Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 65

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 65
menning 6528. mars 2018 Vinsælustu bækurnar Söluhæstu titlar Bóksölulista Fibut í febrúar 2018 Vinsælast í bíó Helgina 23. til 25. mars Vinsælast á Spotify Mest spilað 27. mars 2018 1 Þorsti - Jo Nesbø 2 Uppruni - Dan Brown 3 Myrkrið bíður - Angela Marsons 4 Óvelkomni maðurinn - Jónína Leósdóttir 5 Óþægileg ást - Elena Ferrante 6 Þitt annað líf - Raphaelle Giordano 7 Sigraðu sjálfan þig - Ingvar Jónsson 8 Elín, ýmislegt (kilja) - Kristín Eiríksdóttir 9 Súrkál fyrir sælkera - Dagný Hermanns- dóttir 10 Stígvélaði kötturinn - Stella Gurney 1 Víti i Vestmannaeyjum 2 Pacific Rim: Uprising 3 Tomb Raider 4 Andið eðlilega 5 Black Panther 6 Lói - Þú flýgur aldrei einn 7 Red Sparrow 8 Game Night 9 Fullir vasar 10 The Shape of Water 1 God's plan - Drake 2 Aldrei heim - Aron Can 3 SAD! - XXXTentacion 4 Dúfan mín - Logi Pedro og Birnir 5 Psycho - Post Malone og Ty Dolla $ign 6 Ungir strákar (deep mix) - Floni 7 Look alive - Blackboy JB og Drake 8 Út í geim - Birnir 9 Önnur tilfinning - Rari boys 10 Birnir og Herra Hnetusmjör - Já, ég veit Ákall um frið í Sómalíu N ajmo Fyasko framhalds- skólanemi sem er fædd í Austur-Afríkuríkinu Sómalíu en hefur búið á Íslandi undanfarin fjögur ár. Lag- ið sem hún mælir með frá upp- runalandi sínu nefnist Nabadaa naas la nuugo leh, en textann segir hún vera ákall til þjóðarinnar um frið og fyrirgefningu. Í texta lags- ins er lögð áhersla á að ef stríðið haldi áfram muni Sómalar aldrei geta lifað góðu og hamingjusömu lífi – en til þess þurfi þeir líka nýja stjórnarskrá og almennilegt stjórnkerfi. „Það sem þetta lag segir mér er hversu sárlega þjóð mín þarf á friði að halda, en það gerist ekki á meðan spillt ríkisstjórn er við lýði. Frá því að stríðið hófst í Sómalíu árið 1991 hefur það fyrst og fremst haft áhrif á hina verst settu – á fá- tæka fólkið, börn og konur – en flestir sómalískir karlmenn þurfa að berjast fyrir ákveðinn ættbálk í stríðinu,“ útskýrir Najmo. „Flestir sem eru í ríkisstjórn- inni, þar með taldir forsetinn og forsætisráðherrann, búa svo er- lendis í öruggri fjarlægð á meðan landið logar í stríðsátökum. Börn þessara manna búa í Evrópu og Bandaríkjunum, en ef þessi ríki vissu hvað landið hefur þurft að ganga í gegnum myndu þau raun- verulega reyna af öllu hjarta að hjálpa Sómalíu. Þá væri ekki þessi spilling og landið gæti komist upp úr hjólförunum og haldið áfram.“ Þetta stóð upp úr á HönnunarMars Pappírslistaverk Beu Szenfeld „Ég verð að segja að Design Talks, og þá sérstaklega fyrirlestur Beu Szenfeld, hafi staðið upp úr hjá mér. Szenfeld vinnur með pappír og býr til alveg ótrúleg listaverk úr þessum hversdagslega efnivið. Það var skemmtilegt að heyra hvernig upplifun hennar var þegar hún var að reyna fyrir sér sem fatahönnuður á hinum almenna markaði og svo eftir að hún breytti um stefnu og fór að vinna með pappírinn. Ég mæli með því að fólk kynni sér verk þessarar hæfileikaríku konu. Einnig verð ég að minnast á einhyrninginn hans Sam Rees í Nor- ræna húsinu. Svo fallega ljótur og alltaf skemmtilegt fyrir áhorfand- ann að geta einhvern veginn verið hluti af verkinu, í þessu tilviki að stjórna hreyfingum einhyrningsins.“ Eva María Árnadóttir fatahönnuður. Vélar og sniðmót lífsins „Það sem bar hæst hjá mér á HönnunarMars var sýn- ingin Forms of Life í Norræna húsinu. Sýningin var sett upp sem eins konar samtal við hátíðarsýningu Norræna hússins Innblásið af Aalto og sýndi svo skilmerkilega hvað hönnun getur verið fjölbreytt og í raun vítt hugtak. Allt frá nýtingu hliðarafurða í hönnun svo sem Studio Trippin, sem notar afurðir íslenska hestsins í sinni hönnun og framleiðslu, yfir í hönnun sem upplifun og umönnun, verk 1. árs nema í meistaranámi í hönnun. Á sýningunni mátti einnig sjá gagnvirkt (e. interactive) verk eftir Sam Rees þar sem úreltir daglegir hlutir, s.s. leikföng og áhöld, gengu í endurnýjun lífdaga og risu upp sem vélmenni eða furðuhlutir og gestum boðið að taka þátt í verkinu með fjarstýrðum skipunum á ýmist dansi, hljóðum og hreyfingum. Verk Kolbrúnar Þóru Löve og Li Yiwei höfðuðu einnig til mín, mjög ólík verk en áhugavert að sjá hvernig þær nota sama miðil á svo ólíkan hátt.  Eins fannst mér ánægjulegt að sjá hvernig sjálf- bærni og endurvinnsla var allsráðandi á Hönnunar- Mars í ár. Sér í lagi fannst mér áhugavert að sjá samstarf hönnunarteymisins Fléttu, Steinunnar Eyju Halldórs- dóttur og fatasöfnun Rauða krossins þar sem gallabux- ur voru endurnýttar í gólfteppi. Einnig veitti sænska hönnunarteymið M.U.S. mér mikinn innblástur en hópurinn nýtir iðnaðarafganga úr nærumhverfi sínu til framleiðslu á nýjum hlutum fyrir heimilið og útkoman mjög falleg.“ Helga Kjerúlf, listrænn stjórnandi og hönnuður. Stafrófsvél Eldjárns „Ég verð að viðurkenna að ég upplifði HönnunarMars að mestu leyti í gegnum samfélagsmiðla þar sem ég stóð vaktina á sýningu Genki Instruments í Hörpu. Ein sýning sem mér þótti þó virkilega áhuga- verð var Stafróf Þórarins Eldjárns þar sem Siggi Odds hafði hannað grafískt stafróf sem teiknað var á staðnum í rafrænni penna-teiknivél Halldórs Eldjárns. Það er eitthvað við það að nota tækni til að gera svo mannlegan hlut – að teikna með penna, en á hátt sem er algjörlega ógerlegur mann- inum – að teikna sama hlutinn í sífelldri endurtekningu án þess að skeiki milli- metra, sem mér þykir einstaklega heill- andi.“ Jón Helgi Hólmgeirsson vöruhönnuður. (mynd: Ragna Margrét Guðmunsdóttir) Tónlist að heiman:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.