Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2018, Page 78
78 fólk 28. mars 2018
Þ
órdís Lóa Þórhallsdóttir
var í síðustu viku kynnt
sem oddviti Viðreisnar
í Reykjavík í komandi
sveitarstjórnarkosningum. Í
félagatali Félags kvenna í at-
vinnulífi titlar
hún sig sem
fjárfesti, frum-
kvöðul og
forstjóra. Nú
síðast starfaði
hún sem for-
stjóri ferða-
þjónustufyrir-
tækisins Gray
Line á Íslandi.
Þá var hún
um árabil for-
stjóri og einn
af eigendum
Pizza Hut á Íslandi og Finn-
landi.
Þórdísi Lóu var hent beint
út í djúpu laugina þegar hún
mætti í viðtal hjá sjónvarps-
manninum Sindra Sindrasyni
í beinni útsendingu í fréttum
Stöðvar 2 strax eftir að list-
inn var kynntur. Sindri var afar
ágengur í viðtalinu og kom það
Þórdísi Lóu augljóslega í opna
skjöldu. Öll viðtöl verða auð-
veld eftir þessa eldskírn.
Yngri systir Þórdísar Lóu
er hin þjóðþekkta söngkona
Hera Björk Þórhallsdóttir. Hera
Björk var nýlega í forsíðuvið-
tali hjá tímaritinu MAN þar
sem hún greindi frá því að hún
væri í löggildingarnámi í fast-
eignasölu og hvernig að hún
hefði tekið andlega og líkam-
lega heilsu sína í gegn.
Lítt þekkt ættartengsl
Oddvitinn og
söngdívan
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir,
oddviti
Viðreisnar í
Reykjavík
Hera Björk Þórhallsdóttir
„Bjáni, en meinti vel“
Ef þú þyrftir að breyta, hvað myndirðu
vilja heita annað en Jóhann eða vera ann-
að en leikari. Krummi og vera ofurhetja.
Hverjum líkist þú mest? Sjálfum mér.
Hvað halda margir um þig sem er alls ekki
satt? Að ég sé fullkominn.
Í hverju finnst þér þú vera betri en aðrir? Í
sannleika, flestu …
Hvað viltu að standi skrifað á legsteinin-
um þínum? Jóhann G. Jóhannsson – Bjáni,
en meinti vel.
Sex ára barn spyr þig hvort að jólasveinn-
inn sé til. Hvernig svarar þú? Trúir þú á
jjólasveininn?
Hvernig myndirðu lýsa litnum gulur
fyrir blindum manni? Hlýr, glaður og smá
velgjulegur.
Hvaða lag skammastu þín mest fyrir að
hafa haldið upp á? ,Ekki neitt. Ég komst yfir
það. Dýrkaði Wham þegar það var ekki kúl,
dýrka Michael Jackson og það er yfirleitt ekki
kúl. En það fer í hringi.
Hvað ætti ævisagan þín að heita? „Bjarg-
aði lífi sínu með dansi.“
Hvaða bíómynd hefurðu séð oftast?
Líklegast „Singing in the Rain“, horfði þar til
spólan slitnaði.
Hvað var í tísku þegar þú varst yngri en er
það ekki lengur? Ég held að flest hafi komið
aftur. Nema kannski sólgleraugun með
málningarslettum og rimlum.
Að hverju getur þú alltaf hlegið? Sjálfum
mér. Sorglegt en satt.
Hvað er það furðulegasta sem þú hefur
keypt? Sólgleraugu með málningarslettum.
Hvert er versta hrós sem þú hefur fengið?
Þú varst frábær í … Nei, það varst ekki þú …
Heilsarðu frægum Íslendingum úti á
götu, þótt þú þekkir þá ekki persónu-
lega? Já, algjörlega. Ef þeir heilsa ekki til
baka elti ég þá þar til þeir gera það.
Hverju laugstu síðast? Að ég elti fræga
Íslendinga ef þeir heilsa mér ekki.
Um hvað geta allir í heiminum verið
sammála? Að ást sé nauðsynleg.
Ef þú mættir bæta við ellefta boðorðinu,
hvernig hljómaði það? Þú skalt borða
hollt og hreyfa þig og vera ófeiminn að leita
hjálpar.
Hvaða áhugamál myndirðu ekki sætta
þig við að maki þinn stundaði? BDSM.
Hvaða hljóð fer mest í taugarnar á þér?
Tyggjósmjatt (en ég er að reyna að hugleiða
frá mér það sem fer í taugarnar á mér því það
er engum að kenna nema mér).
Hvaða frægu persónu leistu upp til en
sérð eftir því í dag? Ég kannski sé ekki
eftir því að hafa litið upp til hans því það var
vegna hans hæfileika, en Bill Cosby var ekki
sá sem ég hélt.
