Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 2
2 28. mars 2018fréttir
Síðastliðinn
föstudag
greindi
DV frá því
að Gunnar
Þór Andrésson
íþróttafræðingur hafi tekið frá
einkaleyfi á þjóðareign Íslands,
„Húh-inu“ svokallaða. Við nánari
eftirgrennslan DV kom í ljós
að það sama á við um flest öll
fagnaðarlæti Íslendinga. Því
verður snúið að fagna því þegar
Íslendingar verða heimsmeistarar
í Rússlandi í sumar, án þess að
aurasálir fá sitt.
KOMASO
Hver kannast ekki við
að hrópa á skjáinn:
„koma svo strákar!“.
Fáir gera sér þó grein
fyrir því að Ívar Trausti
Jósafatsson á það
vörumerki og þú átt
von á fjárkröfu.
Húrra
26. júní. Íslenska
landsliðið hefur lagt
forna fjendur, Króata,
og er á leiðinni í
sextán liða úrslit. Hvað
geturðu sagt annað en
„Húrra!“? Sem betur
fer máttu það án þess
að auglýsingastofan
ENNEMM verði með
eitthvert múður.
ENNEMM reyndi að fá
einkaleyfi á Húrra árið
2006 en umsóknin var
ekki samþykkt.
Það var lagið
Í ríflega tíu ár gaf
hollenska samsteypan
FremantleMedia Oper-
ations BV Íslendingum
góðfúslegt leyfi til
að hrópa „Það var
lagið!“ þegar bolti fór
í mark. Samsteypan
ber ábyrgð á mörgum
vinsælustu sjónvarps-
þáttum heims og fékk
einkaleyfið vegna
þátta á Stöð 2 með
Hemma Gunn.
Vel gert
16. júní. Moskva. Gylfi
Þór skorar sitt þriðja
mark gegn niðurlægð-
um Argentínumönn-
um. Þú öskrar: „Vel
gert Gylfi!“. Nei.
Bannað. Coca-Cola
European Partners
Ísland ehf. á það, eða
hefur í það minnsta
sent umsókn um það
þegar þetta er skrifað.
OK
Hættum þessu
kjaftæði. Ísland
er að fara að tapa
öllum leikjum á HM í
sumar og algengustu
viðbrögð Íslendinga
mun verða eitt stórt
„OK“. Magnús Ingberg
Jónsson, fyrrverandi
forsetaframbjóðandi,
sá þetta fyrir og sótti
um einkaleyfi á „OK“
16. mars síðastliðinn.
fagnaðarlæti varin með einkaleyfi
Á þessum degi …
29. mars
845 – Víkingar fara ránshendi um
París, að sögn undir forystu Ragnars
Loðbrókar. Víkingarnir samþykkja að
yfirgefa borgina gegn háu lausnargjaldi.
1549 – Borgin Salvador da Bahia er
stofnuð í Brasilíu og er fyrsta höfuðborg
landsins.
1871 – Viktoría Bretlandsdrottning
opnar Royal Albert Hall.
1951 – Ethel og Julíus Rosenberg eru
sakfelld fyrir njósnir.
1973 – Síðustu hermenn Bandaríkj-
anna yfirgefa Suður-Víetnam.
2014 – Fyrstu hjónavígslur fólks af
sama kyni eru framkvæmdar á Englandi
og í Wales.
Síðustu orðin
„Ég vona að brottförin
verði ánægjuleg og að ég
muni aldrei snúa aftur.“
– Frida Kahlo lést 13. júlí 1954, 47
ára að aldri.
Lof & Last
– Halldór Auðar
Lofið fær Áslaug Friðriksdóttir, fé-
lagi minn í borgarstjórn, fyrir að tjá
sig með ansi afdráttarlausum
en sanngjörnum hætti um
það hvernig henni var ýtt
til hliðar af flokksfélögum
í svakalega súru valdatafli.
Það lagast ekkert nokkurn
tímann nema fólk hafi kjark til að
láta í sér heyra.
Lastið fáum eiginlega við öll í
stjórn borgarinnar fyrir að vera
ekki búin að ná alveg utan um
að uppræta hina vorvissu
svifryksmengun í borginni.
Það er hægt að gera
ýmislegt hérna og með
markvissu og samstilltu
átaki ætti að vera hægt að tryggja
hreinna loft næsta vor.
