Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 6
6 fólk 28. mars 2018 Frægir á fermingardaginn F ermingar standa nú yfir, en fermingar- dagurinn er einn af þessum stóru dögum í lífi okkar, dagurinn þar sem stórfjölskyldan og vinir koma saman og eiga góðan dag og færa fermingar- barninu gjafir. Við eigum flest minn- ingar um þenn- an merkisdag, bæði góðar og vandræða- legar,  það vand- ræðalegasta er kannski hvað tíska og fermingarfatnað- ur og greiðsla lítur ekki vel út mörgum árum síðar.  DV fékk nokkra þekkta einstak- linga til að rifja upp fermingardaginn og deila með lesendum mynd frá þessum merkisáfanga. ragna@dv.is Steinþór Hróar Steinþórsson leikari: „Ég og vinkona mín vorum miklir Fóstbræðraaðdáendur (og erum auðvitað enn), þættirnir voru í sýningu á þessum tíma. Við vorum að hvísla á milli og kvóta í þættina í kirkjunni og reyna láta hvort annað springa. Presturinn stoppaði athöfnina til þess að skamma okkur. Presturinn leit „btw“ út eins og Indriði.“ Þuríður Blær Jóhannsdóttir leikkona, 18. apríl 2004: „Ég var látin fara fremst með krossinn því ég var aftast í staf- rófinu. (og síðustu koma fyrstir, sagði presturinn). Ég var mjög feiminn unglingur svo það var mjög spennandi.“ Þórunn Högna, fagurkeri og blaðamaður á Hús og hýbýli, 14. apríl 1985: „Ég kveið mikið þessum degi þar sem ég þurfti að tala í pontu í kirkjunni, af því að ég var stærsta fermingarbarnið. Ég fór í hárgreiðslu og reif svo öll blómin úr hárinu á mér, fannst þau ekki töff. En svo þegar veislan var minnir mig að það hafi bara verið nokkuð fínt og ég fékk margar fallegar gjafir.“ Heiðar Austmann útvarps­ maður, 7. apríl 1991: „Eins og myndin gefur til kynna þá var ég 10 ára og við dvergamörk þegar ég fermdist.“ Diljá Ámunda dótt ir, almanna teng ill og vara borg ar­ full trúi, 12. apríl 1993: „Ég bjó erlendis á unglingsárunum. Svo ég kom bara heim til að fermast. Mætti bara í Hallgrímskirkju, fór í kuflinn, lærði trúarjátninguna frammi í anddyri. Og skellti svo í mig oblátu og messuvíni.“ Arnar Gauti Sverrisson lífsstílsmeist­ ari, 31. mars 1985: „Í minningunni var þetta skemmtilegur dagur og þá sérstaklega þegar maður horfir til þess að það eru fá augnablik í lífinu þegar allir í kringum fjölskylduna eru komnir saman, hvort sem um er að ræða vini eða fjölskyldumeðlimi, sem maður sér kannski ekki svo oft og gott var að hitta og njóta að spjalla við.“ Þórhallur Þórhallsson uppistandari, 6. apríl 1997: „Fermingardagurinn minn var dagurinn sem ég áttaði mig á því að ég mun segja og gera hvað sem er til að fá gjafir.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.