Morgunblaðið - 16.02.2018, Page 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2018
Stjórnendur Kvikmyndahátíð-
arinnar í Berlín, sem hófst í gær og
stendur til 25. febrúar, hafa skipu-
lagt ýmsa viðburði og umræður
meðan á hátíðinni stendur þar sem
sjónum verður beint að kynferðis-
legri áreitni og ofbeldi. Frá þessu
greinir Politiken og er á það bent að
hátíðin sé sú stærsta sem haldin er
síðan #metoo-byltingin hófst seint á
síðasta ári. Að sögn Dieters Koss-
lick, framkvæmdastjóra hátíðar-
innar, er þetta gert til að undir-
strika að hátíðinni sé ætlað að
stuðla að umburðarlyndi og fjöl-
breytileika.
Í frétt Politiken kemur fram að
stjórnendur hátíðarinnar hafi þurft
að hætta við sýningu fimm mynda
vegna ásakana um ósæmilega hegð-
un í garð leikstjóra eða leikara. Alls
keppa 19 myndir um Gullbjörninn.
Þýska leikkonan Claudia Eisinger
lagði til að rauða dreglinum væri í
ár skipt út fyrir svartan til að mót-
mæla kynferðislegu ofbeldi en því
höfnuðu stjórnendur hátíðarinnar.
Samkvæmt frétt The Guardian
hefur þýska leikkonan Anna
Brüggemann hrundið af stað átak-
inu #NobodysDoll (sem þýða mætti
sem „ekki puntudúkka neins“) sem
ætlað er að storka „glápi feðraveld-
isins“. Segir hún tískusýningarnar á
rauða dreglinum færa kvikmynda-
bransann aftur til miðju síðustu ald-
ar. „Ætlast er til að konur klæðist
þröngum, flegnum kjólum og staul-
ist áfram á ómögulegum hælum til
að ganga í augu þeirra sem eiga að
dæma hvort þær séu söluhæfar eða
ekki. Það er kominn tími til að
klæðnaðurinn verði fjölbreyttari og
að við getum horft upp til stefnu-
fastra kvenna sem þora að fara sín-
ar eigin leiðir,“ segir Brüggemann
og hvetur konur í kvikmyndabrans-
anum til að klæðast hverju því sem
þeim þyki þægilegast hvort sem það
eru gallabuxur og kúrekastígvel eða
stuttermabolur og strigaskór.
„Það er heldur ekkert að því að
klæðast flegnum flíkum. Aðalatriðið
er að konunum líði vel í fötunum,“
segir Brüggemann.
Ofannefndur Dieter Kosslick und-
irstrikar að ólíkt stjórnendum Kvik-
myndahátíðarinnar í Cannes hafi
stjórnendur hátíðarinnar í Berlín
aldrei gert kröfu um hælaháa skó á
rauða dreglinum. Segir hann fólki í
kvikmyndabransanum velkomið að
klæðast hverju sem er á rauða
dreglinum. „Við vísum hvorki kon-
um í flatbotna skóm frá rauða dregl-
inum né körlum í hælaháum skóm.“
Brüggemann bendir á að málið
snúist ekki bara um skrifleg boð og
bönn, heldur fyrirmyndir. „Átak
mitt snýst um að skoða hvenær kon-
ur verða að viðfangi sem körlum
finnst að þeir hafi rétt á að nota,“
segir Brüggemann og leggur
áherslu á að konur verði að hafa
frelsi til að stjórna eigin útliti.
„Jafnrétti hefst þegar konur hætta
að hugsa um líkama sinn sem eitt-
hvað sem þær þurfi sífellt að bæta.“
AFP
Dómnefnd Þýska kvikmyndahátíðin hófst í 68. sinn í gær. Dómnefnd hátíð-
arinnar skipa þetta árið (í fremri röð frá vinstri) belgíska leikkonan Cecile
de France, þýski leikstjórinn Tom Tykwer sem jafnframt er formaður dóm-
nefndar, bandaríski framleiðandinn Adele Romanski, (í aftari röð f.v.)
spænski leikstjórinn Chema Prado, bandaríski kvikmyndagagnrýnandinn
Stephanie Zacharek og japanska tónskáldið Ryuichi Sakamoto.
