Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 13
fólk - viðtal 1328. mars 2018
númeri og þóst vera ungur maður
sem gaf henni undir fótinn. Hún
kveðst hafa látist blekkjast.
„Hann sagði réttu hlutina. Ég
var ung og vitlaus og hann náði
mér bara,“ útskýrði Hrefna í sam
tali við DV. Seinna tók hún afdrifa
ríka ákvörðun um að hitta Magna.
„Þarna var hann orðinn klettur
í lífi mínu, trúnaðarvinur og að
stoðaði mig stundum fjárhags
lega, en ég hafði ekki auðvelt að
gengi að fjárhagsaðstoð á þeim
tíma,“ útskýrir Hrefna og segir að
svo hafi farið að hún hafi sofið tví
vegis hjá honum. „Það var með
samþykki beggja aðila.“ Hún ákvað
þó í kjölfarið að slíta sambandinu
við Magna, þar sem henni þótti
aldursmunurinn óþægilegur og
vildi ekki eiga í ástarsambandi við
hann. „Það er þá sem hann send
ir skjáskot á mig þar sem við sjá
umst sofa saman. Hann hafði falið
myndavél í stofunni og tekið allt
upp.“ Hrefna sagði að Magni hefði
hótað að senda myndskeiðið á
fjölskyldu hennar og jafnvel gera
það opinbert ef hún svæfi ekki aft
ur hjá honum. „Og þannig varð ég
fangi hans, sautján, átján ára göm
ul. […] Hann hótaði að eyðileggja
líf mitt með þessu myndbandi.“
Þá greindi Hrefna frá því að Magni
hefði reynt að þvinga hana út í
vændi og hefði auglýst hana til
sölu á Einkamál.
Hrefna fékk svo þá hugmynd
að hafa samband við rannsóknar
blaðamanninn Jóhannes Kr. Krist
jánsson. Í samtali við DV staðfesti
Jóhannes aðkomu sína að máli
Hrefnu og að hann hefði aðstoða
hana við að losna við Magna úr lífi
hennar. Hún lét fjölskyldu sína vita
um allt sem hafði gengið á og tek
in var skýrsla hjá lögreglu. Hrefna
sagði einnig:
„Ef ég hefði verið með meira
brotna sjálfsmynd, þá hefði ég get
að endað í vændi út af þessum
manni. Og þá fer maður að hugsa;
ætli honum hafi tekist ætlunar
verk sitt gagnvart annarri stelpu?“
Svanhildur stígur fram
Í eldri umfjöllun DV árið 2016
greindi Benedikt Guðmundsson,
fyrrverandi eiginmaður Svanhild
ar, frá því að Magni, sem er eins
og áður segir fyrrverandi sam
býlismaður Svanhildar, að hann
hefði byrjað að ofsækja hana í jan
úar 2015. Í umfjöllun DV var ekki
greint frá nafni Svanhildar en hún
ákvað nú að stíga fram og segja að
eins frá reynslu sinni af Magna. Í
eldri umfjöllun DV greindi Bene
dikt frá því að Magni hefði setið í
bíl sínum fyrir utan heimili Svan
hildar á gamlárskvöldi. Þá voru
fjölskylda Svanhildar og Benedikt
að fagna nýju ári. Þá mun Magni
hafa leikið sama leik á aðfanga
dagskvöldi það ár.
Magni hefur nú eins og áður
segir stofnað netsíðu þar sem
hann hefur skrifað hundruð blað
síðna af efni þar sem hann lýsir
yfir sakleysi sínu en sakar konurn
ar um geðveiki og hefur uppi hót
anir. Hlekk á heimasíðuna hef
ur hann svo sent á fjölmarga vini
Svanhildar á Facebook. Þá er hann
iðinn við að birta hinar ýmsu yfir
lýsingar á Facebook þar sem hann
kveðst ætla að opinbera hina og
þessa sem honum finnst vera
óvildarvinir sínir.
