Fréttablaðið - 10.03.2018, Page 30

Fréttablaðið - 10.03.2018, Page 30
Við mælum okkur mót við Brúarskólanema í verslun Bauhaus rétt við Úlfarsfellið. Davíð Thor Morgan er fjórtán ára, en alveg að verða fimmtán. Hann er einn nemenda í grunnskólum Reykjavíkur sem taka þátt í verkefn- inu Atvinnutengt nám. Verkefnið er ætlað nemendum sem hafa dregist verulega aftur úr í námi og líður ekki vel í hefðbundnum grunnskóla. Nemendurnir sem taka þátt í því eru launþegar hjá Reykjavíkurborg en starfa víðsvegar í einkafyrirtækjum og opinberum stofnunum um borg- ina. Þeir sem eru í 9. bekk frá rúmar 600 krónur á tímann en þeir sem eru í 10. bekk fá rúmar 800 krónur. „Ég bara er ekki viss, kannski svona þrjá til fjóra mánuði. Ég er bara hérna á miðvikudögum frá 9-13,“ segir Davíð þegar hann er spurður að því hvað hann sé búinn að vera lengi hjá Bauhaus. Davíð segist ekki kunna sérlega vel við sig í Brúarskóla. „Það eru allt of strangar reglur þar,“ segir hann. „Ég hef áhuga á að gera eitthvað, að vinna með höndunum. Þetta er góður staður fyrir það,“ segir Davíð um vinnuna í Bauhaus. Hann segist sinna þeim verkefnum sem lögð eru fyrir hann. „Stundum er ég að vörumerkja og eitthvað. Svo er ég að pakka inn og stundum er ég ekki að gera neitt,“ bætir hann við. Davíð segir starfsfólkið í Bauhaus taka sér mjög vel. „Það er góður andi hérna,“ segir hann og segist vel geta hugsað sér að vinna í Bauhaus þegar hann er útskrifaður úr 10. bekk í Brúar- skóla, eða fara í framhaldsskóla. Arna Hrönn Aradóttir, starfs- maður Þjónustumiðstöðvar Árbæj- ar og Grafarholts, hefur umsjón með Atvinnutengdu námi af hálfu Reykjavíkurborgar. Hún heldur utan um skráningu, sér til þess að nem- endur fái greitt fyrir sína vinnu og er tengiliður við grunnskóla og vinnu- staði nemenda. Arna segir að ein rannsókn hafi verið gerð á verkefninu, árið 2013. Þá var könnuð staðan á krökkum sem höfðu lokið námi í grunn- skóla og höfðu gengið í gegnum verkefnið. Ungmennin voru spurð í rannsókninni hvernig þau hefðu upplifað verkefnið og hver staða þeirra væri þegar rannsóknin var gerð. „Við vildum vita hvernig þeim fannst þetta verkefni, hvern- ig þeim leið eftir að þau byrjuðu í verkefninu og hvernig mætingin, líðanin og námsárangurinn hefði batnað,“ segir Arna og bætir við að niðurstaðan hafi orðið sú að nemendum hefði liðið betur eftir að þau byrjuðu. Úrtakið í rann- sókninni var 109 nemendur og af þeim tókst að ná í 84. Niðurstaðan var að 60 prósent nemenda sem svöruðu voru í námi, einhverjir voru í vinnu og enn aðrir að gera eitthvað annað. Einungis einn eða tveir höfðu ekkert fyrir stafni og fengu þeir viðeigandi aðstoð. „Það er mjög ánægjulegt að þau fóru öll að gera eitthvað tengt því sem þau fengu að taka þátt í þegar þau voru í atvinnutengda náminu. Þau voru að stefna á kokkanám, þau voru að stefna á leikskólakennara, á háriðn, einhver í bifvélavirkjun og einhver í málmiðn. Öll voru þau að stefna á eitthvað og það er auðvitað það sem við viljum,“ segir Arna. Hún segir að það sé alltaf grunn- skólans að meta það hvort barn þurfi á verkefninu að halda og skól- inn geti þá mælt með þessu úrræði. „Barnið þarf að uppfylla ákveðin atriði þannig að skólinn fari að mæla með þessu úrræði.“ Arna segir að eftirspurn eftir þátttöku í verk- efninu sé mjög mikil. Þess vegna sé mjög mikilvægt að atvinnurekendur sýni því áhuga og séu fúsir til að taka nemendur að sér. Þeir atvinnurekendur sem Frétta- blaðið hefur rætt við eru ánægðir með hvernig til hefur tekist og margir þeirra fá nemendur til sín ár Tækifærin finnast víðar en í bóknámi Það er mikilvægt að unglingar sem þrífast illa í hefðbundnu bók- námi finni sér stefnu í lífinu. Mörg reykvísk börn fá mikla hjálp í gegnum verkefnið Atvinnutengt nám. Þar fá þau aðstoð frá eldra og reyndara fólki við að stíga sín fyrstu skref í nám eða á vinnumarkað. Hinn fjórtán ára gamli Davíð Thor Morgan segir að sér finnist gaman að vinna með höndunum og því henti starfið í Bauhaus honum vel. FréTTaBlaðið/VilHelM Theodór Páll Theódórsson, til vinstri, segir að eina skemmtilega fagið í grunnskóla hafi verið heimilisfræði. MynD/Sigurjón