Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Blaðsíða 50
50 27. apríl 2018 Menning „Hugmyndin var að gera mynd um X-kynslóðina sem við erum sjálfir hluti af. Okkur fannst sú kynslóð vera stefnulaus og almennt áhugalaus um flest allt nema kannski sjálfa sig.“ - segir Júlíus Kemp leikstjóri um hugmyndina að baki kvikmyndinni Blossi, sem átti góðu gengi að fagna þegar hún kom út árið 1997. Kvikmyndin var framlag Íslands til Óskarsverð- launa árið 1998. B lossi 810551, pönkaða glæpagamanmyndin í leik- stjórn Júlíusar Kemp, sýn- ir tvo unglinga í íslensku neyslu- og auglýsingasamfélagi, á flótta undan lífinu en í leit að skemmtun. Myndin varð tvítug á síðasta ári og hefur átt farsælt líf sem íslenskur „költari“ á liðnum árum, þrátt fyrir að erfitt sé að nálgast eintak af henni með lög- legum hætti. Eina leiðin til að nálg- ast myndina í þokkalegum gæðum virðist vera að reyna komast yfir VHS-spólu, vonandi óslitna. Heitustu aðdáendur Blossa hafa lengi krafist þess að myndin fái í það minnsta dreifingu á skjáleigum. Að því gefnu var stofn- aður Facebook-hópur sem nefn- ist „Við krefjumst þess að stórverk- ið Blossi verði gefin út á stafrænu formi“. Íslenskir kvikmyndaáhuga- menn vitna margir í myndina enn í dag og hefur stuðningshópur hennar vaxið töluvert á ári hverju. „Ísland á morgun“ fyrir 20 árum Mörgum þykir nokkuð einkenni- legt að Blossi hafi verið framlag Íslands til Óskarsverðlauna árið 1998. Myndin hlaut sæmilega að- sókn við frumsýningu en blendn- ar viðtökur áhorfenda. Myndin var þónokkuð vinsæl á mynd- bandaleigum og var tónlistar- plata hennar afar umtöluð á sín- um tíma, enda var þar að finna flott safn af smellum sem slógu í gegn. Þá tóku nokkrar af vinsælu- stu sveitum þjóðarinnar þátt í að skapa tónlist myndarinnar en í þeim hópi var að finna Quarashi, Botnleðju, Maus, Bang Gang og Sykurmolana. Myndin var gefin út árið 1997 en gerist tæknilega séð í fram- tíðinni. Að sögn aðstandenda er sögusviðið „Ísland á morgun“. Við leggjum í ferðalag með eirðarlaus- um borgarbörnum þegar leiðir hinnar undurfögru Stellu og fíkils- ins Robba liggja saman. Þau enda í hringferð um landið á stolnum bíl og við taka ýmiss konar uppá- komur og samræður um allt milli himins og jarðar, eins og fyrir- bærið „déjà vu“, einkamál, hvert heimurinn stefnir eða hvað gerist við myndun naflakusks. n tomas@dv.is Hvar er BlOssafólkið í dag? Týndi íslenski „költarinn“ „Það sem við þurfum að gera er að finna aðra plánetu og halda partíinu gangandi…“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.