Fréttablaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 36
St e l l a S a m ú e l s d ó t t i r , framkvæmdastýra lands-nefndar UN Women, hefur verið búsett erlendis síð-ustu fimmtán ár. Hún tók við starfinu af Ingu Dóru
Pétursdóttur í júlí í fyrra. „Ég bjó nú
síðast í New Orleans. Það er frábær
staður að búa á, gott veður, tónlist,
matur og menning. Þar starfaði ég
sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi í
þróunarmálum. Ég vann meðal ann-
ars fyrir frjáls félagasamtök, skrifaði
umsagnir fyrir þau þegar þau sóttu
um styrki í sjóði og gerði úttektir og
árangursmat á verkefnum þeirra. Ég
stofnaði líka fyrirtæki og flutti inn
til Bandaríkjanna íslenskt sjávar-
salt frá Saltverki. Ég kom því inn
hjá Whole Foods og Amazon, á veit-
ingastaði og í verslanir,“ segir Stella
um síðustu verkefni sín áður en hún
fluttist til Íslands.
Bjó í fimm ár í Malaví
Þar áður starfaði Stella í New
York fyrir utanríkisráðuneytið hjá
fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu
þjóðunum. „Ég var þar í tvö ár og
vann að jafnréttis-, umhverfis- og
þróunarmálum. Ég tók meðal ann-
ars þátt í samningaviðræðum fyrir
hönd Íslands varðandi stofnun UN
Women. Það var ótrúlega áhugavert
að taka þátt í því. Að finna á eigin
skinni að það er ekkert eldfimara
en orðræða um konur og líkama
kvenna. Ég hef aldrei upplifað aðrar
eins viðræður og um stofnun UN
Women,“ segir Stella frá.
„Áður en ég fluttist til New York
bjó ég í Malaví. Þar bjó ég í fimm ár
og vann á vegum Þróunarsamvinnu-
stofnunar Íslands. Það var ótrúleg
reynsla að starfa að þróunarmálum
á vettvangi í svona langan tíma. Það
gaf mér góða reynslu að starfa í einu
af fátækustu löndum heims og verk-
efnin sem ég vann voru margvísleg.
Þau voru af félagslegum toga, sneru
að jafnrétti, valdeflingu kvenna,
fullorðinsfræðslu fyrir konur, bygg-
ingu barnaskóla og fleira.
Við Íslendingar erum búnir að
vera starfandi í Malaví í rúm tutt-
ugu ár á afmörkuðu svæði. Þar hefur
meðal annars verið mikil áhersla
á byggingu sjúkrahúsa og unnið
að því að bæta fæðingaraðstöðu,
mæðravernd og þess háttar. Svo
voru líka vatns- og hreinlætismál í
forgangi. Á þessum tíma sem ég var
þar var til dæmis kóleru útrýmt á
þessu svæði,“ segir Stella sem seg-
ist stolt af þeim árangri sem hefur
náðst á svæðinu í gegnum árin þó
margt sé enn óunnið.
Magnaður lærdómstími
„Það var gaman að sjá börnum sem
sækja skóla fjölga og konurnar í full-
orðinsfræðslu sem lærðu að lesa, að
sjá þær valdeflast. Þannig að þær
þurfi ekki að stóla á aðra, geti lesið
bréf og skilaboð, talið peninga og
stólað á sjálfar sig. Það var ótrúlega
gefandi. Þær fóru að stofna eigin
rekstur til þess að hafa í sig og á og
auka sína afkomu og gátu þá líka
hjálpað börnunum sínum því ef
þú menntar konur þá menntar þú
börnin í leiðinni. Þetta helst allt í
hendur. Þetta var magnaður lær-
dómstími. Það var ótrúlega gott að
búa í Malaví, fólkið er svo yndis-
legt,“ segir Stella frá.
Þora ekki út
Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna
blés UN Women á Íslandi til neyðar-
söfnunar fyrir Róhingjakonur á
flótta í Bangladess. Neyðarsöfnunin
er svar við neyðarkalli sem barst
frá höfuðstöðvum UN Women.
Í Bangladess rekur UN Women
neyðarathvarf fyrir konur, fjár-
magnið dugar aðeins út apríl og því
skammur tími til stefnu.
„Þessar konur hafa flúið hræði-
legar aðstæður í Mjanmar. Það er
skelfilegt að það sé ekkert gert til að
stöðva þetta. Nauðganir, hópnauðg-
anir og ofsóknir. Þær flúðu yfir til
Bangladess og eru komnar í flótta-
mannabúðir þar sem eru komin átta
hundruð þúsund manns. Rúmlega
helmingurinn er konur. Þær þora
flestar ekki út fyrir kofans dyr. Eru
að meðaltali 21 til 24 klukkutíma á
dag innanhúss.
Maður getur ekki ímyndað sér
þessar aðstæður sem konur búa
við í flóttamannabúðunum, þar
sem þær eru búnar að flýja neyðina
en eru komnar í aðrar hættulegar
aðstæður. Það er bara svo erfitt að
halda utan um svona stórar búðir.
Það er alltaf fólk sem nýtir sér neyð
annarra og það er staðreynd að
konur í neyð sem þessari eru mjög
berskjaldaðar fyrir ofbeldi, mansali
og kynlífsþrælkun.
