Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Qupperneq 72
72 28. mars 2018
20 ókeypis hlutir til
að gera um páskana
1. Semdu páskalög. Það er til óteljandi fjöldi af jóla-lögum en skemmtileg
lög um páskana eru af skornum
skammti. Ef þú lendir í vandræð-
um þá er hægt að taka jólalag og
breyta textanum, til dæmis með
að skipta út jólasveinum einum
og átta og Andrési sem stóð utan
gátta fyrir páskaegg af stærðinni
átta og Andrési sem fór að verkja.
2. Sjósund er vaxandi áhuga-mál á meðal Íslendinga. Það kostar ekkert að dýfa
sér í sjóinn og það venst furðu
hratt. Fátt er meira hressandi en
gættu þín og farðu þér ekki að
voða.
3. Strandblak á Klambra-túni, á Siglufirði, á Flúð-um, í Nauthólsvík og víð-
ar um landið er frábær skemmtun
þegar veður er stillt. Þú þarft ekki
að kunna mikið til að geta leikið
þér í strandblaki. Það er ókeypis.
4. Það getur verið gaman að semja sögur til að segja börnum fyrir svefninn eða
yrkja vísur sem ríma. Byrjaðu á
að finna orð sem ríma og reyndu
svo að púsla saman lítilli sögu í
bundnu máli. Það er krefjandi og
gott fyrir heilann.
5. Það kostar ekkert að fara í heimsókn til vina og vandamanna, nema þú
þurfir að keyra langar vegalengd-
ir. Þú færð yfirleitt meira út úr
heimsóknum en öllum heimsins
sjónvarpskvöldum.
6. Páskaeggjaleit. Laugar-dagurinn fyrir páskadag er sérsniðinn fyrir foreldrið
sem ætlar að fela páskaeggin fyrir
börnunum. Það er hægt að gera
mjög skemmtilegan leik úr slíkri
leit. Ef börnin eru eldri má gera
leikinn eilítið kvikindislegri og út-
búa gátur í anda Hávamála.
7. Tiltekt er afþreying sem kostar ekkert. Segðu geymslunni stríð á hendur
og taktu hana rækilega í gegn. Þér
líður vel eftir verkið og ert líkleg-
ur til að finna alls kyns gamalt dót
sem vekur minningar um liðna
tíma. Þær verða ekki metnar til fjár.
8. AA-fundir eru ókeypis þótt tekið sé á móti frjáls-um framlögum. Þeir eru
ekki lokaðir yfir páskana, þar get-
ur þú heyrt reynslusögur, hitt
fólk, hjálpað fólki eða fengið hjálp
sjálfur.
9. Fjöruferðir eru hressandi og skemmtilegar, sérstak-lega ef börn eru með í för.
Leiktu þér eins og barn og safn-
aðu skeljum, slípuðum steinum
eða forvitnilegum fuglshræjum.
Það er hressandi að anda að sér
sjávarloftinu.
10. Grasagarðurinn í Laugardal er einstök perla á sumrin, sér-
staklega í þeirri veðurblíðu sem
ríkt hefur undanfarnar vikur. Þar
geturðu kynnt þér fróðleik um alls
kyns plöntur.
11. Skelltu þér á djammið. DJ París Austursins heldur
uppi í brjáluðu stuði í Egilsbúð
í Neskaupstað laugardaginn 31.
mars. Það er frítt inn og húsið
verður opnað klukkan 23.30.
12. Miðvikudaginn 28. mars milli klukkan 19.00 og 20.00 er snjó-
brettasýning á Ísafirði þar sem
heimamenn sýna listir sínar. Vefur
Ísafjarðarbæjar lofar tónlist og fjöri.
13. Leikir með fjöl-skyldunni kosta ekkert. Farðu með
börnunum í snú snú, á leikvöll, í
fótbolta eða frisbí. Börnin elska
það og það er nærri því öruggt
að þú hefur jafn gaman af því og
börnin.
14. Ferðamenn greiða tugþúsundir fyrir það eitt að komast til Ís-
lands og sjá sólarupprásina. Það
er ómetanlegt sjónarspil, sér-
staklega á vorin. Sólarupprásin
er núna rétt um klukkan sjö að
morgni.
15. Það kostar ekkert að gefa Rauða krossin-um fatnað sem þú
notar ekki lengur. Farðu í gegn-
um fataskápinn þinn og settu allt
í poka sem þú hefur ekki notað í
heilt ár. Gefðu Rauða krossinum
fatapokann og gerðu þannig öðr-
um kleift að nota það sem þú gast
ekki notað.
16. Kræklingar vaxa víða í fjörum landsins og eru algjört hnoss-
gæti sem kosta formúu á veitinga-
stöðum. Tíndu eigin kræklinga og
búðu til gómsæta rétti.
17. Stundaðu kynlíf. Það skiptir ekki máli hvort það er gott
eða lélegt, það er ókeypis og
skemmtilegt. Sumir láta til leið-
ast og greiða fyrir slíkt, en það er
bæði bannað, rándýrt og er óþarfi
ef þú leggur á þig smá rómantík.
18. Bíó þarf ekki alltaf kosta peninga. Kynntu þér mál-
flutning allra sem eru í framboði
í sveitarstjórnarkosningunum í
vor. Sláðu upp nöfnum frambjóð-
enda á Google og kíktu á hvað
þeir hafa að segja. Það er algjört
bíó. Þú gætir jafnvel fundið ein-
hvern sem þú gætir hugsað þér að
kjósa.
19. Hentu í naglasúpu. Losaðu þig við dós-irnar sem þú notar
aldrei úr eldhússkápnum, allar
skrítnu krukkurnar úr ísskápnum
og stóra Costco-kassann sem
rennur ekki út fyrr en eftir aldar-
fjórðung. Ef það lyktar sæmilega
þá fer það í súpuna. Ef súpan lykt-
ar ekki nógu vel þá er hægt að
taka til í kryddhillunni.
20. Taktu til í fataskápn-um. Það er að vora og því tilvalinn tími
til að koma þykku, dökku vetrar-
fötunum ofan í kassa til að það
sé auðveldara að finna litríku
sumar fötin.
Páskarnir eru kærkomið tækifæri til að njóta sam-
verustunda með fjölskyldunni eða einfaldlega gera sér
dagamun. Þó að góðærið sé aftur komið á fullt er
ástæðulaust að tæma veskið í hvert skipti sem eitt-
hvað er aðhafst. DV tók saman nokkra hluti sem hægt
er að gera um páskana og kosta ekki neitt.