Morgunblaðið - 03.03.2018, Side 1
Óþekki Ólafsfirðingurinn
Atriðið
aðalmálið
Unnur A. Valdimarsdóttir sem í dag er ei
ódælt barn sem þurfti o kbóndak
4. MARS 2018SUNNUDAGUR
ósnortinnilausamjöll
Fannar Sveins-son bíðurspenntur eftirúrslitakvöldiSöngvakeppniSjónvarpsinsog segiratriðið í heildskipta mestumáli 2
Í
Fjölskyldanofsótt
Faðir, systir og mágur Hodu
Thabet, sem er íslenskur ríkis-
borgari, hafa sætt illri meðferð
árum saman í Jemen 16 Fjallaskíðamennskuvex fiskur um hrygg 18
L A U G A R D A G U R 3. M A R S 2 0 1 8
Stofnað 1913 53. tölublað 106. árgangur
STOFNAÐI
VEFMIÐIL FYRIR
UNGT FÓLK
SÝNIR LEÐUR-
BLÖKUNA
Í HÖRPU
NEMENDAÓPERA 55SÓLRÚN FREYJA 12
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Ég hef lagt áherslu á að það þurfi
að fjölga þyrluáhöfnum,“ sagði
Sigríður Á. Andersen dómsmála-
ráðherra. Eins og fram hefur kom-
ið er ein þyrluáhöfn tiltæk hjá
Landhelgisgæslunni (LHG) í um
45% tímans.
Sigríður sagði LHG áætla að
það að fjölga þyrluáhöfnum þannig
að ávallt væru tvær þyrlur til taks,
að manna varðskipin og mæta öðr-
um skyldum kostaði 1-1,5 milljarða
á ári til viðbótar við núverandi
fjárveitingar.
Þá hafa varnartengd verkefni
LHG aukist. Utanríkisráðuneytið
staðfesti að bandalagsþjóðir
NATO, sem sent hafa sveitir til
loftrýmisgæslu, hafa gert athuga-
semdir í næstum hvert einasta
sinn við að ekki sé alltaf hægt að
ábyrgjast hér fulla leitar- og
björgunargetu með tveimur þyrl-
um.
„Við þurfum að horfast í augu
við að þetta eru skyldur okkar í
því samstarfi sem við tökum þátt
í,“ sagði Sigríður. Fjármálaáætlun
og fjárlög gera ekki ráð fyrir
auknum framlögum til Gæslunnar
á þessu ári. Unnið er að nýrri fjár-
málaáætlun og undirbúningur fjár-
laga næsta árs er hafinn. Sigríður
kvaðst stefna að því að fjárframlög
til LHG yrðu aukin þegar á næsta
ári. Einnig þyrfti þess að sjá stað í
nýrri fjármálaáætlun.
Meira til LHG næsta ár
Loftrýmisgæsluþjóðir NATO hafa gert athugasemdir Fundið að því að ekki
sé hægt að tryggja hér alltaf fulla leitar- og björgunargetu með tveimur þyrlum
MAuka þarf fé … »19
Þyrlusveit LHG
» Landhelgisgæslan er með
fimm þyrluáhafnir. Fimm
manns eru í hverri áhöfn.
» Sjö áhafnir þarf til að full-
manna kerfið til að tvær þyrlur
séu alltaf til taks.
» Ekki er hægt að sinna björg-
unarverkefnum langt úti á hafi
nema með tveimur þyrlum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landhelgisgæslan Að undanförnu hefur aðeins ein áhöfn verið til taks á þyrlum Landhelgisgæslunnar. Ráðherra hyggst auka fjármagn til starfseminnar.
Logi Már Einarsson og Heiða Björg
Hilmisdóttir voru í gær endurkjörin
formaður og varaformaður Samfylk-
ingarinnar á landsfundi flokksins
sem stendur yfir um helgina. Þau
voru bæði ein í framboði.
Logi sagði í ræðu sinni að flokk-
urinn ætlaði sér góðan árangur í
komandi sveitarstjórnarkosningum
og að verða aftur burðarflokkur í ís-
lenskum stjórnmálum. Skaut hann á
ríkisstjórn Íslands og sagði henni
ókleift að efla félagslegan stöð-
ugleika.
