Morgunblaðið - 16.02.2018, Side 37

Morgunblaðið - 16.02.2018, Side 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2018 LISTHÚSINU Frönsku flauelspúðarnir Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 11-15Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 komnir í Kaiufrá Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert heltekin/n af ferðaþrá þessa dagana. Reyndu að svala þessari þörf þinni, þú átt það skilið eftir alla vinnuna síðustu mánuði. 20. apríl - 20. maí  Naut Vertu óhrædd/ur við að losa þig við hluti sem þú hefur ekki lengur not fyrir. Reyndu að forðast að grípa til ósanninda til að komast hjá átökum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er ekki þitt verk að ala fullorðið fólk upp. Hofðu beint fram og láttu aðra um vandamál sem þér koma ekki við. Þú færð símhringingu sem á eftir að gleðja þig mikið. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Reyndu að ná betri tökum á skapi þínu, þannig að það hlaupi ekki með þig í gönur. Uppeldið getur tekið á, en mundu að það tekur enda. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú þarft að venja þig af þessum stöð- ugu áhyggjum sem þú hefur af öllu og öllum. Allt sem þú gerir gengur vel og hratt fyrir sig. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Veltu ekki of lengi fyrir þér hvernig þú átt að framkvæma hlutina því þú gætir misst af lestinni. Þú ert sterkari en þú heldur. 23. sept. - 22. okt.  Vog Óvænt tækifæri gefst til ferðalaga á næstunni. Reyndu að sitja á strák þínum þótt öðrum verði á mistök. Taktu skrefið í átt að heilsusamlegra lífi strax í dag. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú skalt forðast það í lengstu lög að viðra þær skoðanir þínar sem kunna að stangast á við stefnu yfirmanna þinna. Allt dafnar í návist þinni. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þær aðstæður hafa skapast að þú ert í óvenjuvaldamikilli aðstöðu og því skiptir miklu máli að þú kunnir með vald þitt að fara. Allir þurfa ást og allir eru færir um að gefa hana. 22. des. - 19. janúar Steingeit Varastu stóryrtar yfirlýsingar og skuldbindingar sem kunna að koma þér í koll. Þú ert alltaf skrefi á undan öðrum þegar kemur að tísku og færð mikla athygli þess vegna. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Enginn ætlast til þess að þú verðir sérfræðingur einn, tveir og þrír. Taktu þér pásu á hverjum degi til að staldra við og ákveða næstu skref. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur sett stefnuna á ákveðið tak- mark og þá er bara að vinna að því og hvika hvergi. Forðastu þýðingarmiklar ákvarðanir og láttu vera að skuldbinda þig á einhvern hátt. Sigurlín Hermannsdóttir skrifaðiá Leirinn á þriðjudag að um fátt væri meira ort en veðrið þessa dagana enda gæfust næg tilefni: Nú kemur hér endalaust lægð eftir lægð og landsbúar taka því flestir með hægð þótt rosinn sé rétt eins og gengur. Ef umhleypingsveðurfar væri ekki til og vart þekktum hálku og snjó eða byl þá mundi enginn yrkja neitt lengur. Ólafur Stefánsson situr heima á búi sínu, Syðri-Reykjum í Bisk- upstungum, þar sem vegir hafa verið að teppast: Veðurspáin vart er grín, viðsjált mjög að fara’ af stað, en silfur falda Sigurlín, sendir vísu fyrir það. Enn yrkir hann og nú dýrt: Spá að vanda vart er fín, vinnur grand að feta slóð. Sirtings banda sólarhlín söðlar gand í vísnamóð. Guðmundur á Sandi var mikið náttúrubarn og náttúruskoðari. Og hringhendan var honum eðlislæg: Bylgjan syngur; háreist hrönn hrín á þingi vinda. Kyljan dyngir fyllu af fönn framan í bringu rinda. Strokur gráar húsin hrjá, hrímga skjái sparka; ýlustráin hljóða há, hringi á snjáinn marka. Dauðinn hóar hátt við sjó, hleypur flóann kringum; lætin óa úti í mó öllum snjótittlingum Löngum stúrin líður önn; ljúfum dúrum hallar. Rjúpan lúrir, lögð í fönn, læst í búri mjallar. Bárugangur bítur stein, bjargatanga mótar. Sýldum drang og svalri hlein sær í fangi rótar. Það er erfitt að botna þvílíkan skáldskap nema með því að rifja upp lausavísur gamlar, – þessi er alkunn: Ungur maður og aldrað fljóð ekki á saman í heimi, en gamall karl og kona rjóð kærleik trúi eg þau geymi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Lægð eftir lægð og ort á Sandi Í klípu „LEIKLISTIN ER DRAUMASTARFIÐ MITT. ÞETTA ER BROSTNA DRAUMASTARFIÐ MITT.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG VEIT EKKI HVAÐA DÝR ÞETTA VAR, EN ÞAÐ GAT SVO SANNARLEGA HLAUPIÐ.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir að koma heim og finna ilminn af nýbökuðu brauði. AF HVERJU HREYFIRÐU ÞIG EKKI MEIRA? EKKI MÉR AÐ KENNA ÞYNGDARAFLIÐ VAR EKKI MÍN HUGMYND HVERNIG LÍTA ÞEIR ÚT? HRÓLFUR! ÁHÖFNINNI HEFUR VERIÐ GERÐ FYRIRSÁT! EINS OG FERNINGAR! DÆS STYNJ Á Víkverji botnar takmarkað í klaka-mynduninni á bílastæðinu fyrir utan híbýli hans. x x x Þegar veður er umhleypingasamt,sem er nú ekki beinlínis óþekkt á höfuðborgarsvæðinu á veturna, þá skilur það eftir sig klaka á stéttum og bílastæðum. x x x En klakamyndunin er stórfurðuleg ábílastæði Víkverja. Jafnvel þótt klakinn hafi minnkað verulega á 95% hluta svæðisins þá verður iðulega eftir klakabunga. x x x Bungan er gjarnan mjög myndarlegog verður á stærð við hraða- hindrun með tilheyrandi óþægindum fyrir bifreiðar og reiðhjól. x x x Hún er auk þess alla jafna mjög líf-seig og gefur ekki eftir fyrr en í kringum þjóðhátíðardaginn. x x x Víkverja er skapi næst að fá góðanveðurfræðing til að greina fyrir- bærið. Til dæmis Harald „Batman“ eða Einar „roðbrók“ ef þeir eru ekki störfum hlaðnir nú þegar veðurfræð- ingar hafa hreinlega misst töluna á öllum þeim lægðum sem heimsótt hafa eyjuna í vetur. x x x Þótt axlir kunningja Víkverja gróismátt og smátt má eins og áður minna sveitarstjórnarmenn á að at- kvæði gætu falist í því að fara í aðferð- ir gegn hálkunni. Færri beinbrot ættu að teljast af hinu góða. x x x Okkar glæsilegi borgarstjóri hefurreyndar í nógu að snúast, það þarf að smúla út úr óvenjumörgum hornum þessa dagana. Einhverjir grallaraspóar hafa til dæmis verið að senda gamla pönkara inn á fundi hjá honum í einu alfínasta draugahúsi borgarinnar. Leiðinlegt þegar glæsi- menni í pólitíkinni þurfa að ganga einnig í störf útkastara ofan á allt ann- að. Nóg er nú samt af vandamálum í borgarkerfinu. vikverji@mbl.is Víkverji Innan skamms mun heimurinn ekki sjá mig framar. Þér munuð sjá mig því ég lifi og þér munuð lifa. (Jóh: 14.19)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.