Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 72

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 72
72 28. mars 2018 20 ókeypis hlutir til að gera um páskana 1. Semdu páskalög. Það er til óteljandi fjöldi af jóla-lögum en skemmtileg lög um páskana eru af skornum skammti. Ef þú lendir í vandræð- um þá er hægt að taka jólalag og breyta textanum, til dæmis með að skipta út jólasveinum einum og átta og Andrési sem stóð utan gátta fyrir páskaegg af stærðinni átta og Andrési sem fór að verkja. 2. Sjósund er vaxandi áhuga-mál á meðal Íslendinga. Það kostar ekkert að dýfa sér í sjóinn og það venst furðu hratt. Fátt er meira hressandi en gættu þín og farðu þér ekki að voða. 3. Strandblak á Klambra-túni, á Siglufirði, á Flúð-um, í Nauthólsvík og víð- ar um landið er frábær skemmtun þegar veður er stillt. Þú þarft ekki að kunna mikið til að geta leikið þér í strandblaki. Það er ókeypis. 4. Það getur verið gaman að semja sögur til að segja börnum fyrir svefninn eða yrkja vísur sem ríma. Byrjaðu á að finna orð sem ríma og reyndu svo að púsla saman lítilli sögu í bundnu máli. Það er krefjandi og gott fyrir heilann. 5. Það kostar ekkert að fara í heimsókn til vina og vandamanna, nema þú þurfir að keyra langar vegalengd- ir. Þú færð yfirleitt meira út úr heimsóknum en öllum heimsins sjónvarpskvöldum. 6. Páskaeggjaleit. Laugar-dagurinn fyrir páskadag er sérsniðinn fyrir foreldrið sem ætlar að fela páskaeggin fyrir börnunum. Það er hægt að gera mjög skemmtilegan leik úr slíkri leit. Ef börnin eru eldri má gera leikinn eilítið kvikindislegri og út- búa gátur í anda Hávamála. 7. Tiltekt er afþreying sem kostar ekkert. Segðu geymslunni stríð á hendur og taktu hana rækilega í gegn. Þér líður vel eftir verkið og ert líkleg- ur til að finna alls kyns gamalt dót sem vekur minningar um liðna tíma. Þær verða ekki metnar til fjár. 8. AA-fundir eru ókeypis þótt tekið sé á móti frjáls-um framlögum. Þeir eru ekki lokaðir yfir páskana, þar get- ur þú heyrt reynslusögur, hitt fólk, hjálpað fólki eða fengið hjálp sjálfur. 9. Fjöruferðir eru hressandi og skemmtilegar, sérstak-lega ef börn eru með í för. Leiktu þér eins og barn og safn- aðu skeljum, slípuðum steinum eða forvitnilegum fuglshræjum. Það er hressandi að anda að sér sjávarloftinu. 10. Grasagarðurinn í Laugardal er einstök perla á sumrin, sér- staklega í þeirri veðurblíðu sem ríkt hefur undanfarnar vikur. Þar geturðu kynnt þér fróðleik um alls kyns plöntur. 11. Skelltu þér á djammið. DJ París Austursins heldur uppi í brjáluðu stuði í Egilsbúð í Neskaupstað laugardaginn 31. mars. Það er frítt inn og húsið verður opnað klukkan 23.30. 12. Miðvikudaginn 28. mars milli klukkan 19.00 og 20.00 er snjó- brettasýning á Ísafirði þar sem heimamenn sýna listir sínar. Vefur Ísafjarðarbæjar lofar tónlist og fjöri. 13. Leikir með fjöl-skyldunni kosta ekkert. Farðu með börnunum í snú snú, á leikvöll, í fótbolta eða frisbí. Börnin elska það og það er nærri því öruggt að þú hefur jafn gaman af því og börnin. 14. Ferðamenn greiða tugþúsundir fyrir það eitt að komast til Ís- lands og sjá sólarupprásina. Það er ómetanlegt sjónarspil, sér- staklega á vorin. Sólarupprásin er núna rétt um klukkan sjö að morgni. 15. Það kostar ekkert að gefa Rauða krossin-um fatnað sem þú notar ekki lengur. Farðu í gegn- um fataskápinn þinn og settu allt í poka sem þú hefur ekki notað í heilt ár. Gefðu Rauða krossinum fatapokann og gerðu þannig öðr- um kleift að nota það sem þú gast ekki notað. 16. Kræklingar vaxa víða í fjörum landsins og eru algjört hnoss- gæti sem kosta formúu á veitinga- stöðum. Tíndu eigin kræklinga og búðu til gómsæta rétti. 17. Stundaðu kynlíf. Það skiptir ekki máli hvort það er gott eða lélegt, það er ókeypis og skemmtilegt. Sumir láta til leið- ast og greiða fyrir slíkt, en það er bæði bannað, rándýrt og er óþarfi ef þú leggur á þig smá rómantík. 18. Bíó þarf ekki alltaf kosta peninga. Kynntu þér mál- flutning allra sem eru í framboði í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Sláðu upp nöfnum frambjóð- enda á Google og kíktu á hvað þeir hafa að segja. Það er algjört bíó. Þú gætir jafnvel fundið ein- hvern sem þú gætir hugsað þér að kjósa. 19. Hentu í naglasúpu. Losaðu þig við dós-irnar sem þú notar aldrei úr eldhússkápnum, allar skrítnu krukkurnar úr ísskápnum og stóra Costco-kassann sem rennur ekki út fyrr en eftir aldar- fjórðung. Ef það lyktar sæmilega þá fer það í súpuna. Ef súpan lykt- ar ekki nógu vel þá er hægt að taka til í kryddhillunni. 20. Taktu til í fataskápn-um. Það er að vora og því tilvalinn tími til að koma þykku, dökku vetrar- fötunum ofan í kassa til að það sé auðveldara að finna litríku sumar fötin. Páskarnir eru kærkomið tækifæri til að njóta sam- verustunda með fjölskyldunni eða einfaldlega gera sér dagamun. Þó að góðærið sé aftur komið á fullt er ástæðulaust að tæma veskið í hvert skipti sem eitt- hvað er aðhafst. DV tók saman nokkra hluti sem hægt er að gera um páskana og kosta ekki neitt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.