Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Page 38
Hlaup 28. mars 2018KYNNINGARBLAÐ
AstaZan frá Lifestream er af vísindamönnum, fjölmörg-um læknum og íþróttafólki
talið yfirburða gott andoxunarefni
fyrir íþróttafólk, langhlaupara og
aðra sem leggja mikið á líkama sinn.
AstaZan dregur úr og fyrirbyggir
harðsperrur, bólgur og eymsli í
vöðvum og sinum. Vöðvarnir jafna
sig fyrr eftir mikið álag og meiðsli.
Hlauparar eru því fljótari að jafna
sig á milli keppni og erfiðra æfinga.
AstaZan viðheldur styrk og eykur
þol vöðvanna, vinnur gegn og lagar
sinaskeiðabólgu og er frábært fyrir
þreytta og auma fætur.
Margir hlauparar sem keppa
að því að auka árangur sinn í
hlaupum telja að AstaZan sé mik-
ilvægur stuðningur til að ná betri
tíma og endurheimtin er greini-
lega hraðari. Hlaup utanvega og
fjallahlaup reyna á allan skrokkinn og
þá er gott að hafa AstaZan þar sem
það er gott við bólgum, eymslum,
festumeinum.
AstaZan er ein öflugasta andox-
unarvörn sem vitað er um og nær
virknin til stoðkerfis, heila, tauga,
húðarinnar og styður hjarta og
æðaheilsu samkvæmt viðurkenndum
vísindarannsóknum. Aukin styrkleiki
varnarkerfis melaníns í húðinni veld-
ur því að húðin brennur síður í sól og
verður mun fyrr fallega sólbrún. Þar
sem hlauparar hlaupa oft líka í mikilli
sól er kostur að AstaZan styrkir varn-
ir húðarinnar. Ávallt skal þó líka nota
góða sólarvörn.
Líkamsræktarfólk mælir með Ast-
aZan
Margar rannsóknir hafa sýnt fram á
góða virkni astaxanthin í Lifestream
AstaZan fyrir stoðkerfið, auk þess
segjast margir finna fyrir meira þoli
og úthaldi við áreynslu. Margir vitna
um að hafa losnað við festumein,
bólgur og verki við notkun á AstaZan.
Í blindprófs samanburðarrannsókn
jók lyfleysuhópurinn vöðvaþol um
22% á 12 vikum meðan astaxant-
hin-hópurinn jók þol og styrk vöðva-
nna um 62%. Astaxanthin-hópur-
inn fékk einnig minni harðsperrur,
minni eymsli og hraðari endurheimt.
Hlauparar og aðrir íþróttaiðkendur
segjast finna mikinn mun við að nota
AstaZan, aukið þol og styrk vöðva
við álagsæfingar og það dregur úr
harðsperrum og beinhimnubólgu.
AstaZan fæst í öllum apótekum,
í Heilsuhúsinu, Hagkaupum, Nettó,
Grænni heilsu, Fjarðarkaupum og
Fríhöfninni.
AstaZan er hjálpin sem enginn
hlaupari ætti að vera án
Þannig segir Mark Kislich, hinn þekkti líkamsrækt-
ar- og elíte-þrekþjálfari hjá Sporthúsinu: „AstaZan
frá Lifestream er eina bætiefnið sem ég mæli með
fyrir alla. Hvort sem það er afreksfólk í íþróttum
eða þeir sem stunda líkamsrækt, þá er AstaZan
eitt af fáum bætiefnum sem þú virkilega finnur
mun og sérð framfarir af. Færð meiri orku, líður
betur og allt er auðveldara og skemmtilegra. Sjálf-
ur get ekki hugsað mér að vera án AstaZan.“
Sjöfn Jónsdóttir, fimleikaþjálfari og klifurmeistari,
segir: „Ég var orðin slæm í líkamanum eftir áratuga
kennslu í klifri og íþróttum en þegar ég byrjaði á
AstaZan losnaði ég við strengi, stirðleika, bólgur
og eymsli í líkamanum. Með AstaZan fékk ég meira
vöðvaþol og losnaði við gigtarverki. Virknin sýndi
sig ótrúlega fljótt. Ég hef núna almennt meira út-
hald og styrk, mér líður mikið betur.“
Þá skrifar hinn þekkti lífsstílsbloggari, Gyða Dröfn,
um AstaZan, en færslan er ekki kostuð og hún
keypti vöruna sjálf:
„AstaZan eru litlir belgir sem innihalda andoxun-
arefnið astaxanthin. Mikið hefur verið talað um
andoxunarefni seinustu ár, enda eru kostir þeirra
fjölmargir. Það sem þetta sérstaka andoxunar-
efni gerir er til dæmis að styrkja og vernda húð-
frumurnar, svo húðin brennur síður í sól. Ég hef oft
tekið E-vítamín til þess að hjálpa húðinni minni –
enda er það einstaklega gott fyrir húðina.
AstaZan hjálpar líka til við að hjálpa vöðvunum
og liðunum að jafna sig eftir æfingar. Ég finn til
dæmis alltaf fyrir því þegar ég tek það, að ég fæ
miklu minni strengi eða harðsperrur! Líka ef ég fæ
strengi, þá eru þeir einhvern veginn miklu vægari
og ekki svona sárir eins og þeir verða stundum, ef
maður er t.d. að gera nýjar æfingar.“
AFrEkSFóLk oG LÍkAMSræktAr-
FröMuðir bErA AStAZAN VEL
SöGuNA