Morgunblaðið - 03.03.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 03.03.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018 www.spanareignir.is Einstakt tækifæri til að eignast fallegt heimili í sólinni Aðalheiður Karlsdóttir löggiltur fasteignasali adalheidur@spanareignir.is sími: 893 2495 – aðeins 20 mín frá Alicante flugvelli. GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ. Rúmgóð verönd. Stór og sólríkur lokaður garður með einkasundlaug. Stofa, borðstofa, gott eldhús. Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Yfirbyggt bílastæði inni á lokaðri lóð. Innbú getur fylgt eftir samkomulagi. Miðstýrt ofnakerfi. Ótal golfvellir á svæðinu. Stutt á strönd. LA MARINA Á SPÁNI Verð: Ikr. 38.400.000,- VIÐ HÖFUM SELT FASTEIGNIR Á SPÁNI SÍÐAN 2001. ÞÚ ERT Í ÖRUGGUM HÖNDUM HJÁ OKKUR. Landslagið á vinstri vængstjórnmálanna hefur löngum verið mun litríkara en á hægri vængnum. Flokkar hafa ítrekað sundrast og sameinast síðustu öldina eða svo og stofnað marg- vísleg kosningabandalög þess á milli.    Margskonar sellur, semstuddu ólíka kenningasmiði, harðstjóra eða fjölda- morðingja kommúnism- ans og sósíal- ismans, lifn- uðu og dóu á víxl þannig að engir nema rækilega innvígðir gátu greint frumuskiptin til hlítar.    Seinni árin hefur minna borið áþessum hreyfingum yst á vinstri væng stjórnmálanna, en svo spratt fram Alþýðufylkingin og fékk fylgi sem nam um það bil einni hefðbundinni sellu.    En þetta var ekki nóg, því aðfyrrverandi stórmógúll úr glannalegustu hliðum viðskipta- lífsins taldi fullreynt með kapítal- ismann og stofnaði eigin sellu.    Síðan fór sú sella í leiðangur tilað taka yfir verkalýðshreyf- inguna í landinu, væntanlega til að undirbúa byltinguna og breyta kröfugöngunum í afturgöngur.    Og þá gerist það að reynt erað kljúfa atómið með því að úthýsa meðlimum nýju sellunnar úr sellu Alþýðufylkingarinnar.    Allt er þetta ákaflega skemmti-legt krydd í tilveruna. En ætli þátttakendum þyki engum að fortíðarþráin hafi gengið full- langt? Afturgöngurnar STAKSTEINAR Veður víða um heim 2.3., kl. 18.00 Reykjavík 0 heiðskírt Bolungarvík -1 alskýjað Akureyri -2 snjókoma Nuuk 2 alskýjað Þórshöfn 2 alskýjað Ósló -4 heiðskírt Kaupmannahöfn -3 snjókoma Stokkhólmur -4 heiðskírt Helsinki -10 heiðskírt Lúxemborg -5 snjókoma Brussel -2 snjókoma Dublin 0 snjókoma Glasgow 1 alskýjað London -1 snjókoma París 8 skýjað Amsterdam -1 heiðskírt Hamborg -6 heiðskírt Berlín -4 heiðskírt Vín -5 snjókoma Moskva -10 heiðskírt Algarve 17 léttskýjað Madríd 5 rigning Barcelona 13 léttskýjað Mallorca 14 skýjað Róm 12 skýjað Aþena 15 skýjað Winnipeg -8 skýjað Montreal -1 alskýjað New York 2 þoka Chicago 2 skýjað Orlando 22 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 3. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:28 18:52 ÍSAFJÖRÐUR 8:38 18:52 SIGLUFJÖRÐUR 8:21 18:35 DJÚPIVOGUR 7:59 18:20 Nú líður að komu fyrsta skemmtiferðaskips árs- ins, Magellan, til Reykjavíkur. Áætlað er að skipið komi föstudaginn 9. mars og hafi sólarhrings við- dvöl í Sundahöfn. Hin eiginlega vertíð skemmtiferðaskipanna hefst ekki fyrr en 3. maí með komu Celebrity Eclipse sem er risaskip, 122 þúsund bróttótonn með tæplega 3.000 farþega. Magellan er 221 metra langt og 28 metra breitt skip, 40.052 tonn og er farþegarými skipsins fyrir 1.452 farþega. Í ár eru áætlaðar 168 skipakomur til Faxaflóa- hafna sf., með heildarrými fyrir 147.000 farþega. Til samanburðar komu 135 farþegaskip til Faxa- flóahafna á síðasta ári með alls 128.000 farþega. Mestu tíðindi sumarsins verður koma skemmti- ferðaskipsins MSC Meraviglia. Það er langstærsta skemmtiferðaskip sem komið hefur til Reykjavík- ur í brúttótonnum talið. Skipið er smíðað í Frakk- landi og var tekið í notkun árið 2017. MSC Mera- viglia er 171.598 brúttótonn og 315 metrar að lengd, með rými fyrir rúmlega 4.500 farþega og í áhöfn eru 1.540 manns. Káetur og svítur farþeg- anna eru á 14 hæðum. Skipið mun koma þrisvar, hingað, þ.e. 26. maí, 29. júní og 2. ágúst. sisi@mbl.is Fyrsta skipið er væntanlegt í næstu viku Morgunblaðið/Árni Sæberg Magellan Fyrsta skemmtiferðaskipið á þessu ári og er væntanlegt hingað í lok næstu viku.  Í sumar eru áætlaðar 168 komur skemmtiferðaskipa til Faxaflóahafna Lögreglan á höf- uðborgarsvæðinu hefur fengið eina tilkynningu vegna grun- samlegs manns sem stóð úti á götu og virtist vera að taka myndir af húsi. Þegar húsráðandi ætlaði að ná tali af manninum flýtti hann sér upp í bíl og brunaði í burtu. Fjallað var um málið í hópnum „Vesturbærinn“ á Facebook í byrjun vikunnar. Þar varaði málshefjandi við manninum sem virtist vera að grandskoða hús. Fleiri höfðu tekið eftir svipuðum mannaferðum fyrir utan heimili sín. Til að mynda greindi maður frá því að hann hefði tekið eftir svipuðum mannaferðum fyrir utan heima hjá sér í Kópavogi. „Við höfum fengið eina tilkynn- ingu út af þessu,“ segir Jóhann Karl Þórisson aðstoðaryfirlögregluþjónn við mbl.is. Hann sagði að lögregla gæti lítið aðhafst en hún þyrfti helst að fá fleiri tilkynningar og bílnúmer til þess. Jóhann segir að þessi til- kynning tengist ekki innbrotum í Hafnarfirði og Garðabæ. Tók mynd- ir af húsi  Grunsamlegar ferðir í Vesturbæ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.