Fókus á kynferðis-
legt ofbeldi í Berlín
The Shape of Water
Nýjasta kvikmynd leikstjórans Gu-
illermo del Toro hefur hlotið fjölda
verðlauna og er tilnefnd til Óskars-
verðlauna í 13 flokkum. Sögusvið
myndarinnar er háleynileg rann-
sóknarstöð í Bandaríkjunum í upp-
hafi sjöunda áratugar síðustu aldar
og segir af mállausri verkakonu,
Elisu, sem sér þar um þrif. Í stöð-
inni er dularfull sjávarvera í
mannsmynd til rannsóknar og
heillast Elisa af henni. Milli þeirra
myndast einkar sérstakt ástarsam-
band og ákveður Elisa að bjarga
verunni þegar hún kemst að því að
líf hennar er í hættu. Hefst þá
spennuþrungin atburðarás. Með að-
alhlutverk fara Doug Jones, Sally
Hawkins, Michael Shannon og Oc-
tavia Spencer.
Metacritic: 87/100
Black Panther
Nýjasta ofurhetjumyndin úr smiðju
Marvel og sú fyrsta um ofurhetjuna
Black Panther, eða Svarta pardus-
inn. T’Challa, konungur Wakanda,
snýr aftur til heimalands síns eftir
andlát föður síns og á hann erfitt
verkefni fyrir höndum, að sameina
ættbálka landsins í baráttu gegn
mönnum sem ógna ekki aðeins ríki
hans heldur öllum heiminum. Leik-
stjóri myndarinnar er Ryan Coog-
ler og með aðalhlutverk fara Chad-
wick Boseman, Lupita Nyong’o,
Michael B. Jordan, Danai Gurira,
Martin Freeman, Andy Serkis, For-
est Whitaker og Angela Bassett.
Metacritic: 87/100
Söngsýningar og Tarkovsky
Í Bíó Paradís verður boðið upp á
nokkrar sérsýningar, í kvöld er það
söngsýning á Mamma Mia! og á
morgun verður önnur söngsýning,
á Rocky Horror Picture Show.
Kvikmyndaklúbburinn Svartir
sunnudagar sýnir svo Offret, eða
Fórnina, eftir leikstjórann Andrei
Tarkovsky á sunnudaginn.
Vatnavera í mannslíki
og Svarti pardusinn
Bíófrumsýningar
Ástarsaga Úr verðlaunamyndinni
The Shape of Water sem segir af
sambandi vatnaveru og verkakonu.
Wild Mouse
Georg missir vinnuna sem
tónlistargagnrýnandi á
þekktu dagblaði í Vínarborg.
Bíó Paradís 20.00
Podatek od milosci
Bíó Paradís 20.00
Call Me By Your
Name
Athugið að myndin er ekki
með íslenskum texta.
Metacritic 93/100
IMDb 8,3/10
Bíó Paradís 17.30, 22.30
Óþekkti
hermaðurinn
Sögusviðið er stríðið milli
Finnlands og Sovétríkjanna
1941-1944.
Morgunblaðið bbbnn
Bíó Paradís 17.30, 22.30
In the Fade
Metacritic 63/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 17.45
Mamma Mia!
Sing along sýning.
Bíó Paradís 20.00
The Post 12
Yfirhylming sem náði yfir
setu fjögurra Bandaríkja-
forseta í embætti, varð til
þess að fyrsti kvenkyns dag-
blaðaútgefandinn og
metnaðarfullur ritstjóri,
lentu í eldlínunni.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 83/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Kringlunni 17.30,
20.00, 22.30
Winchester 16
Sérlunduð kona sem erfir
fyrirtæki sem framleiðir
skotvopn, telur að draugar
fólks sem var drepið með
Winchester rifflum, ásæki
sig.