Í
það minnsta þrír barir í taí-
lensku borginni Patta-
ya, Mekka vændis í Asíu, eru
reknir af Íslendingum. Barirn-
ir; Paddy's, WOW og Mookky Bar,
eru allir með Facebook-síðu
og má þar sjá myndir af mis-
mikið klæddum taílensk-
um konum auk alklæddra ís-
lenskra karla. Í bakgrunni
blaktir íslenski fáninn. WOW fæ
fimm stjörnur í einkunn
frá Pratchaya nokkrum Term-
boon sem segir: „Ferskur matur,
fersk píka“.
Fjölmargir íslenskir karlar tjá
sig við myndir sem barirnir birta
á Facebook. Til að mynda segir
Benedikt Heiðdal við mynd af fá-
klæddum konum: „Vááá. Ég hef
sagt það, og segi það aftur, ég bý á
röngum stað á hnettinum!“
Haukur Vagnsson, sem rek-
ur Paddy's, segir í samtali við DV
að það sé þó af og frá að vændi sé
stundað á hans stað. Hann segir þó
að svokölluð barsekt (e. bar fine)
þekkist en það sé þó venjan á nær
öllum börum í Taílandi. Í stuttu
máli má lýsa barsekt sem greiðslu
sem þarf að borga viðkomandi bar
til að starfsmaðurinn fái að fara úr
vinnu.
Barsektin þekkist
Haukur segir að sektin sé hluti af
menningu Taílands og að konur
ráði sig til vinnu á börum með því
skilyrði að fá að fara úr vinnu. „Ég
hef búið víða og ég er bara ekkert
svo viss um að það sé meira vændi
hér en annars staðar. Það er allt
bullandi í vændi heima á Íslandi
og í Þýskalandi er vændishús á
öðru hverju horni. Ég held hrein-
lega að það sé á öllum stöðum
þannig hérna, að ef dömunni líst
á gaurinn og hana langar að fara
með honum, þá geta þær fengið að
fara gegn því að þær endurgreiði
launin sín,“ segir hann.
Haukur ítrekar að ekkert vændi
sé á Paddy's. „En það er engin
vændisstarfsemi á okkar bar. En
þetta kerfi er alls staðar, þær þurfa
að fá að geta fengið að fara, það
hefur í raun ekkert með okkur að
gera. Við erum ekki með útgerð
á einhverjum stelpum, alls ekki.
Þær fá mánaðarlaun fyrir að vera í
salnum og þjóna til borðs.
Haukur dregur ekki dul á að
borgin Pattaya hafi raunar orðið
til í kringum vændi. Hann segir þó
að borgin sé talsvert öðruvísi í dag,
þó vændi þekkist auðvitað, eins
og alls staðar í heiminum. „Það er
mjög margt fólk sem kemur hing-
að í tannlækningar, það kostar
bara brot af því sem það kostar
heima. Svo eru rosalega flottir
golfvellir hérna og svo mætti lengi
telja. Þetta er ekkert eins og það
var áður fyrr. Hingað kemur fjöl-
skyldufólk,“ segir Haukur.
Oft sendar af fjölskyldunni
DV hefur rætt við Íslending sem
hefur stundað Íslendingabarina
í Pattaya og „leyst út“ starfskonu
staðarins. Lýsing hans rennir
nokkrum stoðum undir lýsingu
Hauks. „Í Taílandi er bara eðlilegt
að konur vinni á bar, það er ekki
vændi. Þær fá bónusgreiðslur í
laun fyrir svokallaða „lady drykki“.
Ef þú vilt svo bjóða þeim út
að borða þá þarftu að borga
„bar fine“. Þær ráða því svo alveg
sjálfar hvort þær fara. Þetta er alls
staðar svona og íslensku staðirn-
ir eru engin undantekning. Þetta
er ekki vændi nema stelpan sjálf
ákveði að gera það. Ég borgaði
oft „bar fine“ en var ekkert endi-
lega að fara að ríða þeim, við fór-
um kannski bara í bíó eða á fyllerí.
Þessar stelpur eru mjög oft send-
ar í þetta af fjölskyldunni og þær
þurfa þá að senda pening heim,“
segir maðurinn. n
Íslendingar reka bari í Mekka vændis:
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
„Ferskur matur,
fersk píka“
Gunnar Þór
Andrésson