Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 23
28. mars 2018 fréttir 23
KYNNING
Flestir eru farnir að nota einnota kaffivélar sem hella upp á einn bolla
í einu á örskotsstund. Slíkar
græjur spara fólki mikinn
tíma en eru því miður langt
frá því að vera umhverfis-
vænar. Mikið rusl og óhófleg
plastnotkun eru fylgifiskar
einnota kaffivéla. Gamli
góði uppáhellingurinn er nú
aftur að sækja í sig veðrið og
helstu ástæðurnar fyrir því
eru nokkrar:
Í fyrsta lagi er þessi gamla
og góða aðferð mjög um-
hverfisvæn. Í stað plasts-
eða álúrgagns skilur kaffivélin
bara eftir sig pappírssíu og
kaffikorg. Pappírssían brotn-
ar niður í náttúrunni og spillir
ekki umhverfinu. Kaffikorgur-
inn er afar um-
hverfisvænn,
sé honum
sturtað niður
um eld-
húsvaskinn
hreinsar hann
lagnirnar. Ekki
síðri kostur að
geyma hann í
frysti yfir vet-
urinn og nota
sem áburð á
blómabeðin
er vorar.
Í öðru
lagi hella
nýmóðins
kaffivél-
ar upp
á kaffi á
örstuttum
tíma. Russell Hobbs-vélarn-
ar eru með úðakerfi þannig
að vatnið fer jafnt yfir alla
kaffihrúguna í síunni í stað
þess að lenda bara í miðj-
unni. Þannig nýtist kaffið afar
vel og það þarf minna kaffi í
lögunina en í eldri vélum.
Í þriðja lagi eru kaffivélarn-
ar frá Russell Hobbs afskap-
lega fallegar og eru sannköll-
uð prýði í eldhúsinu. Eins og
myndirnar hér bera með sér
eru þessar vélar til í nokkrum
útlitsgerðum. Þær eru einnig
til í ýmsum verðflokkum
þar sem þær dýrustu eru
stærstar og tilkomumestar í
útliti. Það er hins vegar hægt
að fá Russell Hobbs kaffivélar
á 9.900 kr.
Breska fyrirtækið Russell
Hobbs hefur framleitt og selt
heimilistæki í 60 ár og notið
stöðugrar velgengni. Kaffivél-
arnar frá Russell Hobbs eru
frábær kostur fyrir þá sem
vilja hella upp á gæðakaffi
með góðri samvisku og eiga
fallegan grip í eldhúsinu.
Sjá nánar á heimkaup.is.
RuSSEll HoBBS:
Hellum upp á kaffi með góðri
samvisku
Boðagrandi 22-24
Eldri borgurum sagt upp leigusamningi:
„Þetta er hefndaraðgerð“
Stóðu við sinn hluta
Hann segir að Naustavör hafi
að öllu leyti staðið við sinn
hluta leigusamninga við íbúa
og endurgreitt þeim leigutök
um sem kröfðust endurgreiðslu
í samræmi við dóminn.
„Mánaðarleg greiðsla þessara
aðila er nú lægri en annarra
íbúa og að sama skapi sitja þeir
nú við annað borð en yfirgnæf
andi meirihluti leigjenda og fá
jafnframt sömu þjónustu og
samið var um í upphafi,“ segir
Sigurður.
Að hans sögn var ekki hægt
að una við þetta ástand og því
var ákveðið að segja upp leigu
samningi fimmmenninganna
enda uppsagnarákvæði í gild
andi leigusamningi sem báðir
aðilar geta nýtt sér. Eins og áður
segir réðu sanngirnissjónarmið
för. „Viðkomandi aðilar gerðu
á sínum tíma leigusamning af
fúsum og frjálsum vilja sem
fólu í sér ákveðnar greiðslur
fyrir veitta þjónustu. Þeir kusu
síðan sjálfir að samþykkja ekki
nauðsynlegar breytingar á skil
málum leigusamnings svo
að hægt væri að veita áfram
óbreytt þjónustustig, sem er
meðal annars hornsteinn þeirr
ar hugmyndafræði sem býr að
baki leiguíbúða Naustavarar á
húsnæðismarkaði fyrir eldra
fólk,“ segir Sigurður.
Hann segir að þrátt fyrir
óánægju þessara tilteknu
einstaklinga þá séu í dag meira
en þrjú hundruð manns á
biðlista eftir íbúð hjá Naustavör.
„Það er ekki síst vegna þeirrar
þjónustu sem félagið veitir og
langflestir af þeim hafa leitað til
okkar vegna þess orðspors sem
ánægðir leigutakar hafa skilið
eftir sig,“ segir Sigurður. n