Morgunblaðið - 16.02.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2018
Með því að velja hráefnið
af kostgæfni, nota engin aukaefni
og hafa verkhefðir fyrri tíma
í hávegum, framleiðum við
heilnæmar og bragðgóðar
sjávarafurðir.
Söluaðilar:
10-11, Hagkaup, Iceland
verslanir, Kvosin, Melabúðin,
Nettó, Samkaup,
Sunnubúðin, Pure Food Hall
flugstöðinni Keflavík.
Það var sannarlega öðruvísi um að litast við Bessastaði í gær
en sama dag fyrir ári, 15. febrúar 2017. Þá voru Bessastaða-
túnin farin að grænka, sól ríkti í heiði, forsetafáninn bærði
vart á sér, fuglarnir tylltu sér á mosagræna bakka Lambhúsa-
tjarnar og snjórinn í Esjunni var hverfandi.
var óvenjuhlýr en eins og landsmenn hafa orðið varir við í
þessum mánuði hefur lægðagangurinn verið óstöðvandi, með
tilheyrandi fannfergi og ófærð. Sagt er að skammtímaminni
landans sé lélegt þegar kemur að tíðarfari og áreiðanlega
flestir búnir að gleyma góða veðrinu fyrir ári.
Á myndinni til hægri sést að í gær var sólin þó á lofti en
Bessastaðir og Esjan umlukt snjó, tjörnin ísilögð, fáir fuglar á
sveimi og forsetinn ekki heima. Fyrir ári birtist frétt í Morg-
unblaðinu um að trjárunnar væru farnir að bruma og vor-
laukar að gægjast upp úr moldinni. Fyrri hluti febrúar í fyrra
Skammtímaminnið stopult þegar veður er annars vegar – fyrir ári var vor í lofti og snjórinn í Esjunni að hverfa
Bessastaðir 15. febrúar 2017 og 2018
Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon
Guðni Einarsson
Erna Ýr Öldudóttir
Heiðar Friðriksson í Ólafsvík ber
heilsugæslulækni alvarlegum sökum
í opnum pistli sem hann birti á Face-
book 12. febrúar. Hann skrifar að
konan sín hafi dottið, rekið höfuðið í
vegg og rotast snemma morguns 21.
janúar sl. Heiðar hringdi strax í 112
og bað um lækni og sjúkrabíl í hvelli,
en konan lá meðvitundarlaus á gólf-
inu. Hann lýsti aðstæðum og ástandi
konunnar fyrir starfsmanni Neyðar-
línunnar.
Konan rankaði við sér en var of
máttfarin til að standa upp. Heiðar
gat komið henni upp í rúm þar sem
hún lá þegar sjúkraflutningamenn
komu. Þeir hjálpuðu við að klæða
hana og var hún sett á sjúkrabörur.
Annar sjúkraflutningamaðurinn
sagði að heilsugæslulæknirinn ætlaði
ekki að koma, þeir ættu að flytja kon-
una beint suður á bráðamóttöku.
„Ég lét hann segja mér þetta aftur
því ég trúði ekki að læknir sem vissi
allt um sjúkdóm hennar myndi haga
sér svona, hún hefði getað verið höf-
uðkúpubrotin, handleggsbrotin eða
með heilablæðingu. Honum var bara
alveg sama um það, hún skyldi ekki
fá neina þjónustu hjá honum, hann
hafði nefnilega hringt í hana fyrir
nokkrum mánuðum og sagt henni að
hún fengi aldrei þjónustu hans fram-
ar af því að hún hefði klagað hann til
klögunarstjórans á Akranesi,“ skrif-
ar hann.
Eiginkona Heiðars, Gunnhildur
Linda Vigfúsdóttir, lést 30. janúar,
63 ára gömul, og var hún jörðuð 10.
febrúar. Heiðar spyr hver beri
ábyrgð á þessu og gefi lækni vald til
að neita sjúklingi um lögboðna þjón-
ustu. Hann kveðst ætla að fara með
málið eins langt og hann geti.
Komið í hendur landlæknis
„Málið er nú í höndum landlæknis
og hann ætlar að taka sér þann tíma
sem hann þarf til að skoða þessi mál.
Þetta sem þarna er greint frá er við-
bót við það sem ég var búinn að klaga
þetta fólk fyrir áður,“ sagði Heiðar í
samtali við Morgunblaðið. Hann
sagði málið snúa einungis að heilsu-
gæslustöðinni í Ólafsvík en stöðin er
hluti af Heilbrigðisstofnun Vestur-
lands (HVE).
Heiðar sagði að tiltekinn læknir á
heilsugæslustöðinni hefði hringt til
Gunnhildar og tilkynnt að hann
myndi aldrei framar veita henni
þjónustu. Það gerðist í framhaldi af
því að Heiðar sendi framkvæmda-
stjóra lækninga hjá HVE kvörtun
vegna framkomu starfsfólks á heilsu-
gæslustöðinni gagnvart Gunnhildi.
