Fréttablaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 98
Leikurinn
„Nú er ég farin,“ sagði
Kata stórhneyksluð.
„Þvílíka misþyrmingu á
ketti hef ég aldrei séð.“
„Bíddu, bíddu,“ sagði
Lísaloppa. „Þetta er bara
þraut, þess vegna er hún
teiknuð svona.“ „Þetta
er misþyrming samt,“
hnusaði í Kötu. „En hver
er þá þrautin?“ bætti hún
við.
„Jú,“ svaraði Lísaloppa.
„Við eigum að telja
úr hversu mörgum
þríhyrningum þessi
mynd er teiknuð.“
„Þríhyrningum,“ sagði
Kata hneyksluð. „Á mér er
enginn þríhyrningur,“
bætti hún við snúðug.
Posted: January 21, 2008
Copyright © 2008 ThinkFun Inc. All Rights Reserved.
Permission is granted for personal use only.
This puzzle may not be duplicated for personal profit.
Getur þú tal
ið
hvað eru ma
rgir
þríhyrninga
r í
þessari myn
d?
?
?
?
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
292
Lausn á gátunni
Tuttugu, athugið að þeir geta skarast, til dæmis
geta tveir þríhyrningar myndað nýjan þríhyrning.?
Systurnar Stefanía Ásdís og Aníta
Ósk Stefánsdætur, sem eru níu og
sjö ára, eiga báðar afmæli í maí. Þær
eiga nú heima í Hveragerði en voru
áður í Vogum á Vatnsleysuströnd.
Hvernig leika þær sér helst saman?
Stefanía: Með því að rífast. (Þær
skellihlæja báðar.) Að minnsta kosti
í þessum mánuði.
Hvað rífist þið um? Aníta: Um
dótið, Ég vil hafa það sem hún er að
leika með og öfugt!
Sláist þið? Aníta: Nei, en hún beit
mig einu sinni.
Stefanía: Og ég fór í straff.
Fórstu þá inn í herbergið þitt?
Stefanía: Nei, ég bara fékk ekki að
fara út að leika dálitla stund.
Eigið þið vini hér í kring? Aníta: Ég
á nokkra.
Stefanía: Og ég á fimm vinkonur
hérna.
Finnst ykkur gaman að lesa? Já, um
líkamann. Það er fróðlegt.
En hvað er skemmtilegast í skól-
anum? Stefanía: Krakkaspjallið, þá
er hálfur bekkurinn að tala saman
og æfa samskipti og tveir kennarar
að stjórna meðan hinn helmingur-
inn er í tölvu eða tónmennt.
Aníta: Stærðfræði og líka nudd sem
er stundum í lok skóladags.
Ert þú þá nudduð eða lærir þú að
nudda aðra? Aníta: Hvort tveggja.
Ég nudda og fæ líka nudd.
Stefanía: Ég er í jóga í skólanum,
einn tími er 20 mínútur og svo er
farið í sund.
Er ykkur kennd ræktun hér í
blómabænum? Stefanía: Já, í 3.
bekk. Þá er farið í Garðyrkjuskól-
ann.
Aníta: Ég fékk að rækta blóm í 1.
bekk og það hefur stækkað rosalega
mikið. Ég skal sýna ykkur það. Ég er
alltaf að snyrta það.
Stefanía: Mitt blóm er bara ónýtt. –
Fáum við eina opnu í blaðinu? Eða
kannski tvær?
Nei, en hvað er best við að búa í
Hveragerði? Stefanía: Þá þurfum
við ekki að fara til Keflavíkur að
versla eins og þegar við vorum í
Vogunum.
Aníta: Hér eru búðir sem við getum
keypt allt í.
Stefanía: Svo er fullt af krummum.
Þeir búa uppi í hamrinum.
Aníta. Já, og berjast um brauðið sem
litlu fuglarnir eiga að fá.
Rífumst í
þessum mánuði
Stefanía Ásdís við listaverkin sem hún bjó til á vegginn og Aníta Ósk með veð-
hlauparann sem hún byrjaði að rækta í 1. bekk. FréttAblAðið/EyþÓr ÁrnASon
1. Hvaða fætur eru alltaf
skólausir?
2. Ég hef engar lappir en
þó fer ég sífellt fram
og aftur. Ég hef engan
munn og þó bít ég
með tönnum. Ég sé
ekki og verð alltaf að
fá stuðning annarra.
Hver er ég?
3. Að sumu leyti myrkur,
að sumu leyti bjart, sumt
sést í gegnum mig en
margt alls ekki. Hver er ég?
4. Í hvaða æðum rennur
ekkert blóð?
5. Hvað verður Arabi þegar hann
fellur í Rauðahafið?
Gátur
Blásið upp nokkrar
blöðrur, að minnsta
kosti tvær fyrir hvern
þátttakanda. Bindið
mislanga garnspotta
við að minnsta kosti
helminginn af blöðr-
unum.
Komið blöðrunum fyrir í hrúgu á
miðju gólfi.
Setjið einhverja góða tónlist á.
Þátttakendur velja sér blöðrur,
aðra með bandi og hina án
bands.
Nú eiga allir að hreyfa sig í takt
við tónlistina og láta blöðrurnar
svífa og skapa stemningu.
Svo er um að gera að skipta um
tónlist, prófa klassíska, djass,
rokk og róleg lög og finna hvað
hreyfingarnar verða ólíkar eftir takti
laganna.
Heimild: www.skolavefurinn.is
Blöðrudans
1. Borðfætur
2. Sögin
3. Þokan
4. Umferðaræðum
5. Blautur
1 0 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r50 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
krakkar
1
0
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
2
9
-C
6
7
8
1
F
2
9
-C
5
3
C
1
F
2
9
-C
4
0
0
1
F
2
9
-C
2
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
0
s
_
9
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K