Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 33
Hlaup 28. mars 2018 KYNNINGARBLAÐ
Náttúruhlaup er einstök aðferð til að sameina mikla hreyfingu, útivist og náttúruupplifun og
gefur um leið tækifæri til að sjá landið
á nýjan hátt.
Við höfum uppgötvað lífsstíl sem
veitir okkur aukna hamingju og bætta
heilsu og viljum deila þessari upp-
götvun með öðrum. Margir sem hafa
ekki notið þess að hlaupa reglulega á
malbiki, læra að njóta þess með okkur
í náttúrunni. Við leggjum áherslu á
að njóta og hafa gaman og byggja
sig upp á skynsamlegan máta undir
handleiðslu sjúkraþjálfara.
Námskeið Náttúruhlaupa
Það er pláss fyrir öll getustig. Algjöra
byrjendur og vana hlaupara. Flest-
ir sem koma til okkar er þó fólk sem
hefur eitthvað fiktað við hlaup en ekki
fundið sig. Margir þeirra halda áfram.
Sem dæmi erum við með undirbún-
ingsnámskeið fyrir Laugavegskeppn-
ina. Af þeim 40 sem eru skráðir í
það eru mjög margir sem byrjuðu
að hlaupa með okkur. Grunnurinn er
þó að njóta og gera hlaup í náttúr-
unni að lífsstíl, svo er það val hvers
og eins hvort viðkomandi vilji auka
vegalengdir og keppa eða ekki.
Námskeið okkar hafa slegið ræki-
lega í gegn og við höfum ekki getað
annað eftirspurn. Vornámskeiðið
hefst í byrjun apríl og búið er að opna
fyrir skráningu á
www.natturuhlaup.is.
Hlaupaferðir fyrir alla
Í fyrra sumar fórum við nokkrar vel
heppnaðar hlaupaferðir innanlands.
Við endurtökum leikinn í ár og bæt-
um við utanlandsferð. Við skokk-
um Laugaveginn á tveim dögum
(sérstaklega vinsælt hjá þeim sem
dreymir um að taka þátt í Lauga-
vegskeppninni), erum með Þórs-
merkurferð þar sem vegalengdirnar
eru styttri en náttúran ekki síðri og
svo kvennaferð í Landmannalaugar.
Rúsínan í pylsuendanum er svo
ferð til Elbu á Ítalíu í maí þar sem við
tökum þátt í náttúruhlaupakeppni
og upplifum stemminguna í fallegum
hafnarbæ á eyjunni þar sem Napól-
eón var í útlegð. Flestir fara 20 kíló-
metra leið með 1.000 metra hækkun
(svipað og Fimmvörðuháls varðandi
vegalengd og hækkun). Einnig er
hægt að fara 40 kílómetra eða 60
kílómetra.
Þessar ferðir eru opnar öllum
hlaupurum og göngugörpum sem
vilja prófa að skokka í náttúrunni.
Gengið er uppámóti en skokkað á
jafnsléttu og niðrímóti. Elsti þátt-
takandinn sem er búinn að skrá sig í
Ítalíferðina er 71 árs, þannig að aldur
er afstæður :)
Skráning í ferðirnar eru á
www.nattúruhlaup.is
Allar alferðir okkar eru í samstarfi
við Íslenska fjallaleiðsögumenn.
Greiðslur fara í gegnum þá og við
störfum undir þeirra ferðaskrif-
stofuleyfi.
NáttúRuhLAup:
Hreyfing, útivist, upplifun