Fréttablaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 2
Veður
Snjókoma vestast á landinu með
morgninum, en léttir til fyrir hádegi.
Annars áframhaldandi austlæg átt
í dag með éljum, en bjart veður
sunnanlands. Hiti áfram um og
undir frostmarki. sjá síðu 52
Jóhann Jóhannsson kvaddur hinstu kveðju
Útför Jóhanns Jóhannssonar tónskálds var gerð frá Hallgrímskirkju í gær. Jóhann lést í Berlín 9. febrúar síðastliðinn, 48 ára að aldri. Tónverk
Jóhanns hafa verið tilnefnd til fjölda verðlauna, þar á meðal Óskarsverðlauna, BAFTA og Golden Globe. fréttablaðið/vilhelm gunnarsson
samfélag „Við erum búnar að læra
mjög mikið og leggja ótrúlega hart
að okkur, svo er okkur bara sagt
að þetta gildi ekki!“ segja bekkjar-
systurnar Eva María, Birgitta, María,
Kamilla og Teresa María í 9. bekk í
Vatnsendaskóla í Kópavogi. Þeim
finnst Menntamálastofnun sýna sér
óvirðingu og eru allt annað en sáttar
við framkvæmd samræmdra prófa.
Sjálfar hafa þær lagt mikið á sig og
sleppt því að mæta á æfingar, bæði
í íþróttum og tónlist, til að undirbúa
sig fyrir prófin.
„Okkur finnst bara verið að svindla
á okkur og viljum bara standa upp
fyrir okkur sjálfar,“ segja þær stöllur.
Vinkonurnar lýsa enskuprófinu
sem þær tóku í gær. „Svörin voru
alltaf að detta út hjá okkur og við
þurftum alltaf að byrja upp á nýtt og
setja svörin inn aftur. Svo þegar við
vorum að skila prófinu þá kom bara
„error“, þannig að við vitum ekkert
hvort við skiluðum prófinu. Núna
er verið að segja að prófið eigi ekki
að gilda. Samt vorum við látnar læra
fyrir prófið, taka prófið og klára það.“
Vinkonurnar og nemendur úr
öðrum skólum hafa borið saman
bækur sínar. „Það voru bara nokkrir
úr hverjum skóla sem komust inn í
íslenskuprófið og voru látnir klára
það. Þau voru látin sitja í prófinu,
alveg í tvo klukkutíma, þótt allt hafi
verið bilað og svörin alltaf að detta út
þrátt fyrir að búið væri að senda hina
heim og prófið ætti ekkert að gilda.“
Þær segja marga hafa verið mjög
kvíðna allan síðasta mánuð vegna
prófanna. „Mjög margir lærðu til
dæmis mjög mikið fyrir íslensku-
prófið og lásu alveg í heila viku og
slepptu öllum æfingum og slíku. Og
svo er prófið bara ekki gilt!“
Þær segjast ekki aðeins hafa fórn-
að öllum tómstundum í aðdraganda
prófanna heldur hafi þær líka keypt
sérstakt stærðfræðinámskeið á net-
inu sem kostaði 30 þúsund til undir-
búnings fyrir samræmdu prófin.
Aðspurðar segja þær alls ekki nógu
skýrt af hverju þær eigi að leggja hart
að sér í þessum prófum. „Nei, en það
er bara svo mikil pressa og við skilj-
um ekki alveg af hverju. Sumir kenn-
arar segja að þetta gildi svo mikið og
sé alveg ótrúlega mikilvægt á meðan
aðrir segja að við þurfum bara að
gera okkar besta en útskýra ekkert
fyrir okkur af hverju eða vita bara
ekki sjálfir ekki af hverju við erum
að taka þessi próf.“
Þá segja vinkonurnar, sem hafa æft
sig á prófum frá fyrri árum, prófin
núna mun þyngri en þau hafa verið
áður og það auki vissulega á kvíðann.