Hvaða viðburð sérðu mest eftir að hafa
misst af? Fimmtugsafmæli pabba. 15 ára
og hljómsveitin mín ætlaði að spila þar en
föttuðum ekki að það var milli kl. 17–20.
Vorum að æfa og mættum svo og þá var allt
búið. Spiluðum þó í 60 ára afmælinu (með
Ragga Bjarna).
Hver er lélegasti fimmaur sem þú hefur
heyrt? Það eru svo margir sem koma frá mér
daglega, erfitt að velja. Ég reyni oft að finna
botninn til að geta spyrnt mér upp.
Hvað er löglegt í dag en verður það lík-
lega ekki eftir 25 ár? Að flokka ekki.
Hver er versta vinnan sem þú hefur
unnið? Líklega byggingarvinna um jól í
handlangi. Versta leikhúsvinna var líklega að
leysa af í plöntunni í Hryllingsbúðinni.
Um hvað varstu alveg viss þangað til þú
komst að því að þú hafðir rangt fyrir þér?
Allt, ég er alltaf viss um að ég hafi rétt fyrir
mér þangað til ég kemst að því að ég hafði
rangt fyrir mér.
Í hvaða íþróttagrein finnst þér að kepp-
endur ættu að leika ölvaðir? Skíðagöngu
með byssu … Það væri áhugavert.
Hvaða kvikmynd þætti þér helst við hæfi
að breyta í söngleik?
Víti í Vestmannaeyjum.
Nú labbar mörgæs með kúrekahatt inn
um dyrnar hjá þér. Hvað segir hún og af
hverju er hún þarna? „Stikkem up.“ Til að
ræna mig sjálfinu.
Hvað er framundan um helgina? Sýna
Icelandic Sagas í Hörpu, hitta fjölskyldu og
vini og njóta páskanna með drengjunum
mínum og konu.
Leikarinn Jóhann G. Jóhannsson hefur komið víða við í leiklistinni og
leikur jöfnum höndum á sviði, sjónvarpi og í kvikmyndum, en sú nýjasta
er Víti í Vestmannaeyjum, þar sem Jói leikur föðurinn og þjálfarann Tóta.
Hann leikur einnig í Icelandic Sagas – The Greatest Hits, sem sýnd er í
Hörpu. Jói gaf sér tíma frá leiklistinni til að svara nokkrum spurningum
fyrir lesendur DV.
hin hLiðin
V
ið erum allar saman í bekk
og á sömu braut, við erum
á viðskiptahagfræðibraut
og innan viðskiptasviðsins
er frumkvöðlafræðin. Í rauninni
heitir áfanginn sem við erum
í þjóðhagfræði 313, en aftur á
móti felur hann í sér þetta frá-
bæra frumkvöðlaverkefni sem er
skyldufag á viðskiptabraut,“ segir
Elín Helga.
Keppa á vörumessu í
Smáralind í apríl
„Allir viðskipta- og hagfræði-
bekkirnir í skólanum taka þátt
í þessu skemmtilega verkefni,
en keppnin, sem verður haldin
á Vörumessunni í Smáralind
helgina 7.–8. apríl næstkomandi,
verður stærri en hún hefur verið
áður þar sem tveir árgangar frá
Verzló taka þátt í henni.
Keppnin einkennist af miklum
fjölbreytileika. Hún skiptist nið-
ur í ýmiss konar verðlaun, svo
sem matarverðlaun, bestu fram-
leiðslu, bestu lokaskýrsluna og
svo framvegis. Til dæmis er eitt
mjög flott verkefni úr okkar bekk
sem heitir Stjörnuhiminn og er
hönnunarvara. Einnig er mikið um
sælkeravörur á borð við saltkara-
mellur, brjóstsykur og sleikjóa,“
segir Anna Katrín.
Sjá sjálfar um allt
framleiðsluferlið
Af hverju að velja að gera pestó,
hvernig ákváðuð þið hvað þið
vilduð gera og hvernig var fram-
leiðsluferlið?
„Fyrirtækið Okkar pestó var ein
af mörgum hugmyndum okkar í
upphafi. Við vorum lengi að kom-
ast að niðurstöðu, þar sem við vor-
um með margar hugmyndir uppi
á borði, en að lokum komumst við
að því að pestó-hugmyndin var sú
besta að okkar mati. Hugmyndin
okkar spratt upp í matarhléi þegar
Árný kom með pasta með heima-
gerðu pestó mömmu sinnar í nesti
og lyktin fangaði athygli vinahóps-
ins og allir vildu smakka. Eftir að
hafa borið hugmyndina upp við
þó nokkra, voru margir sem sýndu
mikinn áhuga og hvöttu okkur
áfram með framleiðsluna.
