Morgunblaðið - 16.02.2018, Qupperneq 35
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2018
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
LÍTILL TÍMI FYRIR
RÆKTINA?
Komdu þér í fantaform
með 1-2-3 æfingakerfinu okkar
Taktu einn krefjandi 30 mínútna tíma, ef þú
ert á hlaupum. Svo geturðu bætt við öðrum
og þeim þriðja eftir því sem hentar þér best.
90 ára
Guðni Þorvaldur Jónsson
Magnús Gissurarson
Pálhanna Magnúsdóttir
85 ára
Elín Halldórsdóttir
Þorsteinn S. Steingrímsson
80 ára
Áslaug A. Jóhannsdóttir
Erla Margrét Jónsdóttir
Helgi Sigfússon
Snjólaug J. Jóhannsdóttir
75 ára
Birgir Arnar
Freyja P. Sigurvinsdóttir
Guðrún Helgadóttir
Gunnar Jónatansson
Magnea G. Sigurðardóttir
Sigurður S. Guðmundsson
Þrándur Ingvarsson
70 ára
Bergljót Jónsdóttir
Guðmundur A. Grétarsson
Jón Benediktsson
María Jónsdóttir
Stefán Ingi Valdimarsson
60 ára
Ágúst Vernharðsson
Björn Thoroddsen
Bryndís B. Guðbjartsdóttir
Guðmundur Sigtryggsson
Guðmundur Þór Jónsson
Guðrún Elva Arngrímsdóttir
Gunnlaug Jóhannsdóttir
Jóhann Þór Sigurðsson
Svanfríður Sigurðardóttir
Valgarð Ármannsson
Þorvaldur Þórðarson
Þröstur Ólafsson
50 ára
Aðalbjörg Karlsdóttir
Björn Jónsson
Edda Bangon Khiansanthia
Fe Fledelyn Oriol
Flosi Þorgeirsson
Hanna Guðlaugsdóttir
Lixin Wang
Sigrún Benedikz
Snæbjörn Óttarsson
Sverrir Reynisson
40 ára
Alicja Obuchowska
Arnar Ólafsson
Arndís Ösp Hauksdóttir
Árný Jónsdóttir
Bryndís Sveinsdóttir
Cristi-Constantin Carp
Guðrún B. Jóhannsdóttir
Harpa Sigmarsdóttir
Hilmar Þór Hafsteinsson
Iryna Dyer
Romans Popovs
Sigríður Harpa Wolfram
Sverrir Hannesson
Thelma E.Hjaltadóttir
Tomasz S. Wieckowski
Vésteinn Ingibergsson
Þorgerður Gunnarsdóttir
30 ára
Aneta Wojtowicz
Armando Beqirai
Arna Hjörleifsdóttir
Árni Ásgeirsson
Daníel Helgason
Destiny Mentor Nwaokoro
Dorota P. Feria Escobedo
Helena Ósk Gunnarsdóttir
Íris Björnsdóttir
Manon A. Zohra Villemont
Marcin Slawosz Sozanski
Nela Rajic
Óðinn Þór Jónsson
Raimondas Mickevicius
Sebastian Dawid Hydel
Vilhjálmur Atlason
Til hamingju með daginn
30 ára Soffía er að ljúka
BSc-prófi í viðskiptafræði
og starfar hjá Fjárvakri.
Maki: Elías Jóhann Jóns-
son, f. 1985, markaðs-
fulltrúi hjá Póstinum.
Börn: Viktoría Karla, f.
2015, og Hinrik Karl, f.
2016.
Foreldrar: Þuríður Ragna
Sigurðardóttir, f. 1955,
hjúkrunarfr. og for-
stöðum., og Kristján A.
Ólafsson, f. 1954, dóm-
vörður hjá Hæstarétti.
Soffía Rún
Kristjánsdóttir
30 ára Pálmi ólst upp á
Bíldudal, býr í Kópavogi
og er bifvélavirkjameist-
ari hjá Öskju.
Maki: Guðrún Hjartar-
dóttir, f. 1989, hjúkrunar-
fræðingur í diplómanámi.
Dóttir: Ólafía Tara, f.
2015.
Foreldrar: Gísli Matt-
híasson, f. 1962, verk-
taki, kranamaður og
vélamaður, og Lára Þor-
kelsdóttir, f. 1961, leik-
skólakennari.
Pálmi Þór
Gíslason
30 ára Guðjón ólst upp á
Akranesi, býr þar, stundar
nám í véla- og orku-
tæknifræði við HR og er
lögregluþjónn á Akranesi.
Maki: Salome Jónsdóttir,
f. 1995, nemi í hjúkrunar-
fræði við HÍ.
Foreldrar: Guðmundur
Árni Gunnarsson, f. 1955,
verkstæðismaður hjá
Hópferðabílum Reynis Jó-
hannssonar, og Erla Þórð-
ardóttir, f. 1953, hús-
freyja.
