Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Side 57
sport 5728. mars 2018
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum. Einnig
sjálflímandi filt til að klæða skúffur og filt með verjandi
efni svo ekki falli á silfur og silfurplett. Við eigum líka
fægilög, fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
Sjálflímandi hnífaparaskorður
Frakkastíg 10 | Sími 551 3160 | gullkistan@vortex.is | www.thjodbuningasilfur.is
Sendum í póSt-
kröfu
Tvö erfið ár Kolbeins - Er ljós við enda ganganna?
23. nóvember 2016
Kolbeinn hélt til Barcelona í með-
höndlun, endurhæfingin eftir að-
gerðina gekk ekki vel og því var
ákveðið að senda hann til Katalóníu.
Þar vonaðist hann til þess að fá lausn
á vanda sínum en það gekk ekki eftir
og aftur fór framherjinn til Tyrklands
og reyndi að koma sér í gang.
13. júlí 2017
Nánast ekki neinar fréttir bárust af Kol-
beini í hálft ár þangað til 433.is greindi frá
því þann 13. júlí 2017 að hann hefði farið
í aðra aðgerð á hné.Það mun vera hættu-
legur leikur að skera upp á sama stað oft-
ar en einu sinni en eftir langa endurhæf-
ingu var það eina lausnin. „Staðan á mér
eftir þessa aðgerð er góð og ég finn það
sjálfur að ég er allur að koma, sú stað-
reynd gefur mér góða bjartsýni á fram-
haldið. Ég er mjög bjartsýnn á að þetta
fari rétta leið og eins og staðan er í dag
lítur þetta mjög vel út með framhaldið,“
sagði Kolbeinn á þessu augnabliki.
26. október 2017
Kolbeinn var að þessu sinni í endur-
hæfingu á Íslandi en fór til Frakk-
lands reglulega í læknisskoðun. Í lok
október árið 2017 bárust fréttir af því
að Kolbeinn væri að einhverju leyti
byrjaður að æfa með Nantes en æf-
ingarnar fóru svo á fullt í janúar og
síðan þá hefur Kolbeinn æft með
franska liðinu
11. mars 2018
Kolbeinn spilar sinn fyrsta
knattspyrnuleik í 19 mánaða
með varaliði Nantes, en
hann lék 65 mínútur í leikn-
um. Stórt skref í endurhæf-
ingu Kolbeins var að koma
við sögu í leik, en skömmu
áður höfðu borist fregnir af
því að hann hefði hafnað
Gautaborg í Svíþjóð.
16. mars 2018
Það kom einhverjum á óvart að
sjá Kolbein aftur í íslenska landsliðs-
hópnum eftir tuttugu mánaða fjar-
veru. 29 leikmenn voru valdir í ver-
kefnið. Framherjinn knái lék þessa
sömu helgi aftur með varaliði Nantes
og skoraði þá tvö mörk. Endurkoma
framherjans í fullu fjöri.
29. desember 2016
Galasararay missir þolinmæðina gagnvart Kolbeini og nær
samkomulagi við hann um að rifta samningnum. Ástæðan var sú að
í Tyrklandi ríkja reglur um fjölda erlendra leikmanna og til að ná að
bæta við leikmanni sem gæti spilað þurfti félagið að losa sig við
framherjann.
19.–25.
mars 2018
Kolbeinn kom til móts
við landsliðið í Santa
Clara í Kaliforníu en
þá kom í ljós að hann
glímdi við meiðsli í
nára. Meiðslin héldu
honum frá báðum
leikjum liðsins, gegn
Mexíkó og Perú.
Meiðslin eru ekki
alvarleg og var tíminn
mikilvægur fyrir Kol-
bein og Heimi Hall-
grímsson til að sjá
stöðu hans.
11. maí 2018?
Verður Kolbeinn einn af
23 leikmönnum Íslands
sem Heimir Hallgríms-
son velur til að fara á
heimsmeistaramótið í
Rússlandi? Kolbeinn er í
kappi við tímann og mik-
ilvægar vikur eru
framundan fyrir hann að
komast í leikmannahóp
Nantes og byrja að spila.
Ef það gerist eru góðar
líkur á að Kolbeinn verði
um borð í vélinni til
Rússlands þann 9. júní.