ragnar eftir ár. Einn þeirra er Ásgeir Bach- mann, framkvæmdastjóri Bauhaus. „Þegar vel tekst til þá sér maður ánægða unga einstaklinga sem öðl- ast sjálfstraust og vilja til að leggja eitthvað af mörkum. Oft er það þannig að unga fólkinu sem nær ekki að sinna skólanum finnst það vera út undan gagnvart jafningjum sínum og jafnöldrum. Það kemur oft ekki með fullt sjálfstraust. Um leið og ungmennin fara að vinna með fullorðnu fólki sem hjálpar því áleiðis með fyrstu skrefin og þau fá síðan verkefni við hæfi þá sjá þau að þau geta þetta líka. Þá kemur trúin og það skiptir miklu máli,“ segir Ásgeir. Hann segir að Bauhaus hafi tekið ✿ Fjöldi nemenda í atvinnutengdu námi 100 80 60 40 20 0 89 67 70 67 75 72 85 20 11 -20 12 20 12 -20 13 20 13 -20 14 20 14 -20 15 20 15 -20 16 20 16 -20 17 20 17 -20 18 að sér einn til tvo nemendur á hverju einasta ári. Ásgeir starfaði hjá Byko áður en hann fór til Bauhaus og þar tók hann líka á móti nemendum í tengslum við þetta verkefni. Hann segir flesta einstaklinga hafa komið vel út hjá sér. „En þá skiptir líka máli að foreldrarnir séu jákvæðir fyrir þessu, að börnin fái stuðning fyrir þetta heima fyrir,“ segir Ásgeir og viðurkennir að það sé allur gangur á því hvort börnin fái þennan mikil- væga stuðning heima fyrir. Ásgeir segir starfsmenn vera mjög jákvæða gagnvart verkefninu. Hvort sem það er hér eða í Byko þá hafa starfsmenn aldrei tekið neikvætt í þetta. Þeir hafa bara tekið mjög vel utan um krakkana og hjálpað þeim áleiðis. Það er algjörlega til fyrir- myndar.“ Hann segir dæmi um að börn komi síðar í launuð störf hjá Bau- haus eftir að hafa verið þar í atvinnutengdu námi. „Já, já. Það eru alveg dæmi um það. Þá eru það yfirleitt helgarstörf með skóla og þvíumlíkt.“ Mörgum þeim sem hafa farið í atvinnutengt nám hefur farnast vel á eftir. Einn þeirra er Theódór Páll Theódórsson kokkur, sem ólst upp í Grafarvogi og gekk í Engjaskóla. Hann er með lesblindu og var í sér- deildarbekk í grunnskóla. Hann segir að bóklegt nám hafi aldrei höfðað til sín. „Eina fagið sem mér fannst skemmtilegt í grunnskóla var heimilisfræði. Eftir það langaði mig alltaf til að vinna í eldhúsi og verða kokkur,“ segir Theódór. Hann fékk pláss á Grand Hót- eli tvisvar í viku í atvinnutengda náminu. „Ég var á þriðjudögum í eldhúsinu. Þá var ég að hjálpa til með hópa og með undirbúning. Á fimmtudögum var ég meira í bak- aríinu með bökurum. Að undirbúa brauðbakstur og svona,“ segir hann. Um leið og Theódór Páll útskrif- aðist úr grunnskóla fór hann með ferilskrá og labbaði inn á hvern einasta veitingastað sem hann fann til að leita að vinnu. Hann var um stutta stund á Orange, en hætti fljót- lega þar. Eftir það gekk atvinnuleit- in ekki eins og best varð á kosið fyrr en Theodór Páll talaði við heimilis- fræðikennarann sinn úr grunnskóla sem kom honum að á samning hjá La Primavera. Síðar fylgdi hann eig- anda La Primavera yfir í Hörpuna. Hann útskrifaðist sem kokkur árið 2013. Þá sótti hann um starf á Hótel Reynihlíð, þar sem hann var yfir- kokkur í tvö og hálft ár. „Að vera tvítugur og yfirkokkur úti á landi, það var svolítið stórt stökk,“ segir hann. Eftir starfið á Hótel Reynihlíð hefur Theodór Páll unnið á Húsavík, Egilsstöðum og víðar. Nú er hann í afleysingum hjá HB Granda og ætlar svo að vera í veiðihúsi við Blöndu í sumar. Theódór Páll lætur mjög vel af atvinnutengda náminu á grunn- skólaárunum. „Ég hef séð fullt af fólki sem er í skóla án þess að bók- nám henti því og ég veit um fullt af fólki sem hefur flosnað upp frá skóla af því að bóklegi parturinn er erfiður,“ segir hann. ég veit um fullt af fólki sem hefur flosn- að upp úr skóla af því að bóklegi parturinn er erfiður. Jón Hákon Halldórsson jonhakon@frettabladid.is 1 0 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r30 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 1 0 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 1 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 9 -9 E F 8 1 F 2 9 -9 D B C 1 F 2 9 -9 C 8 0 1 F 2 9 -9 B 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 2 0 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.