Metacritic 28/100
IMDb 5,3/10
Sambíóin Egilshöll 22.35
Sambíóin Akureyri 22.20
Den of Thieves 16
Metacritic 50/100
IMDb 7,3/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.50
The 15:17 to Paris 12
Metacritic 45/100
IMDb 5,2/10
Sambíóin Álfabakka 20.30,
22.50
Sambíóin Egilshöll 17.50,
20.00, 22.10
Sambíóin Akureyri 20.00
Maze Runner: The
Death Cure 12
Metacritic 52/100
IMDb 7,2/10
Laugarásbíó 22.35, 22.45
Smárabíó 19.30, 22.20
Molly’s Game 16
Metacritic 7/100
IMDb 7,6/10
Laugarásbíó 19.50
Three Billboards
Outside Ebbing,
Missouri 16
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 88/100
IMDb 8,4/10
Háskólabíó 18.10, 20.50
Bíó Paradís 22.00
The Commuter 12
Metacritic 68/100
IMDb 5,7/10
Laugarásbíó 22.35
The Shape of
Water 16
Metacritic 86/100
IMDb 7,8/10
Sambíóin Álfabakka 17.20,
20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 19.30
Smárabíó 22.30
Háskólabíó 18.00, 21.00
Jumanji: Welcome to
the Jungle 12
Metacritic 58/100
IMDb 7,0/10
Smárabíó 19.40
Svanurinn 12
Morgunblaðið bbbmn
IMDb 7,0/10
Háskólabíó 18.10
Bíó Paradís 22.30
The Greatest
Showman 12
Metacritic 48/100
IMDb 8,0/10
Háskólabíó 18.00, 20.50
Star Wars VIII – The
Last Jedi 12
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 85/100
IMDb 8,4/10
Sambíóin Álfabakka 17.20
Lói – þú flýgur aldrei
einn Lói er ófleygur þegar haustið
kemur og farfuglarnir fljúga
suður á bóginn.
Morgunblaðið bbbbn
Laugarásbíó 15.50, 18.00
Smárabíó 15.30, 17.40
Borgarbíó Akureyri 18.00
Bling Sambíóin Álfabakka 15.40,
18.00
Sambíóin Egilshöll 17.50
Sambíóin Akureyri 18.00
Sambíóin Keflavík 17.30
Ævintýri í
Undirdjúpum IMDb 4,0/10
Sambíóin Álfabakka 15.50
Paddington 2 Metacritic 89/100
IMDb 8,1/10
Laugarásbíó 15.50, 17.45
Smárabíó 15.00, 17.00
Ferdinand Metacritic 58/100
IMDb 6,8/10
Smárabíó 17.10
Svona er lífið Morgunblaðið bbbbn
Háskólabíó 20.40
T’Challa, nýr konungur í Wakanda, þarf að
vernda land sitt frá óvinum bæði erlendis frá
sem og innanlands.
Metacritic 87/100
IMDb 7,1/10
Laugarásbíó 17.00, 19.50, 22.35
Sambíóin Álfabakka 17.00, 20.00, 22.50
Sambíóin Egilshöll 17.00, 18.00, 20.00, 21.00, 22.45
Sambíóin Kringlunni 16.40, 19.30, 22.20
Sambíóin Akureyri 16.40, 19.30, 22.20
Sambíóin Keflavík 16.40, 19.30, 22.20
Smárabíó 16.30, 17.25, 19.10, 19.50, 22.00, 22.30
Black Panther 12
Fifty Shades Freed 16
Christian og Ana eru hamingjusamlega gift en draugar fortíð-
arinnar ásækja þau og hóta að
eyðileggja líf þeirra.
Metacritic 34/100
IMDb 3,6/10
Laugarásbíó 20.00, 22.15
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 22.00
Smárabíó 20.00, 22.30
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.10
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio
Darkest Hour
Í upphafi seinni heimsstyrj-
aldarinnar hvíla örlög hins
frjálsa heims á öxlum
óreynds forsætisráðherra
Bretlands, Winstons Churc-
hills.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 75/100
IMDb 7,4/10
Sambíóin Egilshöll 20.00
Sambíóin Kringlunni 17.00,
19.40, 22.20
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna