Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Blaðsíða 25
sport 2527. apríl 2018
Bensín-
gjöfin í
Botni
Valur – KR
Föstudagurinn 27. apríl kl. 20.00
Sérfræðingurinn 1-2
Fyrstu óvæntu úrslit sumarsins koma strax í fyrsta leik,
Rúnar Kristinsson á Hlíðarenda endar bara á einn veg.
Auðunn Blöndal 3-1
Ég kann hrikalega vel við Rúnar, þjálfara KR. Svo eru nú
ágætis krútt þarna inni á milli eins og Óskar Örn og Pálmi
Rafn en því miður þá tapa þeir fyrir mínum mönnum.
Stjarnan – Keflavík
Föstudagurinn 27. apríl kl. 20.00
Sérfræðingurinn 2-0
Stjarnan á heimavelli á gervigrasinu í Garðabæ, gegn ný-
liðum. Þetta er eins öruggur heimasigur og þeir gerast.
Auðunn Blöndal 1-1
Ég og Steindi vorum að veislustýra á herrakvöldi hjá
knattspyrnudeild Keflavíkur um daginn, við náðum að
peppa þá vel upp þar. Maður er hins vegar með taugar í
Garðabæinn eftir sjö góð ár þar Þetta endar með jafntefli
Grindavík – FH
Laugardagurinn 28. apríl kl. 14.00
Sérfræðingurinn 0-3
FH-liðið smellur saman á fyrsta
degi mótsins, besti þjálfari lands-
ins, Ólafur Kristjánsson, byrjar
með látum hjá FH
Auðunn Blöndal 0-1
Ég ætla að segja að það verði vorbragur á þessum leik,
aðallega af því að mér finnst töff að segja það. FH stelur
sigri þarna undir lok leiksins.
Breiðablik – ÍBV
Laugardagurinn 28. apríl kl. 14.00
Sérfræðingurinn 1-0
Blikar munu hafa mikla yfirburði en ná bara að lauma inn
einu marki í lok leiks, þar verður
Guðjohnsen að verki.
Auðunn Blöndal 2-1
Vestmannaeyjar er eyjan mín,
það er uppáhaldseyjan mín í
öllum heiminum. Ég ber mikl-
ar taugar til Eyja, mamma
er hins vegar Bliki og Gillz
líka. Svo hefur maður alltaf
taugar til Gunnleifs í markinu
hjá þeim. Þessi er erfiður en
ég spái því að Blikar taki þetta
og Sveinn Aron Guðjohnsen
verði á skotskónum.
Fjölnir – KA
Laugardagurinn 28. apríl kl. 15.00
Sérfræðingurinn 1-2
KA er með öflugt lið og vinnur Fjölni með naumindum,
leikurinn er í Egilshöll sem gerir hann mjög
óspennandi.
Auðunn Blöndal 1-2
Norðurlandið er alltaf sterkt, maður
ber alltaf taugar þangað. KA nær
að klára þetta.
Víkingur R – Fylkir
Laugardagurinn
28. apríl kl. 18.00
Sérfræðingurinn 1-0
Allir spá Víkingi falli en Logi
Ólafsson fellur aldrei með þetta
lið, byrja á þremur stigum.
Auðunn Blöndal 1-1
Nú er maður fluttur í Fossvog-
inn, maður þarf því að hafa
taugar til Víkings. Maður er
reyndar farinn að hafa taugar
til allra liða svona ef ég pæli í
því, þetta endar með jafntefli.
P
epsi-deild karla hefst
um helgina en búast má
við miklu fjöri í sumar.
Margir spá því að Víking-
ur falli úr deildinni en það ætlar
Sölvi Geir Ottesen að koma í veg
fyrir. Sölvi er mættur aftur heim
eftir langa dvöl erlendis, hann er
eitt stærsta nafn deildarinnar og
ætlar sér að sanna hvers vegna.
„Það er bara æðislegt að vera
kominn aftur heim, ég hafði
undirbúið mig vel fyrir það, mér
líður afar vel að vera í Víkinni,“
sagði Sölvi Geir í vikunni.
„Ég er mjög bjartsýnn á sum-
arið, við vorum í brasi í upphafi
undirbúningstímabilsins. Það
eru margar breytingar á liðinu,
það mátti því alveg búast við
þessu. Ég er búinn að sjá mikla
breytingu á liðinu frá því í upp-
hafi árs og hvar það er statt núna.
