Morgunblaðið - 07.12.2017, Blaðsíða 70
70
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
Frystið í 10 mín. og skerið í 12
bita.
Heitt hnetumix
4 tsk. góð olía
4 tsk. púðursykur eða annar dökkur
sykur
½ tsk. spicy kryddblanda sem þú
átt
½ tsk. kanill
1⁄4 tsk. svartur pipar
1⁄4 tsk. rauður pipar
4 tsk. vatn
1 poki léttristaðar kasjúhnetur, t.d.
frá H-berg
½ tsk. sjávarsalt
Hitið ofninn í 180°C. Setjið bök-
unarpappír á plötu.
Hitið olíu í potti á meðalhita.
Setjið sykur, krydd og vatn. Hrær-
ið stöðugt í þar til sykurinn leysist
upp og byrjar að sjóða. Bætið
hnetum út í og látið malla í 2 mín.
þar til hneturnar hafa blandast vel.
Dreifið blöndunni vel á bök-
unarplötuna með tveim göfflum og
sáldrið örlitlu meira af salti yfir.
Bakið í ca. 7 mín. Kælið áður en
borið er fram.
Jólakonfekt sem er nokkuð hollt
1 gráfíkjupoki, endinn snyrtur og
skornar í bita
1 ½ dl Grand marnier líkjör eða
annað gott
225 g blandaðar hnetur
200 g 24% marsipan
Gráfíkjur eru látnar liggja í
sirka 24 tíma í góðu víni.
Allt sett í blandara og þú nærð
fjórum góðum lengjum sem þú set-
ur inn í plastfilmu og inn í kæli.
Hjúpað með 70% suðusúkkulaði
og þetta mun svo sannarlega slá í
gegn. thora@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Jólakonfekt sem svíkur engan Þetta girnilega konfekt er nokkuð hollt að sögn Guðbjargar.
Ómótstæðilegt Hver getur staðist heitt hnetumix á aðventunni?
Markmiðið er að gera hversdags-
kokkunum lífið auðveldara en marg-
ur sýpur hveljur yfir flóknum upp-
skriftum sem innihalda jafnvel tugi
innihaldsefna.
Hér er flækjustigið í lágmarki
enda strangheiðarlegur þorskur á
ferð. Það er Hrafnkell Sigríðarson,
yfirmatreiðslumaður á Mat Bar, sem
á heiðurinn af honum en samsetn-
ingin er sérlega snjöll enda vitum við
vel að kokkar hafa flestir hverjir
hærri eðlisgreind þegar kemur að
mat.
Það er einmitt það sem við treyst-
um á og ljóst er að bakaði þorskurinn
hans Hrafnkels er sannkallað sæl-
gæti. Hrafnkell skorar á Sigurð
Kristin Laufdal Haraldsson, yfirkokk
á Grillinu, og lesendur fylgjast vænt-
anlega spenntir með hvað hann mun
bjóða upp á í næstu viku.
Bakaður þorskur með tómat-BBQ,
sýrðum eplum, rauðkáli, eldpipar- og
eplasmjöri
Uppskrift fyrir 2
400 g þorskhnakki
salt
Þorskurinn hreinsaður og saltaður
vel í 20 mínútur.
Síðan skolaður og þerraður.
Rauðkál
1⁄5 af rauðkálshaus
gott sjávarsalt
Rauðkálið skorið í þunnar ræmur
og velt upp úr slatta af salti. Látið
standa í 15-20 mínútur og síðan skol-
að vel.
Tómat-BBQ
½ eldpipar
1 hvítlauksgeiri
1 laukur
1 dós niðursoðnir tómatar
20 ml balsamikedik
Eldpipar, hvítlaukur og laukur
skorið smátt.
Svitað létt í potti og tómötunum og
balsamikediki bætt við og soðið niður
um helming. Allt sett í matvinnsluvél
og unnið saman í mauk.
Sýrð epli
1 grænt epli
50 ml eplaedik
75 ml vatn
20 g sykur
Eplaedik, vatn og sykur hitað að
suðu og síðan kælt. Eplið skrælt og
helmingur tekinn frá, hinn helming-
urinn kjarnhreinsaður og skorinn í
munnbita. Bitarnir lagðir í ediklausn-
ina og látið standa í allavega klukku-
stund.
Eldpipar- og eplasmjör
helmingurinn af eplinu, sem var skilinn
eftir
100 g smjör
½ eldpipar
Eplið skorið í smábita og bakað við
160°C í 10-15 mín. eða þar til mauk-
eldað, síðan unnið í matvinnsluvél í
mauk. Smjörið brætt og unnið í mat-
vinnsluvél ásamt eldpiparnum og
sigtað vel. Síðan öllu blandað vel sam-
an.
Rétturinn settur saman:
Þorsknum er velt upp úr tómat-BBQ-
sósunni og bakaður við 190°C í 4-6
mínútur (fer eftir þykkt stykkja).
Rauðkáli og sýrðum eplum er bland-
að saman í skál og smakkað til með
smá af edikinu frá eplunum og sett á
disk. Þorsknum bætt ofan á rauðkáls-
salatið. Epla- og eldpiparsmjörið er
hitað upp og hellt yfir. thora@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meistarakokkur Hrafnkell Sigríðarson, yfirkokkur á Mat Bar.
Fimm eða færri:
Einfaldur
spariþorskur
Spariþorskur Sérdeilis glæsilegur réttur sem er líka frekar auðveldur.
Uppskriftaröðin Fimm eða færri hefur slegið í
gegn á Matarvef mbl en þar keppast færustu
kokkar landsins við að búa til ómótstæðilega
rétti með fimm hráefnum eða færri.