Þá sagði Logi að á vakt Samfylk-
ingarinnar hefði Reykjavík breyst
úr umkomulitlum úthverfabæ í ið-
andi og nútímalega borg með þétt-
ingu byggðar að leiðarljósi. » 6
Logi end-
urkjörinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í ræðustól Logi Már Einarsson á
landsfundi Samfylkingarinnar.
Umboðsaðilar
Lindex á Íslandi,
þau Lóa Dag-
björt Kristjáns-
dóttir og Albert
Þór Magnússon,
segja að ef ný
„Smella og
sækja“-verslun
fyrirtækisins á
Laugavegi 7, falli
í kramið hjá við-
skiptavinum gæti verslunum fjölg-
að umtalsvert hér á landi, og nefna
allt að 10 nýjar verslanir með þessu
fyrirkomulagi. „Þetta mun gera
okkur kleift að horfa til annarra
bæja,“ segir Lóa. »22
Lindex-búðum
fjölgar mögulega
Smella sækja Ný
tegund verslunar.
Íslandsbanki hefur lækkað vexti
á um það bil 600 húsnæðislánum frá
árunum 2004-2010 þar sem skulda-
bréf lánanna innihalda sams konar
ákvæði um vaxtaendurskoðun og
fjallað var um í dómi Hæstaréttar í
október 2017. Endurgreiðslurnar
munu nema um 800 milljónum
króna.
Viðskiptavinir bankans sem eiga
rétt á endurgreiðslum frá Íslands-
banka munu á næstunni fá tilkynn-
ingu frá bankanum um inneign sína
og hvernig þeir geti nálgast hana.
Guðmundur Birgisson, forstöðu-
maður útlána á einstaklingssviði
hjá Íslandsbanka, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að bankinn
hefði áætlað, þegar dómur féll í
Hæstarétti í október í fyrra, að
kostnaður fyrir bankann gæti num-
ið allt að 800 milljónum króna.
agnes@mbl.is »6
Íslandsbanki lækkar vexti á 600 húsnæð-
islánum og endurgreiðir 800 milljónir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ættingjar Hodu Thabet hafa
horfið, verið handteknir, pyntaðir
og jafnvel dæmdir til dauða í Jem-
en. Hoda, sem er íslenskur ríkis-
borgari, segir ástæður ofsóknanna
trúarlegs eðlis. „Það er ekkert um-
burðarlyndi gagnvart bahá’íum
meðal valdamanna í Jemen, hvorki
meðal opinberra stjórnvalda né
hútanna sem fara mestmegnis með
völdin í Sanaa,“ segir hún í viðtali í
Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Frá því ofsóknirnar hófust árið
2008 hafa tugir þeirra verið hand-
teknir, m.a. faðir, systir og mágur
Hodu. Oft hefur hún óttast um líf
ástvina sinna og segist hafa haldið
niðri í sér andanum er þeir gerðu
lokatilraun til að flýja. „Við áttum
allt eins von á því að í næsta skipti
sem síminn hringdi væri verið að
segja okkur að einhver væri dáinn.
Við vorum óttaslegin hvern dag,
hverja mínútu hvers einasta dags.“
Fjölskylda íslenskrar konu ofsótt árum
saman í Jemen vegna trúar sinnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Örugg Hoda Thabet flutti til Íslands 2006.
Reykjavíkurborg mun fjárfesta í
innviðum og þjónustu borgarinnar
fyrir um 200 milljarða króna á
næstu fimm árum. Samkvæmt upp-
lýsingum Dags B. Eggertsson borg-
arstjóra er þar um að ræða fjárfest-
ingar borgarsjóðs en einnig fyrir-
tækja borgarinnar, eins og
Orkuveitu Reykjavíkur og Fé-
lagsbústaða.
Hann segir að þetta séu tvöfalt
meiri fjárfestingar en á síðustu
fimm árum. „Ég held að það megi
fullyrða að það komist ekkert í
hálfkvisti við þetta. Við erum á
mesta uppbyggingarskeiði borg-
arinnar,“ segir hann. »10
Borgin tvöfaldar
fjárfestingar