Það er sorglegt að eftir allt sem
þær hafa upplifað, þá er þetta veru-
leiki sem þær búa við í búðunum í
dag,“ segir Stella.
„Markmiðið er að halda starf-
semi neyðarathvarfsins gangandi.
Við vitum að þarfir kynjanna eru
ólíkar. Um 24 þúsund konur í búð-
unum eru ófrískar eða með barn á
brjósti. Í neyðarathvarfinu fá þær
atvinnutækifæri, til dæmis við að
búa til sápur sem er svo dreift með
sæmdarsettum til kvennanna,
svo það er sjálfbærni í þessu,“
segir Stella sem segir biðlistann í
athvarfið langan og fjármögnunina
litla. „Það er alltaf vandinn sem við
erum að kljást við. Þegar maður les
þessar sögur og sér þörfina finnst
manni það ótrúlega sorglegt að
það sé ekki meira fjármagn veitt en
sem betur fer hafa Íslendingar verið
ótrúlega öflugir að styðja við okkar
starf,“ segir Stella. „Ef ekkert verður
að gert verður neyðarathvarfinu
lokað nú í apríl.“
Styðja við áfallasögur kvenna
Verkefni UN Women eru fjölmörg á
ári hverju. Nú er nýafstaðið átakið
Fokk ofbeldi og þar áður söfnun
fyrir sýrlenskar konur sem halda
til í Zaatari-flóttamannabúðunum
í Jórdaníu. „Allur ágóði af sölu Fokk
ofbeldi húfunnar rennur beint í
starf til að uppræta ofbeldi gegn
konum, Vodafone hefur styrkt átak-
ið. Þá er á næstunni viðburðurinn
Milljarður rís. Það er dansbylting
gegn ofbeldi og hann verður hald-
inn í blálokin á neyðarsöfnun okkar
fyrir Róhingjakonur. Í ár ætlum við
að tengja dansbyltinguna við konur
af erlendum uppruna. Þær koma
fram og segja sínar sögur, lesa upp
fyrir okkur. Undanfarin ár hafa
þúsundir manna mætt á viðburð-
inn sem við höldum í samstarfi við
Sónar Reykjavík í sjötta sinn í ár,“
segir Stella frá.
UN Women ákvað líka að styðja
við verkefni sem felur í sér rann-
sókn á áfallasögum kvenna sem
Anna Valdimarsdóttir, prófessor við
Læknadeild Háskóla Íslands, stýrir
með liðsinni Örnu Hauksdóttur.
Á næstunni verða allar íslenskar
konur á fullorðinsaldri beðnar að
taka þátt í rannsókn og svara ítar-
legum spurningalista um áfallasögu
sína og spurningum um heilsufar og
sjúkdómasögu.
„Við viljum hvetja konur til að
taka þátt. Þó að við séum ekki hluti
af þessari rannsókn vildum við
tengja okkur við þetta því öll okkar
verkefni tengjast því að útrýma
ofbeldi gegn konum. Við sáum
samlegðaráhrif í þessu. Við förum
saman í þetta með það fyrir augum
að hefja enn frekari vitundarvakn-
ingu um mikilvægi þess að það liggi
fyrir upplýsingar um áhrif ofbeldis
á konur,“ segir Stella.
Ekkert eldfimara en
orðræða um konur
Stella Samúelsdóttir bjó ytra í fimmtán ár áður en hún flutti aftur
heim til Íslands til að taka við stöðu framkvæmdastýru landsnefnd-
ar UN Women. Nefndin svarar neyðarkalli frá Bangladess. Ef ekkert
verður að gert verður neyðarskýli fyrir Róhingjakonur lokað í apríl. Í neyðarskýli UN Women fá konur skjól, hjálp og atvinnutækifæri.
MYND/UN WOMEN.
Móðir með barn á brjósti í búðunum í Bangladess.
MYND/UN WOMEN
Nurnahar, 35 ára, í flóttamannabúðum í Bangladess. Myndin var tekin 6. mars síðastliðinn. MYND/ALLISON JOYCE FYRIR UN WOMEN
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
ÞÆR ÞORA FLESTAR EKKI
ÚT FYRIR KOFANS DYR.
ERU AÐ MEÐALTALI 21 TIL
24 KLUKKUTÍMA Á DAG
INNANHÚSS.
Nauðganir sem stríðsvopn:
Um 400 þúsund Róhingjakonur búa við stöðugan ótta við ofbeldi í búð-
unum. Nánast allar hafa orðið vitni að eða verið beittar grófu kynferðis-
legu ofbeldi. Í mörgum tilfellum voru konur og stúlkur látnar horfa á þegar
hermenn myrtu börn þeirra eða foreldra áður en þeir hófu að nauðga
þeim. En nauðganir á konum og stúlkum hafa verið notaðar sem mark-
visst stríðsvopn í þessum blóðugu ofsóknum gegn Róhingjum í Mjanmar.
SMS-IÐ KONUR í 1900 UN Women á Íslandi hvetur alla til að senda
SMS-ið KONUR í 1900 (1900 kr.) og styrkja starfsemi neyðarathvarfs fyrir
konurnar í flóttamannabúðunum.
1 0 . M A R S 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
0
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
9
-E
9
0
8
1
F
2
9
-E
7
C
C
1
F
2
9
-E
6
9
0
1
F
2
9
-E
5
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
9
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K