Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Side 37
Hlaup 28. mars 2018 KYNNINGARBLAÐ
Mývatnshlaupið er mikil upplif-un fyrir hlaupara, ekki síst út af mikilli náttúrufegurð svæð-
isins. Hlaupið var lengi draumur Mý-
vetninga og hann rættist loks 9. júlí
1995 þegar fyrsta Mývatns-mara-
þonið var haldið eins og sést í með-
fylgjandi frétt frá þeim tíma. Þá var
hlaupið heilt maraþon, 10 kílómetr-
ar og 3 kílómetrar. Núna, 23 árum
seinna, blómstar Mývatnsmaraþon-
ið ennþá. Er hægt að hlaupa heilt
maraþon, hálft maraþon, 10 kíló-
metra og 3 kílómetra skemmtiskokk.
Annar langþráður draumur er að
rætast, en það er utanvegahlaup
sem haldið verður föstudaginn 25.
maí og verður kynnt síðar.
Hlaupið er unnið í samvinnu við
íþróttafélagið Mývetning og einnig
Björgunarsveitina Stefán.
Mývatnsmaraþon verður haldið
laugardaginn 26. maí og er að venju
hlaupið í kringum vatnið. Hlaupið í
ár verður með sama fyrirkomulagi
og í fyrra, þ.e. ræst og endað við
Jarðböðin við Mývatn. Mývatns-
maraþonið er frábær upplifun fyrir
alla fjölskylduna þar sem náttúran
og landslagið leika gríðarlega stórt
hlutverk. Síðustu ár hafa Jarðböðin
við Mývatn og Mýflug staðið að baki
Mývatnsmaraþoninu en það er unnið
í samvinnu við íþróttafélagið Mývetn-
ing.
Þátttakendur geta valið úr fjórum
vegalengdum, maraþoni, hálfmara-
þoni, 10 kílómetrum og 3 kílómetrum.
Þetta verður heil helgi full af dagskrá
fyrir alla fjölskylduna, skemmtiskokk
og skemmtigöngur, tónlistaratriði og
fleira. Því ættu allir að finna eitthvað
fyrir sitt hæfi.
Full dagskrá fyrir helgina 25.–27.
maí verður kynnt eftir páska.
„Þessi braut er ein sú fallegasta
sem til er á Íslandi“
Hjónin Guðmunda Steinunn Sigur-
björnsdóttir og Gunnar Stefán Richter
eru á meðal fjölmargra ánægðra
þátttakenda í Mývatnsmaraþoninu.
Guðmunda tók fyrst þátt í hlaupinu
árið 2007: „Þetta var hugsað sem
löng æfing fyrir Laugavegshlaupið.
Þetta gekk mjög vel og ég fór á tím-
anum 3:55. Árið 2010 fór ég síðan á
nýju brautinni sem er enn í dag og þá
vann ég kvennaflokkinn á tímanum
3:42,“ segir Guðmunda.
Gunnar keppti í hlaupinu á árunum
2000–2005 með félögum sínum hjá
Námsflokkum Reykjavíkur en á þeim
árum hófst hlaupið kl. 21. „Þessi braut
er ein sú fallegasta sem til er á Íslandi
og mælum við hjónin algjörlega með
henni fyrir gæðastundir þar sem end-
að er í Jarðböðum við Mývatn,“ segir
Gunnar.
MývAtNSHLAupið:
Ein fallegasta hlaupaleið
landsins
27. maí, 2018: For-
skráningin er í fullum
gangi á www.my-
vatnmarathon.com
en skráningargjöldin
hækka 1. apríl.
Dagskrá á hlaupadegi:
42 km - Hefst kl 10.00
21 km - Hefst kl 12.00
10 km - Hefst kl 13.00
3 km - Hefst kl 13.00
innifalið í þátttökugjaldi
í hlaupum laugardaginn
26. maí er aðgangur í
Jarðböðin og hlaupa-
bolur. Einnig verða veitt
sérstök útdráttarverð-
laun. Þátttakendur
skulu vera mættir upp
í Jarðböð að minnsta
kosti 1 klst. fyrir hlaup.