Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Blaðsíða 7
27. apríl 2018 fréttir 7 að. Þau ferðuðust mikið og Daníel segir að þau hafi oft spáð í hverju sætti. „Þau fóru til dæmis alltaf á sama tíma til Jamaíku á hverju ári. Þarna komumst við að því að þau fóru aftur og aftur á Hedon­ ism sem er vinsæll staður fyrir swingara og núdista.“ Eitt leiddi af öðru og í dag, rúmlega einum og hálfum áratug síðar, má örugglega halda því fram að Dóra og Daníel séu með virkari pörum í lífsstíln­ um hér á landi. Þau segja að lykilatriði sé að vera saman í liði og það þýði lítið fyrir pör að stunda swing ef bæði eru ekki í því af fullum hug – þvingun er aldrei sexí. Kannski bara svipað og með hvaða áhuga­ mál sem er … ekki mundi ég nenna að fara átján holur í golfi nema ég hefði brennandi áhuga á því – í fínu lagi að prófa, en ástundun þarfnast áhuga. Þau leggja líka áherslu á að ónýtt samband verði ekki lagað með því að byrja að swinga. Yfirtökur og nekt Auk þess að vera virk í senunni hér á landi, halda partí og skipu­ leggja sumarbústaðarferðir hafa þau ferðast um allan heim tengt áhugamálinu. Eitt af því sem er í boði fyrir swingara eru sér­ stakar hópferðir sem skipulagðar eru af samfélögum eins og SDC, Swingers Dating Club, netsíðu sem flestir í lífsstílnum hérlendis þekkja vel og nota. Ferðirnar eru af ýmsu tagi, sigl­ ingar, skíðaferðir, ferðir á lífsstíls­ væna strandstaði og svokallaðar yfirtökur á hótelum. Dóra og Dan­ íel fara reglulega í ferðir af þessu tagi, stundum tvö og stundum með vinafólki. Daníel segir að ferðirn­ ar séu misjafnar, enda stundi fólk lífsstílinn á ólíkum forsendum. „Það er til að mynda algengt að það komi 2–3 pör saman í svona ferðir og stundi bara kynlíf sín á milli. Aðrir eru komnir til að kynn­ ast fólki og upplifa ævintýri með fleirum. Fyrir okkur snýst þetta um samskiptin og félagsskapinn ekki síður en kynlífið. Á Desire í Mexíkó höfum við til dæmis dvalið í tvær vikur í senn. Maður stígur út í hitann á morgnana, kviknakinn, kannski með lítið handklæði á öxlinni og er nakinn allan daginn við sund­ laugar, á veitingastöðum og úti um allt. Í svona aðstæðum mynd­ ast skemmtileg orka milli fólks og fyrir marga er þetta alveg nóg. Að fá útrás fyrir sýniþörfina og horfa á aðra. Við hins vegar erum athafnasöm og stundum mikið kynlíf með flottu fólki í okkar ferð­ um og boðum.“ Þau staðfesta það sem fleiri hafa sagt mér, að svona ferðir og uppátæki styrki sambandið þeirra á milli og viðhaldi lostanum. Viðburðastjórinn og graða konan Kynlífsævintýrin eiga þau hvort tveggja með pörum og stök­ um aukaleikurum, aðallega karl­ mönnum, aðallega svörtum. Dóra kann vel að meta þá. Hún er gefin fyrir konur og karla, og Daníel er alls ekki feiminn við að fleiri karl­ menn taki þátt í leiknum. Hann segist vera viðburðastjór­ inn í sambandinu og hefur gaman af að koma konu sinni á óvart. „Ég er ekki gaurinn sem horfir á aðra taka konuna sína, heldur er ég með í leiknum. Ég hef oftast sam­ band við mennina sem við bjóð­ um í rúmið með okkur – stundum án þess að hún viti nákvæmlega hvað er á dagskrá. Einu sinni vor­ um við stödd á hóteli í Frakklandi og vorum í gufu. Hún lá á bakinu á bekk inni í gufunni kviknakin. Allt í einu gengur vinur okkar inn og setur hendur á brjóstin á henni – beinstífur og til í stuð. Ég hef gam­ an af því að gleðja konuna mína.“ Kynlífsróla heila helgi Talið berst aftur að partíinu í reyk­ víska einbýlishúsinu um daginn þar sem kynni okkar hófust. Eftir að fyrri grein mín um kvöldið góða birtist í fjölmiðlum hefur umræð­ an um lífsstílinn blossað upp í þjóðfélaginu og sitt sýnist hverj­ um. Ágætis mælikvarði á áhuga fólks er fjölgun íslenskra skrán­ inga á samfélagsvefnum SDC sem hefur tekið stökk upp á við. Kynlífsrólan margumrædda hékk uppi frá föstudagsmorgni fram á sunnudagskvöld og inn­ fluttu nautin (karlmennirnir þrír með limina stóru) fengu hver og einn sitt herbergi – enda heiðurs­ gestir. „Þegar við erum gestgjafar, og boðið þetta stórt, er alveg ljóst að við þurfum að láta okkar eig­ in losta í annað sætið,“ segir Dóra. „Við fengum auðvitað helling út úr helginni, en akkúrat á meðan stóra partíið stóð yfir þurftum við að einbeita okkur að mestu að því að allt gengi vel.“ Það er ekki gróðavonin sem knýr þau áfram og fékk þau til að halda gleðskapinn í húsinu stóra. „Það er alveg á hreinu, því þó að hvert par hafi borgað smá að­ gangseyri fyrir þátttökuna dugði það ekki fyrir útlögðum kostn­ aði. Við buðum upp á veitingar og greiddum hluta af ferðakostn­ aði heiðursgestanna. Einhyrn­ ingar (stakar konur) borguðu að sjálfsögðu ekki neitt, enda eftir­ sóttar með eindæmum. Kannski er ákveðin klikkun að halda svona stórt partí, en við höfum gaman af þessu. Þó svo að þetta hafi verið ótrúlega gaman langar okkur næst að halda minna partí og fá meira út úr því sjálf.“ Í samtali okkar kemur greini­ lega í ljós að skammt er stórra högga á milli hjá Dóru og Dan­ íel. Um helgina eru þau til dæmis boðin í grill hjá vinafólki sem var í partíinu síðustu helgi. Þau gera ráð fyrir að það kvöld endi í kyn­ lífi! n DV Var á sVæðinu „Þegar við erum gestgjafar, og boðið þetta stórt, er alveg ljóst að við þurfum að láta okkar eigin losta í annað sætið. Á leið í partý Tæki og tól úr Adam og evu. mYnd hanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.