Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Blaðsíða 24
24 sport 27. apríl 2018 É g vil einnig vera múslími,“ er lag sem stuðningsmenn Liverpool eru farnir að syngja, það er í raun ágætis mæli- kvarði á það sem Egyptinn Mohamed Salah hefur gert fyrir félagið á nokkrum mánuðum. Salah er í dag búinn að koma sér í flokk bestu knattspyrnu- manna í heimi. Fyrir 35 milljón- ir punda telst Salah hræódýr í heimi fótboltans. „Þetta er frábært, þetta er það sem við þurfum í þessum heimi í dag,“ segir Jurgen Klopp, stjóri Liver- pool, um málið, en Salah er múslími. Hatur gagn- vart múslímum er mik- ið í heiminum í dag og fordómar blómstra víða. Afrek Salah og athyglin sem hann fær getur hjálpað til við að kveða slíka fordóma í kútinn. Salah kem- ur fyrir sem hið ljúfasta blóm, er vinur allra. „Að sjá þennan magnaða, unga dreng gera þessa hluti er frábært, hann er fullur af lífs- gleði, gefur mikla ást frá sér, mikill vinur. Hann gefur rosalega mikið af sér. Það er gott í heimi þar sem við eigum mörg í erfiðleik- um með að skilja hvað sé í gangi, þetta er al- veg magnað.“ Liðsfélagar sýna trú hans skilning Múslímar, eins og aðrir trúarhópar í heim- inum, hafa sínar hefðir. Í hópi Liverpool er því sýndur mikill skilningur. „Það er frábært að hafa hann hérna með okkur, það er margt sem hann gerir fyrir leiki. Hann er múslími og það er heilmargt sem múslímar gera fyrir leiki; hvernig hann þvær sér og fleira. Við komum tveimur mínútum fyrr inn í klefann áður en leikurinn hefst svo að hann geti farið í gegnum þessa hluti, þetta gera Sadio Mane og Emre Can líka.“ Heimurinn ætti að vera svona Klopp segir að heimurinn ætti að vera líkt og hann upplifir hjá Liverpool, allir bera virðingu fyrir hver öðrum og engu máli skiptir hverrar trúar menn eru. „Það er ekki einn leikmaður sem kvartar undan þessu og spyr hvers vegna við séum að gera þetta, af hverju við séum að bíða eftir þeim. Í eðlilegum heimi ættu hlutirnir að vera svona, að við myndum öll reyna að skilja hvert ann- að örlítið betur. Að við bær- um virðingu fyrir því sem gæti verið skrýtið að þínu mati. Ég held að það sé augljóst að það eru miklir fordómar í gangi í heiminum, en við ættum frekar að ræða um fótbolta á þessu augnabliki, það hentar betur að ræða þetta betur seinna. Það er ekki rétt að ræða þennan fallega leik og vandamál heims- ins á sama tíma.“ Salah er hinn fullkomni sendiherra Klopp lofsyngur Salah fyrir það hvernig hann kemur fram og segir hann auðmjúkan og viðkunnanlegan dreng. „Við erum allir sendiherrar og stund- um stöndum við okkur vel í því hlutverki og stundum ekki, þessa stundina er Salah hinn fullkomni sendiherra. Hann er frábær full- trúi fyrir Egyptaland, fyrir alla Araba. Það er virkilega gaman og ég elska það, ég er afar glaður að hann hafi verið kosinn sá besti í deildinni af andstæðingum sínum og öllum þeim sem spila á Englandi.“ Frammistaðan innan vallar ótrúleg Salah er ekki bara frábær fyrirmynd sem persóna, hann er einnig frábær fyrirmynd fyrir þá sem vilja ná langt í íþróttum, ósér- hlífinn og ótrúlega hæfileikaríkur. Salah hefur skorað 43 mörk á sínu fyrsta tímabili með Liverpool. Hann hefur jafnað marka- metið í ensku úrvalsdeildinni með því að skora 31 mark og hann mun án nokkurs vafa slá það áður en tímabilið er á enda. n „Ég vil einnig vera múslími“ n Mo Salah gerir ótrúlega hluti hjá Liverpool n Þetta er það sem heimurinn þarf, segir þjálfarinn „Við erum allir sendiherrar og stundum stöndum við okkur vel í því hlutverki Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.