Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2018, Síða 50
50 27. apríl 2018
Menning „Hugmyndin var að gera mynd um X-kynslóðina sem við erum sjálfir hluti af. Okkur fannst sú kynslóð vera stefnulaus og almennt áhugalaus um flest allt nema kannski sjálfa sig.“ - segir Júlíus Kemp leikstjóri um hugmyndina að baki kvikmyndinni Blossi, sem átti góðu gengi að fagna þegar hún kom út árið 1997. Kvikmyndin var framlag Íslands til Óskarsverð-
launa árið 1998.
B
lossi 810551, pönkaða
glæpagamanmyndin í leik-
stjórn Júlíusar Kemp, sýn-
ir tvo unglinga í íslensku
neyslu- og auglýsingasamfélagi,
á flótta undan lífinu en í leit að
skemmtun. Myndin varð tvítug á
síðasta ári og hefur átt farsælt líf
sem íslenskur „költari“ á liðnum
árum, þrátt fyrir að erfitt sé að
nálgast eintak af henni með lög-
legum hætti. Eina leiðin til að nálg-
ast myndina í þokkalegum gæðum
virðist vera að reyna komast yfir
VHS-spólu, vonandi óslitna.
Heitustu aðdáendur Blossa
hafa lengi krafist þess að myndin
fái í það minnsta dreifingu á
skjáleigum. Að því gefnu var stofn-
aður Facebook-hópur sem nefn-
ist „Við krefjumst þess að stórverk-
ið Blossi verði gefin út á stafrænu
formi“. Íslenskir kvikmyndaáhuga-
menn vitna margir í myndina enn
í dag og hefur stuðningshópur
hennar vaxið töluvert á ári hverju.
„Ísland á morgun“ fyrir 20 árum
Mörgum þykir nokkuð einkenni-
legt að Blossi hafi verið framlag
Íslands til Óskarsverðlauna árið
1998. Myndin hlaut sæmilega að-
sókn við frumsýningu en blendn-
ar viðtökur áhorfenda. Myndin
var þónokkuð vinsæl á mynd-
bandaleigum og var tónlistar-
plata hennar afar umtöluð á sín-
um tíma, enda var þar að finna
flott safn af smellum sem slógu í
gegn. Þá tóku nokkrar af vinsælu-
stu sveitum þjóðarinnar þátt í að
skapa tónlist myndarinnar en í
þeim hópi var að finna Quarashi,
Botnleðju, Maus, Bang Gang og
Sykurmolana.
Myndin var gefin út árið 1997
en gerist tæknilega séð í fram-
tíðinni. Að sögn aðstandenda er
sögusviðið „Ísland á morgun“. Við
leggjum í ferðalag með eirðarlaus-
um borgarbörnum þegar leiðir
hinnar undurfögru Stellu og fíkils-
ins Robba liggja saman. Þau enda
í hringferð um landið á stolnum
bíl og við taka ýmiss konar uppá-
komur og samræður um allt milli
himins og jarðar, eins og fyrir-
bærið „déjà vu“, einkamál, hvert
heimurinn stefnir eða hvað gerist
við myndun naflakusks. n
tomas@dv.is
Hvar er BlOssafólkið í dag?
Týndi íslenski „költarinn“
„Það
sem við
þurfum að gera
er að finna aðra
plánetu og
halda partíinu
gangandi…“