Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 80
28. mars 2018
12. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Sjá afgreiðslutíma um páska á byko.is
Gem 320
6,9kW gasgrill.
39.995
50657519
Almennt verð: 49.995
TILBOÐ
Hekkklippur
GC-EH 600W.
9.995
748300041
Almennt verð: 12.995
TILBOÐ
Hjólbörur 80l.
3.995
79290094
Almennt verð: 4.995
TILBOÐ
GrillPro
7,3kW gasgrill.
23.995
50657522
Almennt verð: 29.995
TILBOÐ
3
br
en
na
ra
r
6,9
kw
Páska-
tilboð
gilda til 4. apríl
1
br
en
na
ri
(h
ri
ng
)
7,3
kw
Ti
lb
oð
gi
ld
a t
il 4
. a
pr
íl.
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r o
g/
eð
a m
yn
db
re
ng
l.
Húh!©
Hvað segir
mamma?
Kvikmyndin Víti í Vestmanna-
eyjum, eftir handriti Gunnars
Helgasonar, var frumsýnd
um helgina. Gera má ráð fyr-
ir að fólk, unga kynslóðin þá
sérstaklega, muni flykkjast á
myndina yfir páskana.
Hinn þrettán ára gamli
Lúkas Emil Johansen fer
með eitt af aðalhlutverkum
myndarinnar en hann er
sonur Ingibjargar Daggar
Kjartans dóttur, annars rit-
stjóra Stundarinnar. Ljóst er
að þarna fer efnilegur dreng-
ur sem gæti náð langt, bæði á
sviði leiklistar og í fótboltan-
um, sem hann æfir með KR.
Hvað segir mamma Lúk-
asar um Víti í Vestmannaeyj-
um og frammistöðu stráksins í
myndinni?
„Ég vissi
ekkert hverju
ég ætti von
á þegar ég
mætti á há-
tíðarsýn-
inguna, en
um leið og
myndin
hófst hvarf
allur ótti
og ég fyllt-
ist þakklæti
og gleði.
Myndin er ofboðslega vel gerð,
fyndin og skemmtileg þótt
sagan sé dramatísk. Krakkarnir
blómstra í sínum hlutverkum,
mér fannst þau öll æðisleg og
Lúkas Emil líka. Best var samt
að skilaboðin eru mikilvæg,
að ekkert barn á að búa við of-
beldi.“
Hefur hann alltaf haft
áhuga á leiklist og fótbolta?
„Lúkas Emil ákvað þriggja
ára að verða leikari, skráði sig
á öll námskeið, setti upp leik-
sýningar og fór ekki fram hjá
stóru leikhúsunum án þess að
spyrja hvenær hann fengi að
stíga á svið. Það er dýrmætt að
læra strax í æsku að draumar
geta ræst ef þú leggur hart að
þér. Hvað fótboltann varðar þá
kom rúta að sækja KR-ingana
í Vesturbæjarskóla þegar hann
var sex ára. Allur bekkurinn
fór og hann með, þar til hann
lærði að elska boltann.“
Stefnir hann á atvinnu-
mennsku í fótbolta eða kannski
leiklist?
„Annað hvort. Það er
draumurinn. Sjáum hvað setur.“
K
vikmyndin Ég man þig, sem
gerð er eftir samnefndri bók
Yrsu Sigurðardóttur, var að
hluta kvikmynduð í Bakka
í Grindavík, sem er ein elsta uppi-
standandi verbúð á Suðurnesjum.
Minja- og sögufélag Grindavíkur
eignaðist húsið í maí 2015 og hef-
ur síðan unnið að því að gera það
upp.
Til allrar hamingju fyrir fram-
leiðendur myndarinnar voru
framkvæmdir við Bakka enn á
undirbúningsstigi þegar tökur
voru að byrja, en að þeirra sögn
var húsið eins og klippt út úr þeirra
draumahugmyndum um tökustað
fyrir myndina. Tökur fóru fram í
lok árs 2015.
„Félagið hyggst gera húsið upp
og hefja til vegs og virðingar að
nýju. Vonir standa til að í fram-
tíðinni muni það hýsa byggða-
safn okkar Grindvíkinga og aðra
menningartengda starfsemi,“ seg-
ir Marta Karlsdóttir, sem er gjald-
keri félagsins.
Fyrir stuttu bauð félagið upp á
sýningu á Ég man þig, Bakka og
verður önnur sýning nú um pásk-
ana, 30. mars klukkan 20. Miða-
verð er 500 krónur og rennur til
uppbyggingar hússins og komast
færri að en vilja, en einungis 30
geta séð myndina í hvert sinn. Er
líklega einsdæmi að hægt sé að sjá
kvikmynd hér á landi á tökustað
hennar.
Þeir sem vilja taka þátt í starfi
Minja- og sögufélagsins geta fund-
ið félagið á Facebook og kíkt á
opna fundi í Kvennó sem eru flest
miðvikudags-
kvöld klukkan
20.00.
Bjóða upp á sýningu Ég man þig í Bakka, tökustað myndarinnar
Eftir fyrri sýninguna
er búið að uppfæra
að hluta í VIP-
aðstöðu.
Bakki án endurbóta
Sýningarsalurinn í Bakka.