Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 19
28. mars 2018 fréttir 19 Maria verður fyrir fordóMuM n Fædd á Filippseyjum en flutti til Íslands fjögurra ára n Heyrir kallað „ding dong“ á eftir sér við tölum íslensku, við skiljum ekki hvað þú ert að segja?“ En maður verður bara svo hissa og vit ekkert hvernig maður á að bregð- ast við þessu? Mér fannst þá bara fyndið að sjá fullorðinn karlmann að láta eins og 5 ára. Á þetta allt saman að þykja í lagi? Rasismi er bara fáfræði og heimska að mínu mati. Þú ferð ekki að dæma heila þjóð út af því þú lentir kannski í nokkrum leiðinlegum útlendingum sem áttu slæman dag. Íslendingar eru mjög blönduð þjóð og því miður gleymist það. Allir eru blandað- ir, þú ert mjög líkleg/ur til þess að vera með danskt, norskt, írskt eða jafnvel tyrkneskt blóð í þér. Eins með okkur Filippseyingana, við erum líklegir til þess að vera með bandarískt, kínverskt og spænskt blóð í okkur. Og ef við myndum taka Bandaríkjamenn til dæmis, þeir eru búnir að blandast rosa- lega gegnum aldirnar að ég skil varla að það skuli vera rasismi í gangi. Fáfræði, ekkert annað.“ „Mamma mín sagði að allar taílenskar konur væru hórur“ Í tengslum við færsluna tók Maria saman sögur nokkurra ungra kvenna hér á landi sem hafa einnig hafa upplifað fordóma vegna upp- runa síns, eða vita um slík tilfelli. Fyrsta sagan kemur frá stúlku sem á breskan föður: „Versta dæmið sem ég man þá helst eftir er eflaust árið 2015 þegar hann var að fá sér í glas heima hjá sér og var með tónlist í gangi. Það var hringt á lögregluna vegna þess og þegar hún kom þangað og hann neitaði að hleypa þeim inn eins og við höfum öll rétt á að gera, þá var hurðinni bara nánast sparkað upp og hann laminn svo illa að hann endaði upp á bráðamóttöku, með brotin rifbein, innvortis blæðingar, höfuðáverka og fleira. Hann var á spítala í einhverjar vikur og gerðist þetta meðal annars stuttu eftir að það var ráðist á hann á bar í nágrenninu þar sem hann var einnig lagður inn á spítala í margar vikur með mjög alvarlega áverka þannig að hann var vart búin að jafna sig þegar þetta ger- ist. Pabbi minn er langveikur með ýmsa sjúkdóma og því orðinn mjög veikburða fyrir. Mestu fordómarn- ir hafa í rauninni verið frá lögreglu þessa lands.“ Saga 2: „Eitt sinn var vinkona mín að af- greiða mann. Hún heyrði ekki hvað hann sagði því það var svo mikið að gera og mikil læti, svo hún sagði „ha?“ Þá spurði maðurinn hvort hún kynni ekki íslensku og bað um einhvern sem kynni íslensku. Vin- konan svaraði honum og sagðist kunna  fullkomlega góða íslensku, hún hefði bara ekki heyrt í honum út af látunum.“ Saga 3: „Þegar vinkona mín var nýflutt til landsins vann hún sem þerna á hóteli. Gömul kona sá hana og sagði síðan við hana á ensku: „Þið útlendingarnir eruð að taka alla vinnuna frá okkur!“ Vinkona mín svaraði henni á ensku: „Nú, viltu vinnuna mína? Gjörðu svo vel!““ Saga 4: „Þegar ég var í 3. bekk þá lagði bekkjarsystir mín mig í einelti. Það byrjaði smátt og smátt en var aldrei neitt alvarlegt, en það var eitt skipti sem ég man ennþá eft- ir í dag.  Ég var í frímínútum með nokkrum krökkum að leika þegar þessi stelpa kom að mér og spurði hvort ég vildi frekar koma og leika við hana. Ég sagði  bara já og bauð henni að vera með okkur. Hún ákvað að rölta með mér aðeins frá hópnum og spurði alls konar spurninga, sumt skildi ég og sumt ekki. Spurningar hljómuðu svona: „Er mamma þin hóra?“ og Hvern- ig kom hún til Íslands?“ Svo end- aði hún á því að segja: „Mamma mín sagði að allar taílenskar kon- ur væru hórur“.  „Ég var bara krakki og skildi ekki hvað orðið hóra þýddi þannig ég sagði bara ekki neitt við hana. Mér fannst það mjög skrítið því hún var að hlæja að þessu og glotta skringi- lega til mín en ég ákvað bíða með það þangað til ég fór heim og spyrja mömmu og pabba hvað þetta allt þýddi. Ég man ennþá hvað pabbi var reiður þegar hann heyrði þetta, hann hringdi beint í mömmu stelpurnar og sagði henni frá þessu. Mamma reyndi að út- skýra fyrir mér hvað hún meinti með þessu og hvað þetta þýddi, ég man bara hvað það var erfitt að skilja en ég vissi að það þýddi eitt- hvað vont, eitthvað sem er ekki já- kvætt, og eitthvað sem er niðrandi.“ Saga 5: „Vinkonur mínar og nokkrir strák- ar sem ég þekki voru í Smára- lind. Þau voru hjá anddyrinu að spjalla saman á sínu tungumáli (filippseysku). Þá kom maður og spurði þau hvort þau töluðu ekki íslensku, þau svöruðu játandi og hann fór. Hann kom aftur  stuttu seinna og fór að kalla þau Kínverja og rasista og sagði að þau hefðu komið með svínaflensuna. Ekki nóg með það heldur reyndi maður- inn að fá strákana í slag. Þetta er það besta sem ég hef lent í: „8 Kín- verjar, komiði!“ Tek það fram að þá voru flestir þarna undir 18 ára.“ Saga 6: „Vinkona mín (sem er hálfur Ís- lendingur og hálfur Filippseying- ur) og kærastinn hennar voru að rölta niðri í bæ þegar einhver mað- ur sagði við þau upp úr þurru að þau væru ljótt par. Hann spurði hana hvort hún væri ekki Taí- lendingur, og að kærastinn henn- ar ætti að  „stick with his own race“ af því að hann væri íslenskur. En maðurinn sagði að lokum að hann væri stoltur rasisti.“ n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.