Guðjón Smári
Guðmundsson
aftur heim. Friðrik Ingi tók þá við
framkvæmdastjórastöðu Skipa-
afgreiðslu Hafnarsjóðs og sinnti því
starfi 1974-76. Þá var Skipa-
afgreiðslunni hætt og við tók nýtt
félag, Herjólfur hf. Friðrik Ingi
varð fyrsti forstjóri þess en hann og
stjórn félagsins tóku á móti nýju
skipi, Herjólfi, í Kristjánsund í
Noregi 1976.
Friðrik Ingi starfaði hjá Herjólfi
til 1978. Þá hóf hann sjálfur rekstur
Skipaafgreiðslu F. Óskarssonar og
byggði m.a. hús við Friðarhöfn fyrir
afgreiðslu sína, sem nú hýsir Fisk-
markað Vestmannaeyja. Skipa-
afgreiðsluna rak hann til 1986. Þá
flutti hann til Reykjavíkur og hefur
síðan sinnt endurskoðun og bók-
haldi, lengst af hjá ÞB endurskoðun
ehf., en einnig á eigin vegum.
Þó að Friðrik Ingi búi nú í Mos-
fellsbæ á hann, og sambýliskona
hans, íbúð og lögheimili í Vest-
mannaeyjum og þar dvelur hann og
starfar af og til.
Friðrik Ingi spilar á píanó, er
snillingur á harmonikku og hefur
auk þess samið nokkur sönglög.
Fjölskylda
Fyrrv. eiginkona Friðriks Inga er
Auður Dóra Haraldsdóttir, f. 26.6.
1949, fyrrv. bankastarfsmaður. Þau
slitu samvistum árið 2000.
Synir Friðriks Inga og Auðar
Dóru eru 1) Örlygur Gunnar Frið-
riksson, f. 3.7. 1967, rafvirkjameist-
ari í Norwich á Englandi en kona
hans er Tracy M. Fridriksson og er
dóttir þeirra Thordis M. Soffía, dag-
skrárgerðarkona hjá BBC í Cam-
bridge; 2) Óskar Sveinn Friðriks-
son, f. 22.5. 1969, sjávarútvegs-
hagfræðingur og framkvæmdastjóri
hjá Eimskip í Rotterdam í Hollandi,
en kona hans er Sigrún Grettis-
dóttir og eru dætur þeirra Tinna
Ósk og Hekla Rún. Fyrir átti Óskar
Sveinn soninn Friðrik Inga, raf-
virkja- og véltæknifræðing hjá
KAPPS ehf., en unnusta hans er
Þóra Johnsdóttir og eiga þau dótt-
urina Emblu Guðrúnu en fóst-
ursonur Óskars Sveins er Andri
Már, félagsfræðingur, kennari og
tónlistarmaður, og unnusta hans er
Karen Sif Heimisdóttir og sonur
þeirra Gunnar Atli; 3) Freyr Frið-
riksson, f. 19.6. 1976, véltæknifræð-
ingur, framkvæmdastjóri og aðal-
eigandi KAPPS ehf., kvæntur Elfu
Hrönn Valdimarsdóttur og eign-
uðust þau fjóra syni, Valdimar Frey,
Tjörfa Frey, sem er látinn, Teit
Frey, og Darra Frey.
Sambýliskona Friðriks Inga er
Guðlaug Kristófersdóttir, f. 21.11.
1940, fyrrv. bankastarfsmaður.
Systkini Friðriks Inga eru Sig-
urður Óskarsson, f. 24.5. 1944, húsa-
smíðameistari, kafari og hönnuður,
búsettur í Vestmannaeyjum, og Kol-
brún Ósk Óskarsdóttir, f. 29.9. 1950,
fyrrv. læknaritari í Hafnarfirði.
Foreldrar Friðriks Inga voru
Óskar Sigurðssonar, f. 1.6. 1910, d.
4.6. 1969, löggiltur endurskoðandi
og framkvæmdastjóri Vinnslustöðv-
arinnar hf., og Soffía Friðrika Zop-
haníasardóttir, f. 6.12. 1919, d. 5.8.
1985, húsfreyja.
Friðrik Ingi
Óskarsson
Hallfríður Þorláksdóttir
vinnukona á Hvítanesi, síðar í Rvík
Gísli Gíslason
vinnum. á Hvítanesi
og verkam. í Rvík
Zophanías Sveinsson
b. og smiður að Stóru-Býlu í Innri- Akraneshr.
Soffía Friðrika Zophaníasdóttir
húsfr. í Vestmannaeyjum
Sigurbjörg Sigurðardóttir
húsfr. í Staðarhöfða í Innri- Akraneshr.