Smári Stefánsson, faðir einnar
stúlkunnar, segist ánægður með
að þær vinkonurnar láti í sér heyra
vegna málsins. „Þetta eru bara börn
sem eru búin að eyða fullt af tíma í
þetta og mér finnst þeim sýnd svo
mikil lítilsvirðing. Svo axlar enginn
ábyrgð. Það er bara bent á þjónustu-
aðilann,“ segir Smári.
adalheidur@frettabladid.is
Upplifa óvirðingu eftir
miklar fórnir fyrir próf
Fimm vinkonur í Vatnsendaskóla senda Menntamálastofnun tóninn og finnst
nemendum sýnd óvirðing með framkvæmd samræmdra prófa. Þær fórnuðu
öllum íþróttaæfingum og tónlist fyrir prófaundirbúning sem er að engu orðinn.
vinkonurnar maría arnardóttir, Kamilla gunnarsdóttir, eva maría smára-
dóttir, teresa maría era og birgitta eysteinsdóttir. fréttablaðið/stefán
Þetta eru bara börn
sem eru búin að
eyða fullt af tíma í þetta og
mér finnst þeim sýnd svo
mikil lítilsvirðing.
Smári Stefánsson, faðir Evu Maríu
Rafvirkjar
LED skápalampar
www.olafsson.is
Endursöluaðilar um land allt
Snjöll lýsing!
OSRAM LIGHTIFY: Aðlaga u l ósið
að þínum þörfum með Appi
Jóhann Ólafsson & Co.
Krókháls 3, 110 Reykjavík
533 1900
olafsson.is
stjórnsýsla Theodór Kristjáns-
son aðstoðaryfirlögregluþjónn tók
við sem yfirmaður kynferðisbrota-
deildar lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu á mánudag. Áður var Árni
Þór Sigmundsson yfirmaður deild-
arinnar. Theodór sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær að hann myndi
stýra deildinni að minnsta kosti
næsta árið. Framhaldið er óráðið.
Starfsemi kynferðisbrotadeildar-
innar hefur sætt talsverðri gagnrýni
undanfarnar vikur. Ekki síst eftir
að fjölmiðlar fjölluðu
um mál fyrrverandi
starfsmanns Barna-
verndar Reykjavík-
ur, sem grunaður
er um brot gegn
börnum. – jhh
Theodór tekur
við af Árna
theodór
Kristjánsson
stjórnsýsla Þingmenn fengu í
janúar samtals greitt 551 þúsund
krónur frá þinginu vegna síma- og
netnotkunar.
Þingmenn fá endurgreiddan
kostnað við notkun á heimasíma
og farsíma auk nettengingar, að því
er fram kemur á vef Alþingis. Einn-
ig endurgreiðir Alþingi þingmanni
á tveggja ára fresti allt að 80 þúsund
krónum til kaupa á farsíma að eigin
vali. Tveir þingmenn fengu í janúar
styrk vegna símakaupa. Þau Guð-
mundur Andri Thorsson og Helga
Vala Helgadóttir. – bg
Tveir fengu
greitt fyrir síma
551
þúsund krónur greiddi
þingið vegna síma og nets.
stjórnmál Tveir stjórnmálaflokkar
af þeim átta sem eiga kjörna fulltrúa
á Alþingi halda fundi fyrir félags-
menn sína um helgina.
Í Gullhömrum í Reykjavík fer
fram 35. flokksþing Framsóknar-
manna. Á fundinum er áhersla
lögð á sveitarstjórnarmál en líka þá
málaflokka sem ráðherrar flokksins,
þau Sigurður Ingi Jóhannsson, Lilja
Alfreðsdóttir og Ásmundur Einar
Daðason, fara með.
Þá heldur Viðreisn landsþing sitt
í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Í
setningarræðu sinni í gær þakkaði
núverandi formaður flokksins, Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir, forvera
sínum og fyrsta formanni flokksins,
Benedikt Jóhannessyni, fyrir störf
hans í þágu flokksins. Bæði flokks-
þing og landsþing hafa æðsta vald í
málum hvors flokks. – jhh
Tveir flokkar
leggja línurnar
1 0 . m a r s 2 0 1 8 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
0
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
9
-8
6
4
8
1
F
2
9
-8
5
0
C
1
F
2
9
-8
3
D
0
1
F
2
9
-8
2
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
9
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K