Fréttablaðið - 10.03.2018, Page 36

Fréttablaðið - 10.03.2018, Page 36
St e l l a S a m ú e l s d ó t t i r , framkvæmdastýra lands-nefndar UN Women, hefur verið búsett erlendis síð-ustu fimmtán ár. Hún tók við starfinu af Ingu Dóru Pétursdóttur í júlí í fyrra. „Ég bjó nú síðast í New Orleans. Það er frábær staður að búa á, gott veður, tónlist, matur og menning. Þar starfaði ég sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi í þróunarmálum. Ég vann meðal ann- ars fyrir frjáls félagasamtök, skrifaði umsagnir fyrir þau þegar þau sóttu um styrki í sjóði og gerði úttektir og árangursmat á verkefnum þeirra. Ég stofnaði líka fyrirtæki og flutti inn til Bandaríkjanna íslenskt sjávar- salt frá Saltverki. Ég kom því inn hjá Whole Foods og Amazon, á veit- ingastaði og í verslanir,“ segir Stella um síðustu verkefni sín áður en hún fluttist til Íslands. Bjó í fimm ár í Malaví Þar áður starfaði Stella í New York fyrir utanríkisráðuneytið hjá fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. „Ég var þar í tvö ár og vann að jafnréttis-, umhverfis- og þróunarmálum. Ég tók meðal ann- ars þátt í samningaviðræðum fyrir hönd Íslands varðandi stofnun UN Women. Það var ótrúlega áhugavert að taka þátt í því. Að finna á eigin skinni að það er ekkert eldfimara en orðræða um konur og líkama kvenna. Ég hef aldrei upplifað aðrar eins viðræður og um stofnun UN Women,“ segir Stella frá. „Áður en ég fluttist til New York bjó ég í Malaví. Þar bjó ég í fimm ár og vann á vegum Þróunarsamvinnu- stofnunar Íslands. Það var ótrúleg reynsla að starfa að þróunarmálum á vettvangi í svona langan tíma. Það gaf mér góða reynslu að starfa í einu af fátækustu löndum heims og verk- efnin sem ég vann voru margvísleg. Þau voru af félagslegum toga, sneru að jafnrétti, valdeflingu kvenna, fullorðinsfræðslu fyrir konur, bygg- ingu barnaskóla og fleira. Við Íslendingar erum búnir að vera starfandi í Malaví í rúm tutt- ugu ár á afmörkuðu svæði. Þar hefur meðal annars verið mikil áhersla á byggingu sjúkrahúsa og unnið að því að bæta fæðingaraðstöðu, mæðravernd og þess háttar. Svo voru líka vatns- og hreinlætismál í forgangi. Á þessum tíma sem ég var þar var til dæmis kóleru útrýmt á þessu svæði,“ segir Stella sem seg- ist stolt af þeim árangri sem hefur náðst á svæðinu í gegnum árin þó margt sé enn óunnið. Magnaður lærdómstími „Það var gaman að sjá börnum sem sækja skóla fjölga og konurnar í full- orðinsfræðslu sem lærðu að lesa, að sjá þær valdeflast. Þannig að þær þurfi ekki að stóla á aðra, geti lesið bréf og skilaboð, talið peninga og stólað á sjálfar sig. Það var ótrúlega gefandi. Þær fóru að stofna eigin rekstur til þess að hafa í sig og á og auka sína afkomu og gátu þá líka hjálpað börnunum sínum því ef þú menntar konur þá menntar þú börnin í leiðinni. Þetta helst allt í hendur. Þetta var magnaður lær- dómstími. Það var ótrúlega gott að búa í Malaví, fólkið er svo yndis- legt,“ segir Stella frá. Þora ekki út Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna blés UN Women á Íslandi til neyðar- söfnunar fyrir Róhingjakonur á flótta í Bangladess. Neyðarsöfnunin er svar við neyðarkalli sem barst frá höfuðstöðvum UN Women. Í Bangladess rekur UN Women neyðarathvarf fyrir konur, fjár- magnið dugar aðeins út apríl og því skammur tími til stefnu. „Þessar konur hafa flúið hræði- legar aðstæður í Mjanmar. Það er skelfilegt að það sé ekkert gert til að stöðva þetta. Nauðganir, hópnauðg- anir og ofsóknir. Þær flúðu yfir til Bangladess og eru komnar í flótta- mannabúðir þar sem eru komin átta hundruð þúsund manns. Rúmlega helmingurinn er konur. Þær þora flestar ekki út fyrir kofans dyr. Eru að meðaltali 21 til 24 klukkutíma á dag innanhúss. Maður getur ekki ímyndað sér þessar aðstæður sem konur búa við í flóttamannabúðunum, þar sem þær eru búnar að flýja neyðina en eru komnar í aðrar hættulegar aðstæður. Það er bara svo erfitt að halda utan um svona stórar búðir. Það er alltaf fólk sem nýtir sér neyð annarra og það er staðreynd að konur í neyð sem þessari eru mjög berskjaldaðar fyrir ofbeldi, mansali og kynlífsþrælkun. Það