Sveinn Eiríksson
útvegsb. í Staðarhöfða
Sigurður Óskarsson
húsasmiður og kafari í Eyjum
Kolbrún Ósk Óskarsdóttir
húsfr. í Hafnarfirði
Lilja Sigurðarsdóttir húsfr. á Eyrarbakka
Ingvi Magnús Zophaníasson
húsgagnasmiður í Rvík
Sigurður Zophaníasson sjóm. í Eyjum
Sveinbjörg Zophaníasdóttir húsfr. í Rvík
Kjartan Reynir Zophaníasson
bifvélavirki í Kópavogi
Guðrún Oddsdóttir
húsfr. í Tungu, frá Sámsstöðum,
af Víkingslækjarætt
Jón Ólafsson
b. í Tungu í Fljótshlíð
Auðbjörg Jónsdóttir
húsfr. í Bólstað
Sigurður Ólafsson
útgerðarm., skipstj. og smiður í Bólstað í Eyjum
Oddur Ólafsson
læknir í Rvík
Davíð Oddsson ritstj. Morgunblaðsins
Ólafur Oddsson íslenskukennari við MR
Þorgerður Oddsdóttir
húsfr. í Hrútafellskoti
Ólafur Guðmundsson
b. í Hrútafellskoti undir
Eyjafjöllum
Úr frændgarði Friðriks Inga Óskarssonar
Óskar Sigurðson
endurskoðandi og forstj.
Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum
Gísli Pálsson mannfr.
og prófessor
Karl Pálsson
rafeindafr. hjá Isavia
Auðbjörg Pálsdóttir
kennari í Rvík
Lilja Pálsdóttir bankastj.
hjá Íslandsbanka Bára Sigurðar dóttir
húsfr. í Eyjum og Rvík
Gunnar Friðberg Sigurþórsson
b. í Miðkrika í Hvolhreppi
Sigurður Sigurþórsson fyrrv.
b. á Þórunúpi í Hvolhreppi
Ásta Laufey
Gunnarsdóttir
húsfr. á Hvolsvelli
Ingibjörg Gísladóttir
húsfr. í Stóru-Býlu
Ólafur Oddsson
ljósmyndari í Rvík
Hjördís Sigursteinsdóttir hefur varið
doktorsritgerð sína í félagsfræði við
Háskóla Íslands. Ritgerðin nefnist
„Heilsa og líðan starfsfólks íslenskra
sveitarfélaga í kjölfar efnahagshrunsins
2008. Leiðbeinandi var dr. Guðbjörg
Linda Rafnsdóttir aðstoðarrektor vís-
inda og prófessor í félagsfræði í félags-
og mannvísindadeild Háskóla Íslands. Í
doktorsnefnd sátu auk hennar dr. Guð-
björg Andrea Jónsdóttir forstöðumaður
Félagsvísindastofnunar, dr. Þorgerður
Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði í
stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands,
og Asbjørn Grimsmo, vísindamaður hjá
Work Research Institute í Ósló og
Akershus University College of Applied
Sciences.
Flestum er vel í minni fall íslensku
bankanna á haustdögum 2008 og þær
afleiðingar sem það hafði á almenning
sem og fyrirtæki/stofnanir í landinu.
Starfsfólk íslenskra sveitarfélaga hefur
verið talið búa við mikið starfsöryggi og
því var fróðlegt að skoða breytingar á
starfsaðstæðum þessa hóps árin eftir
fall bankanna og vinnutengda heilsu
þeirra og líðan. Rannsóknin náði til 20
sveitarfélaga með 2.000 íbúa eða fleiri
á tímabilinu 2010-2013. Sjónum var
beint að tveimur starfshópum innan
sveitarfélag-
anna, annars
vegar starfsfólki
skólanna og hins
vegar starfsfólki
elliheimila og
sambýla.
Niðurstöð-
urnar sýna að
álagið jókst
einkum á milli
áranna 2010 og
2011, en þó einnig á milli áranna 2011
og 2013. Á þessu tímabili fjölgaði einn-
ig þeim sem voru frá vinnu vegna veik-
inda og þeim sem leituðu til læknis
vegna heilsubrests sem rekja mátti til
aðstæðna í vinnunni. Það sama gilti um
starfsfólk sem hafði orðið fyrir einelti,
áreitni og ofbeldi á vinnustaðnum ann-
aðhvort af hálfu samstarfsfólks, yf-
irmanna eða skjólstæðinga og/eða að-
standenda þeirra. Niðurstöðurnar sýna
að áðurnefnd einkenni jukust mest á
vinnustöðum þar sem uppsagnir höfðu
átt sér stað. Í ljósi þessa er mikilvægt
að stjórnendur hafi í huga möguleg
langtíma neikvæð áhrif samdráttar í
starfsmannahaldi á starfsaðstæður og
líðan fólks á tímum kreppu og aðhalds-
aðgerða.
Hjördís Sigursteinsdóttir
Hjördís Sigursteinsdóttir er fædd 20. febrúar 1967 á Akureyri. Hún lauk MA-
prófi í félagsfræði í Háskóla Íslands og er nú aðjunkt við viðskipta- og raunvís-
indasvið Háskólans á Akureyri. Börn Hjördísar eru Brynhildur Laufey, Elsa Rún,
Bjarndís Ragna og Geirfinnur Brynjar og barnabarn hennar er Ísabella Marý.
Doktor