króla og fleirum, á að sýna
þeim hvernig þetta er gert?
„Jú. Þetta snýst samt eiginlega
meira um að boða rokkið sko,
„representa“ rokkið þannig að bux-
urnar detti hreinlega ekki niður um
alla. Það þarf að sýna þeim að það er
enn þá leður á Íslandi. Leðurbuxur
eru betri en Stüssy í kuldanum fyrir
norðan. Það voru engir engir vík-
ingar í Stüssy, þeir voru í leðri.“
Opnunarhátíðin fer fram á Græna
hattinum. Restin af tónlistardag-
skránni verður svo haldin í Sjall-
anum en þar munu stíga á svið Aron
Can, Emmsjé Gauti, JóiPé X Króli,
Birnir, Úlfur Úlfur, Flóni, GDRN,
KÁ-AKÁ, Young Karin, DJ Sura, Yung
Nigo Drippin og fleiri.
Hátíðin fer fram 5.-7. apríl. – sþh
Það voru engir víkingar í
Stüssy, þeir voru í leðri
Finni í Dr. Spock segir að leður sé betra en Stüssy í kuldanum fyrir norðan.
F loraelis er lyfjafyrirtæki stofnað af öflugum hópi fólks úr lyfjageiranum sem notaði þekkingu sína á þróun og markaðs-setningu lyfja til að hefja
framleiðslu á jurtalyfjum.
„Við erum að þróa og markaðs-
setja lyf og lækningavörur sem eru
gerð úr virkum efnum úr náttúrunni
sem eru fyrir fólk með væga sjúk-
dóma og kvilla. Vangavelturnar byrj-
uðu frá sjónarhorni okkar sem neyt-
enda. Í Evrópu er úrval og aðgengi
að viðurkenndum jurtalyfjum mun
betra en á Íslandi. Þá fórum við að
skoða það: Af hverju er þetta ekki til?
Af hverju getum við ekki keypt þetta
hérna? Og þá fórum við að kynna
okkur þessa hluti betur og í fram-
haldi fór boltinn að rúlla. Þangað til
að við settum á markað tvö jurtalyf
– okkar fyrsta lyf var sett á markað
um miðjan desember – fram að því
var ekki hægt að kaupa nein jurtalyf
á Íslandi,“ segir Kolbrún Hrafnkels-
dóttir, forstjóri og einn stofnenda
Florealis.
Þau sáu að þennan valmöguleika
vantaði inn á markað á Íslandi og
réðust þá í verkefnið.
Hver er munurinn á jurtalyfjum og
hefðbundnum lyfjum?
„Þessi hefðbundnu lyf sem flestir
þekkja, þar er virka efnið smíðað. Í
jurtalyfjum er alltaf notuð planta og
virku efnin eru einangruð úr jurtinni.
Það er mikill munur á upprunanum.
Um þriðjungur hefðbundinna lyfja
á sér fyrirmynd í náttúrunni en þau
eru yfirleitt smíðuð. Jurtalyf eru
almennt flókin efnasambönd og
virknin er yfirleitt byggð á samspili
fleiri efna. Þetta gerir það að verkum
að t.d. er sýklalyfjaónæmi fyrir jurta-
lyfjum nánast óþekkt.“
Hvað með fæðubótarefni gerð úr
jurtum?
„Mikilvægur munur á okkar
lyfjum og fæðubótarefnum sem eru
gerð úr jurtum er að það eru stöðluð
innihaldsefni, það er að segja það er
rétt magn af þeim efnum sem eru
ábyrg fyrir virkninni. Öll gæði og
framleiðsla eru eftir aðferðum lyfja-
fræðinnar, sem eru fastmótaðir ferl-
ar. Líka allt eftirlit með aukaefnum
eins og skordýraeitri, þungmálmum
og öðru – það er á sama hátt og í
lyfjaiðnaðinum og er mjög strangt.
Hvað gæði snertir byggjast okkar lyf
vísindalegum grunni, framleiðslu-
og gæðaprófíllinn er annar og það
sem er kannski mikilvægast er að
það er viðurkennd notkun – lyfið
er við þessum ákveðna sjúkdómi og
það er viðurkennt af Evrópsku lyfja-
stofnuninni.“
Florealis fór í gegnum Startup
Reykjavík viðskiptahraðalinn árið
2013 þegar verið var að ýta fyrir-
tækinu úr vör.
„Það var mjög mikilvægt skref fyrir
okkur. Við vorum þá alveg á byrj-
unarreit. Við komumst í tengsl við
mjög öflugt fólk sem við erum enn
í samskiptum við. Við fengum inn-
legg varðandi hugmyndavinnuna
og annað – þetta var líka tækifæri til
að kynna hugmyndina. Við höfðum
verið að vinna í þessu sjálf og þetta
var í fyrsta skiptið sem við kynntum
þetta fyrir öðrum. Þetta sló taktinn
fyrir framhaldið hjá okkur.“
Hvernig hefur ykkur svo gengið
hingað til?
„Fyrir ung fyrirtæki tekur alltaf
mjög mikla orku að leita fjár-
magns, en það hefur gengið mjög
vel. Við erum með mjög öflugan
hóp einkafjárfesta og margir þeirra
þekkja mjög vel til lyfjaiðnaðarins.
Svo vorum við að gera samning við
Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins
(NSA), sem var mjög mikilvægt skref
fyrir okkur. Við erum komin með
sterka stjórn, sterka fjárfesta og hlut-
hafa, mjög sterkt teymi og útibú í Sví-
þjóð sem við erum að fara að styrkja
núna. Þannig að mjög margt af því
sem við höfum verið að vinna að
hefur gengið upp. Við erum komin
með góðan grunn til að byggja á.“
Fram undan hjá Florealis segir
Kolbrún vera að þau ætli sér að
styrkja starfsemina á Norðurlönd-
unum, en vörur Florealis eru komnar
í sölu hjá tveimur stærstu apóteka-
keðjunum í Svíþjóð og einnig stefna
þau á að setja fleiri vörur á markað
bráðlega.
Startup Reykjavík viðskiptahrað-
allinn hefst þann 11. júní en opnað
hefur verið fyrir umsóknir.
Vantaði alveg jurtalyf á Íslandi
Florealis er lyfjafyrirtæki stofnað árið 2013 og sérhæfir sig í jurtalyfjum. Fyrirtækið fór í gegnum viðskiptahraðal
inn Startup Reykjavík strax við stofnun og er í dag að byggja upp útibú í Svíþjóð þar sem lyf þess eru komin í sölu.
Kolbrún fékk hugmyndina að Florealis eftir að hafa búið í Evrópu þar sem
úrval jurtalyfja var töluvert betra en á Íslandi, en hér heima var ekkert jurtalyf
í sölu. Fréttablaðið/anton brinK
Þetta SnýSt Samt
eiginlega meira um
að boða rokkið Sko, „re
preS enta“ rokkið Þannig að
buxurnar detti hreinlega
ekki niður um alla.
Í eVrópu er úrVal
og aðgengi að
Viðurkenndum jurtalyfjum
mun betra en á ÍSlandi.
1 0 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r66 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð
1
0
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
2
9
-B
C
9
8
1
F
2
9
-B
B
5
C
1
F
2
9
-B
A
2
0
1
F
2
9
-B
8
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
0
s
_
9
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K