Svanhildur taldi að hún væri
laus við Magna eftir að umfjöll
un birtist í fjölmiðlum árið 2016.
En Magni kom aftur til Akureyrar
á haustmánuðum. Hann lét sér
ekki nægja að flytja í bæinn, held
ur kom sér fyrir við sömu götu og
Svanhildur er búsett við.
„Hann fer í göngutúra framhjá
húsinu mínu. Hann ekur framhjá
og stöðvar bíl sinn en heldur svo
áfram. Það er lítið hægt að gera við
því skilst mér, hann útskýrir það
með því að hann eigi heima í göt
unni. Hann flutti auðvitað hingað
til að komast sem næst mér,“ segir
Svanhildur og bætir við: „Hann
stendur oft úti þegar ég er að fara
í vinnuna en það fer dálítið eftir
veðrinu hvort hann sé í götunni.“
Svanhildur segir að eftir um
fjöllun fjölmiðla sé Magni varari
um sig og gæti sín sérstaklega á að
ofsækja hana án þess að lögregla
geti gripið í taumana. Þegar hann
birtist í verslunum eða elti hana
gæti hann sín á að segja ekkert við
hana. Það er þó ljóst á heimildar
mönnum DV að þeim þykir þrá
hyggjan mikil og alvarleg.
„Hann hefur sent hlekk á síð
una á alla vini mína. Þetta er mað
ur sem er ekki alveg í lagi,“ segir
Svanhildur og bætir við: „Þetta
hefur tekið á. Ég átti aldrei von að
hann kæmi aftur til Akureyrar.“
Svanhildur og Benedikt eiga
þrjú börn saman. Íþróttafrétta
manninn Guðmund, fjölmiðla
konuna Evu Björk og Einar Loga.
Tvö síðarnefndu hafa dregist inn í
einkennilegan hugarheim Magna
sem hefur lýst því yfir að hann ætli
að kæra Evu og barnabarn Svan
hildar, knattspyrnukappann Al
bert Guðmundsson. Hann tiltekur
þó ekki á þessari einkennilegu
síðu í hverju þær kærur eiga að
felast. Eva Björk benti Magna vin
samlega á að leita sér sálrænnar
aðstoðar og tók hann það óstinnt
upp.
Hafa ofsóknirnar haft áhrif á
þig?
„Þetta hefur tekið mikið toll,
það segir sig sjálft. Ég er alltaf vör
um mig. Hann kemur alla daga
fyrir utan hjá mér. Hann útskýrir
það þannig að hann búi í götunni
og þess vegna sé það eðlilegt. Þetta
hefur verið stöðugt,“ segir Svan
hildur. Hún starfar á sjúkrahúsinu
á Akureyri og fær góðan stuðn
ing frá vinnufélögum. „Ég verð að
líta á þetta á sem visst tímabil sem
gengur yfir. Hann er búinn að elta
mig í Bónus og Nettó. Fólk sem
þekkir mig persónulega en er ekki
endilega nánir vinir hefur verið að
láta mig vita þegar það hefur tek
ið eftir því að hann sé að fylgja
mér í þeim verslunum sem ég er
stödd í það og það skiptið. Hann
fær aldrei nein viðbrögð frá mér.
Ég horfi á hann eins og hann sé
ekki til.“
Óttast þú að vera ein á ferli?
„Ég fer ekki ein út að ganga á
kvöldin.“
Þetta hljómar eins og fangelsi.
Þú átt að geta farið í göngutúr.
„Já, þetta hljómar eins og fang
elsi. Ég á góða fjölskyldu og vini.
Það hjálpar mjög mikið. Það sem
er verst eru áhrifin á mitt nánasta
fólk og að það hafi dregist inn í
þessar ofsóknir. Honum er ekk
ert heilagt og hann birtist jafnvel
þar sem háöldruð móðir mín býr.
