Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Blaðsíða 53
5328. mars 2018
Í
keppninni Sterkasti maður
Íslands sumarið 1991 háðu
Magnús Ver Magnússon og
Hjalti Úrsus Árnason harða bar
áttu um fyrsta sætið í Hljómskála
garðinum og voru langt á undan
öðrum keppendum í stigaskor
un. Magnús vann og fór í kjölfar
ið til Tenerife á Kanaríeyjum og
vann sinn fyrsta titil sem sterkasti
maður heims. Það sem vakti þó
helst athygli varðandi keppnina á
Íslandi var ekki sviti og tár krafta
jötnanna heldur dvergakastið sem
aldrei var keppt í.
Vinsælt á börum
Dvergakast átti að vera sýn
ingargrein í keppninni og hug
myndin kom frá Bandaríkjunum.
Þar vestra er dvergakast gjarnan
stundað á börum en einnig hef
ur verið keppt í greininni á afl
raunamótum. Kastið fer þannig
fram að dvergurinn er með hjálm
og er klæddur í hlífðarbúning með
áföstum handföngum. Síðan kasta
menn dvergnum eins langt og þeir
geta og hann lendir á dýnu. Ætla
má að ítrustu öryggiskröfum hafi
þó ekki alltaf verið fylgt á börun
um.
Dvergheilkennið er mjög sjald
gæft og því ekki alltaf auðvelt að
finna einstakling sem er viljug
ur að láta kasta sér. Hjalti Úrsus
stóð að keppninni en mótsstjóri
var Sveinbjörn Guðjohnsen sem
að sögn Hjalta átti hugmyndina
að dvergakastinu. Sveinbjörn,
sem er bróðir Viðars Guðjohn
sen, frambjóðanda í leiðtoga
kjöri Sjálfstæðis flokksins til borg
arstjórnar, var nýverið í fréttum
vegna nektarmynda á músarmott
um sem fyrirtæki hans Bílabúðin
H. Jónsson & Co. lét prenta. Sjálf
ur hafði Hjalti einu sinni próf
að dvergakast, í Bretlandi. Sam
kvæmt viðtali í Fréttablaðinu árið
2005 kastaði Hjalti ekki eigin
legum dverg heldur smávöxnum
manni sem lenti illa en hlaut
engan varanlegan skaða af.
Öryrkjabandalagið sagði
greinina „siðleysi“
Hjalti kaus að ræða málið ekki nú.
En samkvæmt í viðtali við DV árið
1991 sagði hann að mótshaldar
ar hafi þurft að hverfa frá þess
um áformum vegna mótmæla og
af því að erfitt reyndist að fá dverg
til að kasta. Búið var að hafa sam
band við
umboðs
aðila í
Bandaríkj
unum og
von var á
viljugum
dverg frá Mi
ami. En það
datt upp fyrir
og enginn
annar dverg
ur fannst til
verksins.
Dverga
kast er mjög
umdeilt víða
og ólöglegt á
mörgum stöðum. Þykir mörgum
þetta niðurlægjandi og minna á
viðundrasýningar sem algengar
voru á 19. öld og fyrri hluta 20. ald
ar. Í yfirlýsingu frá Öryrkjabanda
laginu í aðdraganda keppninnar
árið 1991 var lýst yfir megnri reiði
og andúð á því að hafa dvergak
ast á dagskrá mótsins: „Samtök
in benda á að það sé algjört sið
leysi að ætla sér
að nota fötlun fólks sem „skemmti
atriði“ og á engan hátt samboðið
íslensku velferðarþjóðfélagi.“
Þá sagði Páll Skúlason sið
fræðingur í aðdraganda keppn
innar að það orkaði tvímælis að
rugla saman íþróttaleik og sirkus
sýningu. „Mér finnst það vafasamt
og ekki samræmast anda íþrótt
anna.“
Hjalti sagði hins vegar að það
hefði aldrei verið ætlunin að særa
neinn. Hann sagði þá:
„Þó að það hafi enginn haft
samband við mig beint finn ég
að allt þetta tal um dvergakast
hefur fallið í slæman jarðveg og
vakið upp óvild. Þetta er því að
snúast upp í andhverfu sína því
meiningin var að koma með góða
ímynd af heilbrigðum íþróttum á
mótinu.“
Bætur vegna dvergakasts
Þó að Magnús, Hjalti og félagar
hafi ekki fleygt dvergum í Hljóm
skálagarðinum sumarið 1991 þá
hefur dvergakast verið stundað
á Íslandi, og með alvarlegum af
leiðingum. Í ágúst árið 2007 var
haldin íþróttahátíð hjá fram
haldsskólum á Austurlandi, köll
uð Austfirsku ólympíuleikarnir.
Þar var keppt í grein sem var köll
uð dvergakast en öðruvísi en hefð
bundna greinin að því leyti að
tveir nemendur köstuðu „dverg“
(öðrum nemanda) yfir slá.
Ein stúlka var hvött af
áfangastjóra Verkmenntaskóla
Austurlands til að taka þátt þar
sem hún væri lítil og nett. Öðrum
piltanna sem köstuðu henni skrik
aði fótur með þeim afleiðingum
að hún slasaðist á öxl í fallinu.
Fékk hún átta prósenta varan
lega örorku og var ríkið dæmt
til að greiða henni rúmar fjórar
milljónir í bætur vegna málsins. n
tímavélin
→ Inni- og útimerkingar
→ Sandblástursfilmur
→ Striga- og
ljósmyndaprentun
→ Bílamerkingar
→ Gluggamerkingar
→ Prentun á símahulstur
→ Frágangur
... og margt fleira
Skoðaðu þjónustu
okkar á Xprent.is
SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS
Fljúgandi diskur yfir Sjómannaskólanum
„dularfulla fyrirbrigði“ reyndist
vera loftbelgsræksni og nokkrir
strákpattar höfðu sett eld í svo
hann logaði allur að innan, er
hann komst á loft. Hafa þeir
„geimsjáendur“ sjálfsagt hrokk
ið upp við vondan draum og haft
síðan hljótt um sig frá því.“ n
Ufo Morgunblaðið 11. janúar 1967
Hjalti dregur trukk í keppninni, DV 1991.
Kraftajötnar vildu kasta
dverg í Hljómskálagarðinum
Dvergakast