Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 37
Hlaup 28. mars 2018 KYNNINGARBLAÐ Mývatnshlaupið er mikil upplif-un fyrir hlaupara, ekki síst út af mikilli náttúrufegurð svæð- isins. Hlaupið var lengi draumur Mý- vetninga og hann rættist loks 9. júlí 1995 þegar fyrsta Mývatns-mara- þonið var haldið eins og sést í með- fylgjandi frétt frá þeim tíma. Þá var hlaupið heilt maraþon, 10 kílómetr- ar og 3 kílómetrar. Núna, 23 árum seinna, blómstar Mývatnsmaraþon- ið ennþá. Er hægt að hlaupa heilt maraþon, hálft maraþon, 10 kíló- metra og 3 kílómetra skemmtiskokk. Annar langþráður draumur er að rætast, en það er utanvegahlaup sem haldið verður föstudaginn 25. maí og verður kynnt síðar. Hlaupið er unnið í samvinnu við íþróttafélagið Mývetning og einnig Björgunarsveitina Stefán. Mývatnsmaraþon verður haldið laugardaginn 26. maí og er að venju hlaupið í kringum vatnið. Hlaupið í ár verður með sama fyrirkomulagi og í fyrra, þ.e. ræst og endað við Jarðböðin við Mývatn. Mývatns- maraþonið er frábær upplifun fyrir alla fjölskylduna þar sem náttúran og landslagið leika gríðarlega stórt hlutverk. Síðustu ár hafa Jarðböðin við Mývatn og Mýflug staðið að baki Mývatnsmaraþoninu en það er unnið í samvinnu við íþróttafélagið Mývetn- ing. Þátttakendur geta valið úr fjórum vegalengdum, maraþoni, hálfmara- þoni, 10 kílómetrum og 3 kílómetrum. Þetta verður heil helgi full af dagskrá fyrir alla fjölskylduna, skemmtiskokk og skemmtigöngur, tónlistaratriði og fleira. Því ættu allir að finna eitthvað fyrir sitt hæfi. Full dagskrá fyrir helgina 25.–27. maí verður kynnt eftir páska. „Þessi braut er ein sú fallegasta sem til er á Íslandi“ Hjónin Guðmunda Steinunn Sigur- björnsdóttir og Gunnar Stefán Richter eru á meðal fjölmargra ánægðra þátttakenda í Mývatnsmaraþoninu. Guðmunda tók fyrst þátt í hlaupinu árið 2007: „Þetta var hugsað sem löng æfing fyrir Laugavegshlaupið. Þetta gekk mjög vel og ég fór á tím- anum 3:55. Árið 2010 fór ég síðan á nýju brautinni sem er enn í dag og þá vann ég kvennaflokkinn á tímanum 3:42,“ segir Guðmunda. Gunnar keppti í hlaupinu á árunum 2000–2005 með félögum sínum hjá Námsflokkum Reykjavíkur en á þeim árum hófst hlaupið kl. 21. „Þessi braut er ein sú fallegasta sem til er á Íslandi og mælum við hjónin algjörlega með henni fyrir gæðastundir þar sem end- að er í Jarðböðum við Mývatn,“ segir Gunnar. MývAtNSHLAupið: Ein fallegasta hlaupaleið landsins 27. maí, 2018: For- skráningin er í fullum gangi á www.my- vatnmarathon.com en skráningargjöldin hækka 1. apríl. Dagskrá á hlaupadegi: 42 km - Hefst kl 10.00 21 km - Hefst kl 12.00 10 km - Hefst kl 13.00 3 km - Hefst kl 13.00 innifalið í þátttökugjaldi í hlaupum laugardaginn 26. maí er aðgangur í Jarðböðin og hlaupa- bolur. Einnig verða veitt sérstök útdráttarverð- laun. Þátttakendur skulu vera mættir upp í Jarðböð að minnsta kosti 1 klst. fyrir hlaup.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.