Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 47
GRÆJUR
28. mars 2018
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
Myndaapp er ný og spennandi viðbót sem mun gera skólastarf sýnilegra.
„InfoMentor er hugbúnaðarfyrirtæki
sem býður upp á kerfi fyrir leik- og
grunnskóla. Þetta er íslenskt hugverk
og fyrirtækið er með höfuðstöðvar á
Íslandi, en Mentor er með starfsstöðv-
ar í fimm löndum“ segir Gunnur Líf
Gunnarsdóttir hjá InfoMentor, en hún
er einn þriggja ráðgjafa sem þjónusta
íslensku skólana.
„InfoMentor kerfið er hannað til að
aðstoða kennara við alla sína vinnu og
þá sérstaklega við að halda utan um
hæfninám samkvæmt aðalnámskrá
grunnskóla. Með hæfninámi eru hæfni-
viðmið veigamikill þáttur en þau eru
lýsing á hæfni sem nemendur eiga að
stefna að. InfoMentor auðveldar skólum
að innleiða hæfninám og halda utan
um námsmat sem byggir á hæfni nem-
enda. Þannig er kerfið tæki kennara til
að halda vel utan um hvern einstakling,
halda utan um námsmat og í raun allt
sem viðkemur kennslu og skólastarfi.
Fyrir skólann er kerfið frábær lausn
til að halda utan um allt á einum
stað, allar upplýsingar um nemendur
skólans, bæði hvað varðar ástundun,
upplýsingar til foreldra og alla vinnu
innan skólans. Allir nemendur og for-
eldrar þeirra hafa aðgang að kerfinu
og geta fylgst vel með stöðu nemand-
ans jafnt og þétt yfir skólaárið, geta
séð þau viðfangsefni og verkefni sem
nemandinn er að vinna í, fengið fréttir
frá skólanum, fylgst með viðburðum,
séð hvað er framundan í skólastarfinu
og fleira“ segir Gunnur Líf. „Kerfið býður
upp á marga möguleika fyrir kennara
og er það hver skóli sem ákveður hvaða
lausnir hann nýtir. Kennarinn getur
tengt áætlanir, verkefni og námsefni
og sett fram á skýran hátt fyrir nem-
endur. Samhliða þessu gefst kennurum
tækifæri til að efla samstarf sitt því þeir
geta miðlað efni, afritað og endurnýtt
innan síns skóla og jafnvel sveitarfé-
lags.“
Hjarta kerfisins er að halda vel utan
um nám og námsmat nemenda
„Kerfið er hugsað til að auðvelda
stjórnendum og kennurum, við viljum
að vinna kennarans við skráningu á
námsmati verði einfaldari, námsmatið
verði áreiðanlegra og að nemendur fá
skýrari upplýsingar um eigin árang-
ur og hvar þeir geta bætt sig. Það er
gríðarlega mikilvægt fyrir nemendur og
foreldra þeirra að geta séð með skýr-
um hætti hver staða nemandans er og
að viðmiðin séu alltaf skýr, jafnt og þétt
yfir skólaárið.
Mentor var stofnað árið 1990 þá
sem Menn og mýs. Það var svo árið
2000 sem fyrirtækinu var skipt upp og
varð Mentor. Í dag heitir bæði fyrirtæk-
ið og kerfið okkar InfoMentor sem er
það vörumerki sem við notum á öllum
mörkuðum. Frá upphafi hefur fyrirtæk-
ið unnið með skólum og er því komið
með góða reynslu af rekstri og þróun
náms- og upplýsingakerfa. Mikil þróun
hefur orðið á síðustu árum og hefur
kerfið fylgt nýrri hugsun og nýjum
áherslum í skólastarfi,“ segir Gunnur
Líf.
„Við viljum leggja okkar af mörkum
og hjálpa skólum að byggja upp öflugt
skólakerfi þar sem stuðlað er að alhliða
þroska, velferð og menntun hvers og
nemanda. Okkar kjarnahugmynda-
fræði er að allir nemendur eigi að fá
tækifæri til að hámarka sína hæfni.