Síðasta sumar sendi Gunnhildur
skriflega kvörtun til landlæknisemb-
ættisins vegna framkomu starfs-
manna heilsugæslunnar. Landlæknir
tók strax á málunum. Heiðar sagði að
hann væri búinn að fá svör frá tveim-
ur læknum en vantaði greinargerð og
svör frá heilsugæslustöðinni í Ólafs-
vík. Hann sagði að sami læknir og
sagði Gunnhildi upp þjónustu hefði
verið á vakt 21. janúar. Heiðar sagði
að Gunnhildur hefði lengi verið mikill
sjúklingur. „Þetta er búið að standa
yfir í nokkur ár,“ sagði Heiðar. Hann
sagðist ekki vilja segja að slysið 21.
janúar hefði valdið andláti Gunnhild-
ar níu dögum síðar.
Heiðar kvaðst fyrst og fremst gera
athugasemd við að læknirinn hefði
ekki komið þegar Gunnhildur datt.
Það hefði stórséð á henni og blætt úr
höfðinu á henni. Læknarnir hefðu
vitað að hún var með lífshættulegan
sjúkdóm og þekkt sjúkrasögu henn-
ar.
„Ég ætla að stoppa svona vitleysu
og meðferð á sjúklingum ef ég get,“
sagði Heiðar. „Ég get ekki sætt mig
við að fólk sé blokkerað svona. Ég fór
alltaf með konunni minni til læknis
og sagði henni hvað læknarnir sögðu
við hana. Þeir kölluðu hana öllum ill-
um nöfnum. Landlæknir er að skoða
þetta. Svo bættist þetta við. Kona
sem er að berjast fyrir lífi sínu á ekki
að fá svona trakteringar.“ Heiðar
sendi landlækni beiðni um að atvikið
21. janúar yrði skoðað.
Læknirinn tjáir sig ekki
Jóhanna F. Jóhannesdóttir, for-
stjóri HVE, sagði að um tvö mál væri
að ræða. Það fyrra væri í ferli.
Hún kvaðst fyrst hafa heyrt af
málunum þegar færsla Heiðars birt-
ist á Facebook. Það að læknir hefði
ekki svarað útkalli yrði skoðað vel.
Almennt talað sagði Jóhanna að
læknir heilsugæslunnar gæti ekki
sagt sig frá bráðaþjónustu þegar
ekki væri annar læknir á svæðinu.
Læknirinn sem um ræðir ætlar
ekki að tjá sig um málið við fjölmiðla.
Læknir borinn þungum sökum
Ekkill í Ólafsvík segir heilsugæslulækni hafa neitað að veita veikri eiginkonu sinni þjónustu Lækn-
irinn sem um ræðir ætlar ekki að tjá sig um málið við fjölmiðla Landlæknir skoðar ásakanir ekkilsins
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ólafsvík Kona, sem var mikill sjúklingur, datt og slasaðist. Maður hennar
óskaði eftir sjúkrabíl og lækni. Sjúkrabíllinn kom en læknirinn ekki.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðu-
sambands Íslands, segir að viss spenna
sé að hlaðast upp, nú þegar aðeins
tvær vikur eru til stefnu fyrir ASÍ að
taka ákvörðun um það hvort kjara-
samningum verður sagt upp um mán-
aðamótin.
Gylfi var í gær spurður hver staðan
væri í hinni sameiginlegu endurskoð-
unarnefnd ASÍ og SA. „Í sjálfu sér
hafa mál í þeirri nefnd bara verið rædd
og til skoðunar. Þar er engin afstaða
tekin eða ákvarðanir. Menn ræða auð-
vitað málin heima í héraði og skiptast á
skoðunum um málin,“ sagði Gylfi. Að-
spurður hvort hann teldi að einhver
spenna væri að hlaðast upp, nú þegar
svona stuttur tími væri til stefnu, þar
til ákvörðun þyrfti að liggja fyrir um
það hvort kjarasamningum verður
sagt upp sagði Gylfi: „Já, auðvitað er
það að gerast, það er mjög eðlilegt,
ekki síst vegna þess að tímapunkturinn
er að nálgast og þá þarf að taka
ákvörðun. Það leiðir til þess að menn
þurfa að fara að horfa á málin raun-
hæfum og praktískum augum og meta
stöðuna í baklandinu. Við það eitt verð-
ur meiri spenna, það er ljóst.“
„Í samninganefnd ASÍ þurfa menn
að ráða ráðum sínum og komast að nið-
urstöðu um hvað menn vilja gera,“
sagði Gylfi.
Hann segir að ákvörðun á þessum
vettvangi sé tvíþætt: Meirihluti nefnd-
armanna þurfi að vera sammála um
niðurstöðuna og auk þess þurfi meiri-
hlutinn að hafa meirihluta fé-
lagsmanna að baki sér.
„Auðvitað eru miklar væntingar inn-
an stéttarfélaganna um einhverjar að-
gerðir af hálfu stjórnvalda til þess að
liðka fyrir gerð kjarasamninga. Hing-
að til hafa ekki fengist mikil svör frá
stjórnvöldum. Eitt er að glíma við for-
sendubrestinn en hitt er að svara því til
hvers hann á að leiða. Enn hafa ekki
fengist skýr svör við því,“ sagði Gylfi.
Segir vissa spennu að hlað-
ast upp hjá stéttarfélögum
Eðlilegt, segir forseti ASÍ, þegar tvær vikur eru til stefnu