Við sjáum sjálfar um allt fram-
leiðsluferlið. Við byrjum með
tóma krukku og endum með
fullunna vöru. Við vinnum að
framleiðslu vörunnar í löggiltu
og vottuðu eldhúsi. Við kaupum
inn þá framleiðsluþætti sem þarf
til gerðar vörunnar. Við vorum
með uppskrift að pestó í höndun-
um sem við unnum með og gerð-
um að Okkar pestó. Umbúðirnar
og útlit skipta okkur miklu máli
og við sáum að mestu leyti um
það sjálfar, en fengum hins vegar
Prentmet til þess að aðstoða okkur
við hönnun vörumerkisins,“ segir
Hildur Inga.
Okkar pestó sló í gegn á
Facebook-síðu
„Við höfum verið duglegar að aug-
lýsa vöruna á samfélagsmiðlum.
Nýlega bjuggum við til Facebook-
síðu sem sló virkilega í gegn, en
þar setjum við inn upplýsingar
sem tengjast framleiðsluferlinu og
hvernig fólk getur nálgast vöruna.
Einnig erum við með Instagram-
síðu þar sem við leyfum fólki að
fylgjast með á myndformi. Við-
tökurnar hafa verið frábærar, og
við erum ótrúlega ánægðar með
þær,“ segir Ísabella.
Vinkonurnar ætla allar nema
ein beint í háskólanám Verzló.
Anna Katrín er ekki ákveðin með
hvaða nám hún ætlar í, en stefn-
ir líka á að læra frönskuna bet-
ur. Elínu Helgu langar að verða
endurskoðandi og stefnir á við-
skiptafræði og síðan meistaranám
í endurskoðun og reikningshaldi.
Hildur Inga segir að viðskipta- eða
hagfræðinámið í HR heilli mest
og frumkvöðlaáfanginn hafi vakið
áhuga hennar á fyrirtækjarekstri.
Ísabella stefnir á rekstrarhag-
fræði í HR. Árný Anna ætlar hins
vegar að taka sér árs hlé frá námi
og flytur til Svíþjóðar í lok sum-
ars og verður au pair hjá frænku
sinni. „Hún og maðurinn hennar
eru bæði læknar og með þrjú lítil
börn, svo það er nóg að gera hjá
þeim og verður mikil breyting fyrir
þau að fá mig út til sín. Ég stefni á
að læra sænsku og sálfræðin heill-
ar mig mikið.“
Ætlið þið að halda áfram með
Okkar pestó, jafnvel þróa hug-
myndina frekar?
„Eins og er höfum við ekk-
ert ákveðið hvort við ætlum að
halda áfram með fyrirtækið eftir
menntaskóla. Til að byrja með ætl-
um við bara að njóta þess að vera
í þessum áfanga og sjá hvert hann
leiðir okkur. Ef þetta gengur rosa-
lega vel þá væri það alveg tilvalið
að halda áfram með þetta, þar sem
okkur finnst þetta vera virkilega
skemmtilegt og við náum mjög vel
saman,“ segir Árný Anna. „Ef ágóði
verður af sölunni, höfum við hugs-
að okkur að gefa hann til Barna-
spítala Hringsins.“
Vinkonurnar Anna Katrín, Árný Anna, Elín
helga, hildur inga og Ísabella eru allar á
tvítugsaldri og nemendur á lokaári í Versló og stefna
þær á útskrift þann 26. maí næstkomandi. Í verkefni
í frumkvöðlafræði ákváðu þær að vinna pestó frá
grunni og ef ágóði verður af sölunni hyggjast þær
gefa hann til Barnaspítala Hringsins.
Hópurinn ásamt Pálinu kennara (lengst til vinstri), á kynningu.
Vinkonurnar stunda ekki bara námið, heldur eru ýmist að vinna með og/eða æfa íþróttir.
Anna Katrín: „Ég æfi handbolta með íþróttafélaginu Gróttu. Einnig vinn ég í heilsu-
ræktarstöðinni World Class á Seltjarnarnesi.“
Elín Helga: „Ég stunda handbolta af krafti með íþróttafélaginu Val. Jafnframt tek ég
að mér vaktir í versluninni Cintamani þegar tími gefst.“
Hildur Inga: „Ég vinn vaktir í símaverinu á Domino's. Ég er mikið náttúrubarn og nýt
þess mikið að fara í göngutúra í Elliðaárdalnum, auk þess reyni ég að stunda líkamsrækt
þegar tími gefst til.“
Ísabella: „Ég er í 40% vinnu með náminu í blómabúðinni Burkna sem er í Hafnarfirði.
Einnig reyni ég að mæta á æfingar hjá World Class fimm sinnum í viku.“
Árný Anna: „Ég vinn í Rammagerðinni á Skólavörðustíg með skólanum, en ég vinn
aðra hverja helgi og svo einn virkan dag í viku. Ég reyni einnig að vera dugleg að hreyfa
mig og mæta í ræktina nokkrum sinnum í viku.“
Framleiða Okkar pestó, ágóði mun
renna til Barnaspítala Hringsins