Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 4
4 28. mars 2018fréttir Það er staðreynd að … Hjólað á mölinni! S varthöfði skellti sér út að hjóla í tilefni af snjóleysi síðustu vikna. Kosningar í Reykjavík nálgast óðfluga og rúmlega helmingur af flokk- unum 12 sem ætla að bjóða fram vilja að borgarbúar hjóli í stað þess að keyra. Ljósin á hjólinu virk- uðu, keðjurnar á hjólinu voru vel smurðar og eins og allir vita er Svarthöfði alltaf með hjálm, því stefndi allt í ánægjulegan hjólatúr um Reykjavík. Þegar Svarthöfði var að njóta þess að svífa framhjá umferðinni á Grensásvegi rann hjólið í mölinni með þeim afleiðingum að undirrit- aður datt af hjólinu og meiddist þó nokkuð. Leiðin lá á slysadeildina þar sem þreyttir og fátækir heil- brigðisstarfsmenn sáu um að gera að sárunum. Talið barst að orsök- um óhappsins og sagði þá þreytta og fátæka hjúkkan við Svarthöfða að hann væri sá þriðji á nokkrum dögum sem hefði runnið á hjóli í mölinni sem hylur hjólastíga borg- arinnar. Tveir strákar hefðu brotið bein eftir að hafa dottið af hjóli í mölinni. Nú er Svarthöfði þannig gerður að honum finnst að ábyrgðin eigi ávallt að vera á herðum hæstráð- anda. Þannig mun Dagur B. Egg- ertsson borgarstjóri vera ábyrgur fyrir skólpinu sem lak í fyrrasumar og var nánast búið að gera út af við sjósund í Faxaflóa. Dagur er einnig ábyrgur fyrir Orkuveitu Reykjavík- ur, Svarthöfði viðurkennir reynd- ar að hann viti lítið um það batterí allt en það er örugglega eitthvað spillt. Þannig er Dagur borgarstjóri ábyrgur fyrir því að tveir strákar séu búnir að brjóta á sér fæturna. Það er algjörlega galið að borgar stjóri sé að fótbrjóta ung- menni eins og enginn sé morgun- dagurinn. Þótt vissulega hafi Dag- ur verið að reyna að sleppa því að fótbrjóta unga sem aldna með því að sanda göturnar þegar það er ís- ing og snjór þá er hann klárlega að reyna að fótbrjóta ungmenni með því að gleyma að sópa burtu sand- inum þegar það vorar. Annars er margt furðulegt við þetta ástarsamband borg- armeirihlutans við hjólreiðar. Það eru alltaf til peningar til að leggja hjólastíga, byggja brýr og þrengja götur en það er ekki hægt að halda þeim við. Það er hægt að sanda en ekki hægt að moka sandinum burt. Ungmenni eiga að hjóla með hjálm en þau mega ekki fá ókeypis hjálm í skólanum því börnin gætu farið að hugsa hlýlega til einhvers skipafyrirtækis. Svo vill borgar- stjóri að allir fari út að hjóla en stundar það að fótbrjóta ung- menni. n BuBBi falinn „Og veturinn er eins og dauður tittlingur, kald- ur og tómur,“ sagði Bubbi Morthens á Twitter í byrj- un vikunnar. Eins og áður var andlit Bubba falið á síð- um DV í síðustu viku. Í þetta skiptið var Bubbi falinn á bls. 53 í blaðinu. Óvenju fáar lausnir bárust sem bendir til þess að útsmoginn felustað- urinn hafi reynst lesendum erfiður. Hafdís Hallgríms- dóttir var dregin út í þetta skipti og hlýtur gjafabréf á veitingastað að launum. Ásjóna Bubba er síðan að sjálfsögðu falin í þessu tölu- blaði. Lesendur sem hafa uppi á goðinu geta sent lausnir í netfangið bubbi@ dv.is. Dvinnings- hafinn gjafabréf á veitingastað. Finndu Bubba í blaðinu Það eru fleiri tré á jörðinni en stjörnur í vetrarbrautinni Það er bara eitt land á milli Finnlands og Norður-Kóreu Allt að 90% kóalabjarna eru klamedíusmituð Að í könnun árið 2008 töldu 58% ungra Breta að Sherlock Holmes hafi verið til í alvörunni Það tekur eitt og hálft til þrjú ár að rækta einn ananas Svarthöfði inga Sæland leigir 148 fermetra íbúð frá Öryrkjabandalaginu á 110 þúsund krónur i nga Sæland, formaður Fólks flokksins, býr í fallegri fjögurra herbergja íbúð við Maríubaug í Grafarvogi. Íbúðin er 120 fer- metrar að stærð auk þess sem bíl- skúr fylgir eigninni. Heildarstærð eignarinnar er því 148 fermetrar. Inga leigir íbúðina af Öryrkja- bandalaginu en hún er lögblind og var á örorkubótum áður en hún fleytti flokki sínum inn á þing. Inga hefur búið í íbúðinni í rúm sjö ár eða frá því í febrúar 2011. Leigan var upphaflega 74.304 krónur, samkvæmt þinglýstum leigusamningi, en hækkaði í 95 þúsund krónur þann 1. febrúar 2012. Síðan þá hefur leigan hækk- að í takt við vísitölu neysluverðs sem þýðir að heildarleigan, sem Inga greiðir í dag, er um 110 þús- und krónur. Gera má ráð fyrir því að sambærileg eign væri leigð á um þreföldu því verði á almenn- um markaði. Með 1,7 milljónir í laun á mánuði Launaumslag Ingu hefur bólgnað hratt út eftir að hún varð þing- maður. Auk þingfararkaups upp á 1.101.194 krónur fær hún rúmlega 500 þúsund króna álag vegna þess að hún er formaður stjórnmála- flokks. Mánaðarlaun hennar eru því um 1.651.791 króna á mánuði að viðbættum föstum starfskostn- aði upp á 70.000 krónur á mánuði. DV sendi fyrirspurn á Ingu og spurði hvort stjórnmálaleiðtog- inn hefði íhugað að rýma til fyrir öðrum sem væru í verri stöðu og fara út á almennan leigumarkað. Til vara var spurt hvort hún hefði íhugað að flytja í minni íbúð hjá Öryrkjabandalaginu enda býr Inga ein í íbúðinni ásamt sambýlis- manni sínum, Óla Má Guðmunds- syni. Svör við þessum spurningum höfðu ekki borist þegar blaðið fór í prentun. Á dögunum fékk DV ábendingu um að Inga, sem er skráð sem annar af tveimur prókúruhöfum Flokks fólksins, hefði ráðið son sinn í launað starf sem skrifstofu- stjóri flokksins. Aðskilinni fyrir- spurn DV svaraði Inga á þá leið að það væri alrangt. Sonur hennar væri ekki búinn að fá eina einustu krónu í laun frá Flokki fólksins. „Nei, við vorum ekki að ráða neinn skrifstofustjóra,“ sagði Inga. Hún sagði að ábending sem barst DV hefði mögulega komið frá skrif- stofustjóra flokksins. „Það hef- ur kannski verið skrifstofustjór- inn sem sagði það, vegna þess að hann móðgaðist svo við að sonur minn væri að aðstoða okkur í sér- verkefni varðandi netið. Við erum ekkert voðalega góð á netinu en hann er ekki búinn að fá eina ein- ustu krónu í laun frá Flokki fólks- ins. Þetta er bara öfund […]. Þetta er bara út af því að hann er að hjálpa okkur með heimasíðuna,“ sagði Inga. n Inga Sæland - Formaður Flokks fólksins fær um 1,7 milljónir á mánuði í laun. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.