Þegar ég mæti honum, segir hann
ekki neitt en framkoman er ógn
andi.“
Oft er það hundurinn sem geltir
ekki sem er hættulegastur, skýtur
blaðamaður inn í. Svanhildur
samsinnir því og segir: „Fyrrver
andi eiginmaður minn er mest
hræddur um að hann fari algjör
lega yfir um einn daginn.“
Á næstu síðu er að finna ítar
legt viðtal við Margréti Valdi
marsdóttur, forstöðukonu rann
sóknarseturs í afbrotafræðum um
eltihrella. Aðspurð hversu algengt
það sé að áreiti og ofsóknir fari út í
líkamlegt ofbeldi svarar hún:
„Það hafa ekki verið gerðar
neinar viðamiklar rannsóknir á
þessu á Íslandi. Erlendar rann
sóknir sýna hins vegar að hegðun
sem byrjar sem svona áreiti leiði
oft til alvarlegra ofbeldis. Þetta
virðist eiga við um allar tegundir
af eltihrelli.“
Magni við DV: Þessu er lokið
Magni er eins og áður segir
með tvær Facebooksíður þar sem
hann deilir efni í gríð og erg. Önn
ur þeirra er með mynd af Magna
og Svanhildi sem einkennismynd
þrátt fyrir að hún hafi slitið sam
bandinu fyrir margt löngu. Er það
enn ein birtingarmynd ofbeldis
sem Svanhildur verður fyrir. Ekki
bólar samt sem áður á nálgunar
banni.
DV hafði samband við Magna
til að gefa honum færi á að svara
fyrir hinar alvarlegu ásakan
ir. Magni svaraði fyrirspurn DV á
þessa leið og lagði svo á:
„Nú ætla ég að stoppa þig af
strax. Hvernig dettur þér í hug að
hringja í þetta númer? Þú hefur
ekki leyfi til að hringja í mig. Nú
hættir þú því strax. Þessu er lok
ið og þú skalt ekki voga þér að
hringja í þetta númer aftur. Er það
skilið?“ n
Jóhannes Kr. aðstoðaði
Hrefnu við að sleppa undan
Magna.
Á heimasíðu sinni hefur Magni lýst yfir sakleysi með nokkuð undarlegum hætti. Telur hann
sig vera fórnarlamb.
Magni ætlar að kæra allt og alla og hefur birt lista á heimasíðu
sinni. Hefur hann lýst því yfir að hann ætli að kæra barnabarn Svan-
hildar, knattspyrnukappann Albert Guðmundsson. Hann tiltekur þó
ekki hvað hann á að hafa gert.
Skilaboð til Benedikts. Auðvelt er að álykta að um hótun sé að ræða.
Vildi nálgunarbann
Þrátt fyrir endurteknar ofsóknir og að hafa óskað eftir nálgunarbanni á Magna hafa
yfirvöld ekki orðið við slíku. Svanhildur segir lögreglu hafa gert sitt besta í málinu og
hafa mælt með því að hún myndi hafa dyr sínar kirfilega lokaðar með slagbröndum.
Þrátt fyrir tilmæli um slíkt hefur yfirvöldum þó ekki þótt ástæða til úrskurða Magna í
nálgunarbann. Minnir mál Svanhildar um margt á mál Hildar Þorsteinsdóttur sem fékk
neyðarhnapp frá lögreglu vegna ótta við Magnús Jónsson. fyrrverandi sambýlismann til
margra ára, en ekki nálgunarbann.
Magni gefur þá skýringu að hann eigi heima í götunni og því sé eðlilegt að hann sé þar á
ferð eða stoppi fyrir utan hús hennar.
Martröð Svanhildar: EltihrEllirinn Magni
koM aftur og flutti þá í götu Svanhildar
Valbjörn Magni
Björnsson, eða Magni
Linberg eins og hann
kýs að kalla sig í
dag, flutti í götuna
hjá konunni sem
hafði kært hann fyrir
ofsóknir