Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 56
56 sport 28. mars 2018 Tvö erfið ár Kolbeins - Er ljós við enda ganganna? Það hafa fáir í íslensku íþróttalífi upplifað jafn erfiða tíma og Kolbeinn Sigþórsson, framherji Nantes og íslenska landsliðsins, hefur gengið í gegnum um tæpra tveggja ára skeið. Ferill Kolbeins virtist vera að ná nýjum hæðum eftir frábært gengi á Evrópumótinu í Frakklandi árið 2016. Galatasaray, sem er stórlið í Tyrklandi, fékk Kolbein í sínar raðir og fram undan voru spennandi tímar hjá stóru félagi og undankeppni heimsmeistaramótsins að hefjast. Kolbeinn hefur frá því í ágúst árið 2016 ekki spilað alvöru leiki en ljósið við enda ganganna virðist nú brátt nálgast. Þessi ótrúlega sorgarsaga verður rakin hér. 3. júlí 2016 Hvern hefði grunað að þarna væri komið að tveggja ára pásu Kolbeins í lands- liðshópi Íslands? Skoraði eitt mark í stóru tapi en gekk af velli eftir mótið sem einn besti leikmaður Íslands. Nálgað- ist markametið og allt lék í lyndi. Evrópumótið var á enda en flestir töldu að bjartari tímar væru á næsta leiti fyrir Kolbein með fé- lagsliði sínu en þar hafði gengið erfiðlega. 27. júní 2016 Það er í raun ómögulegt fyrir ís- lenska knattspyrnuáhugamenn að gleyma kvöldinu í Nice þegar Ísland vann England á EM í sumarið 2016. Sigurinn sem fáir áttu von á nema íslenska lands- liðið varð að veruleika. Knattspyrnuþjóðin sem Ís- lendingar elska að horfa á var lögð að velli í Suður-Frakklandi. 2-1 sigur var staðreynd og ótrú- legur fögnuðu braust út þegar leik lauk en Kolbeinn skoraði seinna mark Íslands í leiknum sem tryggði sigurinn. 28. ágúst 2016 Þarna var síðasti leikur Kolbeins með aðal- liði til dagsins í dag. Hann lék rúmar 80 mínútur þegar Nantes tapaði fyrir Bordeaux í frönsku úrvalsdeildinni. Fram- herjinn virtist þó vera í fínu formi og sýndu stórlið í Evrópu honum áhuga sem gott gengi á Evrópumótinu hafði kveikt. 30. ágúst 2016 Kolbeinn var lánaður til Galatasaray í Tyrklandi, ástæðan fyrir því að félagið keypti hann ekki var sú að félagið hafði klárað fjármagn sitt til leikmannakaupa. Kolbeinn var hins vegar lánaður og planið var að stórliðið í Tyrklandi myndi kaupa hann næsta sumar. Galatasaray er sögufrægt stórlið og því var mikill heiður fyrir Kolbein að ganga í rað- ir félagsins. 2. septem- ber 2016 Eftir að hafa skrifað undir hjá Galatasaray fór Kolbeinn beint í verkefni með íslenska landsliðinu en hann varð að draga sig út hópnum skömmu eftir að hafa hitt liðið. Sagt var að Kolbeinn væri lítillega meiddur á hné og var ákveðið að hann færi beint til Tyrklands í með- höndlun. 5. september 2016 Meiðsli Kolbeins voru ögn alvarlegri en talið var í fyrstu og var ákveðið að skella honum í aðgerð. Aðgerðin átti að vera lítið mál og var sagt að íslenski framherjinn yrði frá í 3–4 vikur. Það átti eftir að breytast all- hressilega og við tóku miklir óvissutímar 9. maí 2016 Kolbeinn var valinn í hóp Íslands sem hélt á Evrópumótið í Frakk- landi, 23 leikmenn voru valdir og það kom engum á óvart að sjá Kolbein þar á með- al enda hafði hann verið einn besti leik- maður Íslands í mörg ár á undan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.