Með það í huga bjóðum við skólum
þekkingu, þjónustu og lausnir í takt við
nútíma tækni, nútíma kennsluhætti og
skólaþróun.“
Socratess – sjálfsmat fyrir skóla
Nú á nýju ári settum við í loft-
ið Socratess sem er sjálfsmat fyrir
skóla, www.socratesss.is. Socratess
er ókeypis verkfæri sem auðveldar
skólum að meta hvar þeir eru staddir á
vegferðinni við að innleiða hæfninám í
sínum skóla. Í Socratess er sjónum beint
að skipulagningu námskrár, kennslu,
samskiptum og samvinnu, námsmati
og greiningu á námsmati. Skólastjórn-
endur, kennarar eða jafnvel kennara-
teymi svara spurningum sem settar eru
fram á vefsíðunni og fá góðar og hald-
bærar niðurstöður sem geta varpað
ljósi á þætti sem vel eru gerðir í skólan-
um og um leið fengið vísbendingar um
hvað má bæta í skólastarfinu.
Að þróa skóla frá hefðbundinni
kennslu og námsmati, með áherslu á
próf og einkunnir í tölustöfum, yfir í nám
þar sem stefnt er að ákveðinni hæfni,
er krefjandi en um leið spennandi
verkefni. Socratess matskerfið byggir
á rannsóknum og kenningum viður-
kenndra fræðimanna og hægt er að
lesa sér nánar til um það á vefnum
sjálfum. Socratess er einnig gefinn út í
Svíþjóð og Bretlandi. Spurningarnar og
faglegt efni byggja á sama módeli en
efnið er lagað að námskrá hvers lands
og stöðu
Það er von okkar að skólar geti nýtt
sér Socratess til að fá vísbendingar um
hvar þeir eru staddir og að þeir geti nýtt
sér niðurstöður sem umræðugrundvöll
til frekari þróunar. Socratess er ekki
hugsaður sem endanlegur sannleik-
ur heldur til að fá fólk til að hugsa um
stöðu náms og kennslu í sínum skóla.“
Myndaappið er nýr og spennandi
valmöguleiki
„Núna í þessari viku vorum við að setja
í loftið nýtt app sem er mjög spennandi
valmöguleiki fyrir kennara, tækifæri
til að gera skólastarf sýnilegra fyrir
foreldra,“ segir Gunnur Líf. „Þetta er
mynda- og myndbandaapp, sem heitir
InfoMentor media, eða Myndaappið.
Kennarar geta náð í appið á tæki skól-
ans og þannig er hægt að taka myndir
og myndbönd af nemanda eða verkum
nemenda og setja inn í námsmöppu
hans og – eða sem viðhengi við viðkom-
andi námsmat hjá hverjum nemanda.“
Infomentor er í flestum grunnskólum
landsins
Infomentor er notað í flestum grunn-
skólum á landinu, eða um 90%, og
nokkrum leikskólum.
„Hver nemandi er með sinn aðgang
að kerfinu, þannig að nemendur geta
sjálfir séð „Hvernig stend ég?,“ og við
heyrum það frá nemendum, þeir kalla
eftir að fá að vita hvar þeir standa og
hvaða viðmið þeir eru að vinna með og
þarna hafa þeir tækifæri til þess jafnt
og þétt yfir skólaárið.
Infomentor er hugsað sem vinnu-
sparnaður fyrir kennara, kerfi sem er
einfalt að vinna við og sem mun að-
stoða þá til framtíðar, kennsluáætlanir
og annað eru geymdar í kerfinu, þannig
safnast saman góður banki hjá skólan-
um, sem hægt er að nýta áfram.
Nemendur, foreldrar og kennarar
eru með góðar upplýsingar í kerfinu,
þannig að allar almennar upplýsingar
eru sýnilegar og það ætti ekkert að
koma á óvart,“ segir Gunnur Líf.
Allar nánari upplýsingar má finna á
heimasíðu Infomentor: infomentor.is,
Facebook: infomentor.is og á YouTube
rásinni: InfoMentorIsland.
INFOMeNTOr:
öflugt kerfi sem heldur utan
um námsmat nemenda
Íslenska teymið: Andrea Gunnars-
dóttir, Gunnur Líf Gunnarsdóttir og
Bryndís Böðvarsdóttir.