Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Síða 6
6 fólk 28. mars 2018
Frægir á fermingardaginn
F
ermingar
standa nú yfir,
en fermingar-
dagurinn er
einn af þessum stóru
dögum í lífi okkar,
dagurinn þar sem
stórfjölskyldan og
vinir koma saman
og eiga góðan dag
og færa fermingar-
barninu gjafir. Við
eigum flest minn-
ingar um þenn-
an merkisdag, bæði
góðar og vandræða-
legar, það vand-
ræðalegasta er
kannski hvað tíska
og fermingarfatnað-
ur og greiðsla lítur
ekki vel út mörgum
árum síðar.
DV fékk nokkra
þekkta einstak-
linga til að rifja upp
fermingardaginn og
deila með lesendum
mynd frá þessum
merkisáfanga.
ragna@dv.is Steinþór Hróar Steinþórsson leikari: „Ég og vinkona mín vorum miklir Fóstbræðraaðdáendur (og erum auðvitað enn), þættirnir voru í sýningu á þessum tíma. Við vorum að hvísla á milli og kvóta í
þættina í kirkjunni og reyna láta hvort annað springa. Presturinn stoppaði athöfnina til þess að skamma okkur. Presturinn leit „btw“ út eins og Indriði.“
Þuríður Blær
Jóhannsdóttir
leikkona, 18.
apríl 2004:
„Ég var látin
fara fremst með
krossinn því ég
var aftast í staf-
rófinu. (og síðustu
koma fyrstir,
sagði presturinn).
Ég var mjög
feiminn unglingur
svo það var mjög
spennandi.“
Þórunn Högna, fagurkeri og
blaðamaður á Hús og hýbýli,
14. apríl 1985: „Ég kveið mikið
þessum degi þar sem ég þurfti að
tala í pontu í kirkjunni, af því að
ég var stærsta fermingarbarnið.
Ég fór í hárgreiðslu og reif svo öll
blómin úr hárinu á mér, fannst
þau ekki töff. En svo þegar veislan
var minnir mig að það hafi bara
verið nokkuð fínt og ég fékk
margar fallegar gjafir.“
Heiðar Austmann útvarps
maður, 7. apríl 1991: „Eins og
myndin gefur til kynna þá var ég
10 ára og við dvergamörk þegar ég
fermdist.“
Diljá Ámunda dótt ir, almanna teng ill og vara borg ar
full trúi, 12. apríl 1993: „Ég bjó erlendis á unglingsárunum. Svo
ég kom bara heim til að fermast. Mætti bara í Hallgrímskirkju, fór í
kuflinn, lærði trúarjátninguna frammi í anddyri. Og skellti svo í mig
oblátu og messuvíni.“
Arnar Gauti Sverrisson lífsstílsmeist
ari, 31. mars 1985: „Í minningunni var þetta
skemmtilegur dagur og þá sérstaklega þegar
maður horfir til þess að það eru fá augnablik
í lífinu þegar allir í kringum fjölskylduna eru
komnir saman, hvort sem um er að ræða vini eða
fjölskyldumeðlimi, sem maður sér kannski ekki
svo oft og gott var að hitta og njóta að spjalla
við.“
Þórhallur Þórhallsson
uppistandari, 6. apríl 1997:
„Fermingardagurinn minn var
dagurinn sem ég áttaði mig á því
að ég mun segja og gera hvað sem
er til að fá gjafir.“