Okkur finnst við vera komnir á
þann stað sem við vildum vera
nú þegar mótið er að byrja.“
Ekkert að spá í spárnar
Sölvi segir að hann og liðsfé-
lagar hans horfi lítið í þær spár
sem hafa komið út fyrir tímabil-
ið „Við erum ekkert að spá í þess-
ar spár sem hafa verið að koma
út, við einbeitum okkur að okkur
sjálfum. Við erum mjög ánægðir
með það sem við höfum náð að
lagfæra í leik liðsins, stilla okkur
rétt af. Það er erfitt að segja hvað
gerist, úrslitin hafa ekki verið þau
bestu á undirbúningstímabil-
inu. Við höfum verið að æfa hina
og þessu hluti, vonandi verður
allt annar bragur á þessu þegar
mótið er farið af stað. Við höfum
verið að vera fínstilla hlutina og
ég er bara mjög bjartsýnn.“
Gæðin í deildinni góð
Sölvi lék síðast á Íslandi sumarið
2004 og margt hefur breyst síðan
þá, hann segir gæðin í deildinni
mjög góð. „Mér finnst gæðin
í deildinni vera góð, það sýnir
sig best í bætingu leikmanna
hvað þessar hallir hafa gert. Þær
voru ekki til staðar þegar ég var
hérna síðast, það eru margir
hörkuleikmenn í deildinni. Það
er virkilega gott að sjá það.“
Hefur gefið í
Það er þekkt stærð að erfitt get-
ur verið fyrir gamla atvinnu-
menn að halda dampi þegar
komið er heim. Sölvi segist hafa
gert allt sem í hans valdi stend-
ur til að vera í frábæru formi í
sumar. „Standið á mér er virki-
lega gott, ég er búinn að æfa afar
vel. Ég hef líklega aldrei tekið
undirbúningstímabil með jafn
miklum metnaði eins og núna.
Ég ætla að gera allt sem í mínu
valdi stendur til að vera hvað
sterkastur í sumar, til að hjálpa
Víkingi. Ef eitthvað er þá hef ég
stigið fastar á bensíngjöfina en
áður, það er mikilvægt fyrir mig
persónulega. Líka til að geta sagt
að ég hafi gert gjörsamlega allt
sem ég get til að vera klár í topp-
standi. Ég get sagt það nú þegar.
Ég byrjaði ekki fyrr en í janú-
ar með Víkingi, ég gat ekki spil-
að í Lengjubikarnum framan
af vegna leikheimildar. Ég kom
heim í október og byrjaði sjálfur
að æfa fullu áður en ég skrifaði
undir, þetta hefur verið langt.
Maður er enn þá spenntari fyrir
því að boltinn byrji eftir að hafa
beðið svona lengi.“ n
n Sölvi Geir ætlar sér að vera í sínu besta formi í sumar n Pepsi-deildin hefst um helgina
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Sérfræðingurinn vs. Auðunn Blöndal
n Spáð í Pepsi-deild karla n Fyrsta umferðin fer fram um helgina
K
eppni í Pepsi-deild karla
hefst um helgina og verð-
ur heil umferð leikin. Bú-
ast má við hörkukeppni
bæði á toppi og botni í sumar. Í
allt sumar mun Sérfræðingurinn
mæta þjóðþekktum Íslendingi í
tippkeppni fyrir hverja umferð í
deildinni.
Sérfræðingurinn er afar reynd-
ur leikmaður sem lék lengi vel í
deildarkeppnum hér á landi, hann
fylgist vel með deildinni og segir
að ekki nokkur einstaklingur muni
hafa betur gegn sér. Af virðingu
við andstæðinga sína kemur hann
ekki fram undir nafni en mun gefa
upp nafn sitt í lok leiktíðar, ef vel
fer eins og hann orðaði það.
Fyrsta fórnarlamb sérfræðings-
ins er Auðunn Blöndal, sjónvarps-
og útvarpsmaður. Auðunn heldur
með Val í Pepsi-deildinni, hans
menn eru líklegir til árangurs
í sumar. Hann ber hins vegar
taugar til margra liða eins og fram
kemur í spá hann. n
hoddi@433.is