Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Blaðsíða 9
27. apríl 2018 fréttir 9 Ísfell ehf, Óseyrarbraut 28 220 Hafnarfjörður, Sími 5200 500 www.isfell.is, isfell@isfell.is Höfum á lager mikið úrval af alskyns vinnufatnaði, hífi- og festingabúnaði, krönum og talíum, snjókeðjum, pökkunarlausnum og fallvarnarbúnaði. Í vörulistanum á www.isfell.is er að finna ítarlegar upplýsingar um allar vörur. Vinnufatnaður Hífilausnir Kranar og talíur Snjókeðjur Pökkunarlausnir Fallvarnarbúnaður Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna! var að reyna að nálgast pening en það er svo erfitt með samskipti þarna inni, ég tala ekki taílensku og er ekki Taílendingur og fékk í raun engar upplýsingar og ef þeir gáfu mér einhverjar þá voru þær rangar. Svo byrjuðu þeir á þessu helvítis andlega ofbeldi, þrýsta á mig og svo enduðu þeir með líkam legu ofbeldi. Ég var barinn í klessu þrjá daga í röð, þar til allar tennurnar í mér voru farnar, ég var eins og ég veit ekki hvað í framann, eins og pítsa,“ segir Ágúst. Hann segir að raunar hafi fangarnir ráðið öllu í fangels- inu. „Það virtist vera þannig kerfið að fangarnir stjórnuðu hvernig allt gekk og fanga- verðirnir pössuðu upp á að það gengi ekki of langt. Ég man að eitt kvöldið þá sögðu fangaverðirnir, þegar þeir athuguðu hvort dyrnar væru læstar: „Verið nú extra góðir við „farang-inn“ [útlending- ur á taílensku, innsk. blm.] í kvöld. Ég fékk nú aldeilis að kenna á því þá. Ég hugs- aði: „sjitt, þetta verður ein- hver nótt.“ Þeir héldu mér vakandi í tólf daga, ég var orðinn svo ruglaður ég hélt ég væri í Þorlákshöfn. Þeir skiptust á með vaktir, einn á vakt í klukkutíma, og héldu mér vakandi,“ segir Ágúst Röðuð tönnunum á klósettinu Líkt og fyrr segir þá missti Ágúst allar tennurnar í fangelsinu. „Ég sá fyrir mér að ég myndi drep- ast þarna inni. Það er erfitt að lýsa því hvernig þetta andlega of- beldi var. Þeir voru mjög klókir. Létu mig halda að þeir ætluðu að hjóla í mig, ég gat ekki sofnað það var ekki séns, svo ætluðu þeir að nauðga mér og svo gerðu þeir ekki neitt í því, en hvað átti maður að halda. Þeir spörkuðu í mig, leyfðu mér engan veginn að sofa, bara ekki séns. Þar til ég var orðinn svo rugl- aður að ég var farinn að standa upp og þeir farnir að berja mig og þá hófst líkamlega ofbeldið. Ég var laminn, þeir byrjuðu fimm, svo voru þeir sjö. Þetta gekk í þrjá daga í röð. Svo var ég skoraður á hólm, því ég náði að sparka í einhvern, það átti að vera einhver spurn- ing um heiður og sýna fram á að ég hefði náð að sparka hann nið- ur. Hann átti að hefna sín, og þetta gekk bara svona. Þar til tennurn- ar mínar allar voru farnar, búið að hreinsa út, þeir röðuðu tönnunum upp á klósettinu, þar var flísalagð- ur veggur og þeir röðuðu tönnun- um þar,“ lýsir Ágúst. Fór úr lið eftir pyntingu Ágúst varð líka fyrir ofbeldi að hálfu fangavarða og minnir það einna helst á pyntingar úr myrku- stu miðöldum. „Svo lenti ég í ein- hverju atviki þarna, ég veit ekki al- mennilega hvernig það byrjaði, en þeir sögðu að ég hefði huns- að „direct order“. Ég bara já ókei, „hver var eiginlega skipunin?“ Ég skildi ekki stakt orð. Ég var snúinn niður og þá hengdu þeir mig upp á rimla á annarri hendinni og settu hlekki á lappirnar á mér, og þannig var ég frá klukkan þrjú um nóttina og til klukkan fjögur daginn eftir. Og því ég náði ekki niður með tánum þá fór ég að lokum úr axlar- lið, bara datt úr lið, og gat ekki staðið á tánum lengur. Þá var ég settur á sjúkradeild, eða eitthvað slíkt, 40 manns þar. Öxlinni var kippt í lið og ekkert meir, þeir gáfu mér bara parkódín. Og svo sendu þeir mig þarna í fótjárnunum en hendurnar voru lausar. Járn- in voru svo þröng að ég fékk sýk- ingu í lappirnar og sár, og löppin á mér var orðin þreföld en alltaf héldu þeir járnunum. Að lokum fjarlægðu þeir járnin og kreistu úr mér alveg heilmiklum vökva. Þetta var bara svona einhvern veg- inn daglegt brauð hjá þeim,“ segir Ágúst og bætir við að hann hafi oft verið laminn með kylfu af fanga- vörðum ef hann hneigði sig ekki. „Ég sá ekki einn fangavörðinn og hann sló í hnén, og svo í hnakk- ann. Þeir gerðu þetta ekki við Taí- lendingana.“ Peningarnir breyttu öllu Eftir þriggja mánaða harða vist þá fékk Ágúst loksins pening með aðstoð ættingja og þá breytist líf- ið gífurlega. „Maturinn þarna, það var alltaf það sama. Ofsoðin hrís- grjón og ofsoðið grænmeti. Einu sinni sá ég þá sópa upp af gólfinu og setja í pottinn aftur. Þannig var það afgreitt. Þetta fengum við að éta. Nema ef við áttum pening, þá gátum við verslað þarna í eldhús- inu, ódýrt,“ segir Ágúst. Hann segir að vistin hafi í raun- inni verið tvískipt; fyrir og eftir peningana. „Fyrir var bara ofbeldi út í eitt en svo róaðist það niður þegar ég fékk pening. Þá komst ég í hóp með hinum útlendingunum. Þá breyttist lífið. Ofbeldið hætti, en það var smá bögg en skítt með það.“ Óvænt heimsókn En einn daginn fékk Ágúst óvænta heimsókn sem átti eftir að breyta öllu. Það voru íslensk- ir AA-menn sem voru staddir í Taílandi. „Þetta voru þrír gæjar sem ég þekkti ekki neitt. Þeir sögðu bara að þeim þætti það vænt um aðra Íslendinga að þeir gætu ekki hugsað sér að skilja mig eftir þarna hjálparvana, þannig að þeir ætluðu að hjálpa mér. Sem þeir gerðu á endanum. Þeir vissu að ég hafði verið edrú í níu ár og gengið mjög vel, þá ákváðu þeir að koma og kíkja á mig. Svo komu þeir tvisvar í viku og gáfu mér alltaf pening og alls konar kaffi og sígarettur sem mig vant- aði. Það var búið að ganga svona í mánuð og það komu alltaf „Þeir spörkuðu í mig, leyfðu mér engan veginn að sofa, bara ekki séns. Á ströndinni Ágúst hafði verið edrú í níu ár. Xxxxx Xxxxxx
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.