er sorglegt að eftir allt sem þær hafa upplifað, þá er þetta veru- leiki sem þær búa við í búðunum í dag,“ segir Stella. „Markmiðið er að halda starf- semi neyðarathvarfsins gangandi. Við vitum að þarfir kynjanna eru ólíkar. Um 24 þúsund konur í búð- unum eru ófrískar eða með barn á brjósti. Í neyðarathvarfinu fá þær atvinnutækifæri, til dæmis við að búa til sápur sem er svo dreift með sæmdarsettum til kvennanna, svo það er sjálfbærni í þessu,“ segir Stella sem segir biðlistann í athvarfið langan og fjármögnunina litla. „Það er alltaf vandinn sem við erum að kljást við. Þegar maður les þessar sögur og sér þörfina finnst manni það ótrúlega sorglegt að það sé ekki meira fjármagn veitt en sem betur fer hafa Íslendingar verið ótrúlega öflugir að styðja við okkar starf,“ segir Stella. „Ef ekkert verður að gert verður neyðarathvarfinu lokað nú í apríl.“ Styðja við áfallasögur kvenna Verkefni UN Women eru fjölmörg á ári hverju. Nú er nýafstaðið átakið Fokk ofbeldi og þar áður söfnun fyrir sýrlenskar konur sem halda til í Zaatari-flóttamannabúðunum í Jórdaníu. „Allur ágóði af sölu Fokk ofbeldi húfunnar rennur beint í starf til að uppræta ofbeldi gegn konum, Vodafone hefur styrkt átak- ið. Þá er á næstunni viðburðurinn Milljarður rís. Það er dansbylting gegn ofbeldi og hann verður hald- inn í blálokin á neyðarsöfnun okkar fyrir Róhingjakonur. Í ár ætlum við að tengja dansbyltinguna við konur af erlendum uppruna. Þær koma fram og segja sínar sögur, lesa upp fyrir okkur. Undanfarin ár hafa þúsundir manna mætt á viðburð- inn sem við höldum í samstarfi við Sónar Reykjavík í sjötta sinn í ár,“ segir Stella frá. UN Women ákvað líka að styðja við verkefni sem felur í sér rann- sókn á áfallasögum kvenna sem Anna Valdimarsdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, stýrir með liðsinni Örnu Hauksdóttur. Á næstunni verða allar íslenskar konur á fullorðinsaldri beðnar að taka þátt í rannsókn og svara ítar- legum spurningalista um áfallasögu sína og spurningum um heilsufar og sjúkdómasögu. „Við viljum hvetja konur til að taka þátt. Þó að við séum ekki hluti af þessari rannsókn vildum við tengja okkur við þetta því öll okkar verkefni tengjast því að útrýma ofbeldi gegn konum. Við sáum samlegðaráhrif í þessu. Við förum saman í þetta með það fyrir augum að hefja enn frekari vitundarvakn- ingu um mikilvægi þess að það liggi fyrir upplýsingar um áhrif ofbeldis á konur,“ segir Stella. Ekkert eldfimara en orðræða um konur Stella Samúelsdóttir bjó ytra í fimmtán ár áður en hún flutti aftur heim til Íslands til að taka við stöðu framkvæmdastýru landsnefnd- ar UN Women. Nefndin svarar neyðarkalli frá Bangladess. Ef ekkert verður að gert verður neyðarskýli fyrir Róhingjakonur lokað í apríl. Í neyðarskýli UN Women fá konur skjól, hjálp og atvinnutækifæri. MYND/UN WOMEN. Móðir með barn á brjósti í búðunum í Bangladess. MYND/UN WOMEN Nurnahar, 35 ára, í flóttamannabúðum í Bangladess. Myndin var tekin 6. mars síðastliðinn. MYND/ALLISON JOYCE FYRIR UN WOMEN Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is ÞÆR ÞORA FLESTAR EKKI ÚT FYRIR KOFANS DYR. ERU AÐ MEÐALTALI 21 TIL 24 KLUKKUTÍMA Á DAG INNANHÚSS. Nauðganir sem stríðsvopn: Um 400 þúsund Róhingjakonur búa við stöðugan ótta við ofbeldi í búð- unum. Nánast allar hafa orðið vitni að eða verið beittar grófu kynferðis- legu ofbeldi. Í mörgum tilfellum voru konur og stúlkur látnar horfa á þegar hermenn myrtu börn þeirra eða foreldra áður en þeir hófu að nauðga þeim. En nauðganir á konum og stúlkum hafa verið notaðar sem mark- visst stríðsvopn í þessum blóðugu ofsóknum gegn Róhingjum í Mjanmar. SMS-IÐ KONUR í 1900 UN Women á Íslandi hvetur alla til að senda SMS-ið KONUR í 1900 (1900 kr.) og styrkja starfsemi neyðarathvarfs fyrir konurnar í flóttamannabúðunum. 1 0 . M A R S 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 0 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 9 -E 9 0 8 1 F 2 9 -E 7 C C 1 F 2 9 -E 6 9 0 1 F 2 9 -E 5 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 2 0 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.