Morgunblaðið - 03.03.2018, Síða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Ís-
lands, segist engan afslátt geta gefið
þegar ásakanir um alvarlegan trúnað-
arbrest, áreitni eða
ofbeldi í tengslum
við starf kirkjunnar
koma upp.
Þetta kemur
fram í yfirlýsingu,
sem biskup sendi
frá sér í gær vegna
gagnrýni úrskurð-
arnefndar á máls-
meðferð og niður-
stöðu í a.m.k. einu
af þeim fimm málum gegn séra Ólafi
Jóhannssyni sem bárust fagráði þjóð-
kirkjunnar um meðferð kynferðis-
brota.
Agnes segir afstöðu sína skýra, bisk-
up hljóti ávallt að taka ásakanir um
óviðeigandi háttsemi presta eða ann-
arra starfsmanna kirkjunnar alvar-
lega.
„Það er í mínum huga óhugsandi að
æðsti embættismaður kirkjunnar stígi
til hliðar og bregðist ekki við ef ein-
staklingur leitar til embættisins eftir
hjálp við leysa úr erfiðum og viðkvæm-
um málum.“ Samskipti presta við sókn-
arbörn og samstarfsfólk á vettvangi
kirkjunnar eigi að vera hafin yfir allan
vafa og þar verði að ríkja algjört traust.
„Ég vil standa vörð um rétt þeirra
sem telja á sér brotið í samskiptum á
kirkjulegum vettvangi og mun áfram
leggja mitt af mörkum við að brjóta
viðkvæm mál til mergjar.“
Biskup segir jafnframt að komi til
áfrýjunar í umræddu máli muni hún
leggja sig fram um að skýra aðkomu
sína og afstöðu fyrir áfrýjunarnefnd
þjóðkirkjunnar.
Skv. heimildum Morgunblaðsins rík-
ir óvissa um framhald a.m.k. eins af
þeim málum sem úrskurðarnefndin
fjallaði um, en úrskurðað var að séra
Ólafur væri sekur um siðferðisbrot.
Óvissan sé m.a. til komin vegna rangr-
ar málsmeðferðar fagráðs og biskups í
einu málanna, þar sem í rökstuðningi
biskups er vísað til vitneskju um fleiri
mál, sem grundvöll þeirrar ákvörðunar
sem hún tók um séra Ólaf.
Almennt gildir að ekki má refsa
tvisvar fyrir sama verknaðinn og því
gæti orðið lögfræðilegt viðfangsefni að
finna út hvort beita megi séra Ólaf úr-
ræðum vegna mála sem biskup hafði
vitneskju um og vísaði til í ákvörðun
sinni.
Óhugsandi að
stíga til hliðar
Málsmeðferðarreglur til trafala
Agnes M.
Sigurðardóttir
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga kl. 10–18, laugard. kl. 11–16 Allir velkomnir
Þórunn Bára Björnsdóttir
Boðskort
Sýningaropnun 3. mars kl. 14
Náttúruskynjun
Sýning í Gallerí Fold 3. - 17. mars
Flytjendur
Nemendaóperan
ásamt sinfóníusveit
Miðasala í Hörpu • sími 528 5050
songskolinn.is songskolinn@songskolinn.is sími 552 7366
Söngskólinn í Reykjavík
Johann Strauss
LEÐURBLAKAN
...ein vinsælasta óperetta allra tíma
Sýningar í Hörpu • Norðurljósum
mánudaginn 5. mars kl. 19.30
þriðjudaginn 6. mars kl. 19.30
Atvinna
ÚR BÆJARLÍFINU
Björn Björnsson
Sauðárkróki
Þessa dagana standa yfir veru-
legar endurbætur á Sundlaug Sauð-
árkróks sem lengi hefur þurft að bíða
gagngerðra endurbóta. Segja má að
oftast hafi það verið rætt í aðdrag-
anda hverra sveitarstjórnarkosninga
að ekki yrði lengur undan vikist að
gera nú þessari gömlu heilsurækt
verulega til góða, en svo sem oft vill
verða þóttu framkvæmdir dýrar og
annað meira aðkallandi.
Það er fyrirtækið K-tak, sem
annast framkvæmdina, gerður er nýr
inngangur, og allt sundlaugarhúsið
tekið í gegn, utan laugarkersins.
Breytingar eru gerðar á búnings-
klefum, sem nú verða allir á annarri
hæð ásamt afgreiðslu og vaktstofu.
Gott aðgengi fatlaðra verður að öllum
rýmum, skipt er um allar lagnir, gólf-
efni, hurðir og glugga, ásamt því að
komið verður fyrir lyftu sem alltaf
hefur vantað.
Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdum verði að mestu lokið fyrir
Landsmót á komandi sumri, en verk-
lok eru áætluð 15. ágúst nk. Heildar-
framkvæmdin, þ.e. sá áfangi sem nú
er í gangi og sá sem síðar verður ráð-
ist í framkvæmdir við, en það eru vað-
laugar rennibrautir og fleiri heitir
pottar, mun kosta um 600 milljónir.
Á fimmtudag landaði hið nýja og
glæsilega skip Fisk Seafood, Drang-
ey, um 120 tonna afla til landvinnslu
félagsins þar af þorskur og ufsi 105
tonn, en á mánudag landaði Málmey
rúmlega 200 tonnum, en mánudagur
og fimmtudagur eru hinir venju-
bundnu löndunardagar skipanna,
Þónokkrar framkvæmdir eru
fyrirhugaðar við höfnina, m.a. eru
væntanlegir menn frá Köfunarþjón-
ustunni einhvern næstu daga til að
gera við stálþil á aðalviðlegukanti
hafnarinnar sem hafa farið nokkuð
illa vegna tæringar, og einnig hafa
verið tekin botnsýni úr höfninni
vegna fyrirhugaðrar dýpkunar sem
vænst er til að farið geti fram í sumar
og verði lokið fyrir næsta vetur.
Að sögn hafnarvarðar er afkoma
hafnarinnar góð og voru tekjur henn-
ar 45-46 milljónir á sl. ári.
Hjá hinu gróna fyrirtæki
Steinull hf. sem nú hefur starfað á
fjórða áratug verða hinn 31. mars
þær breytingar að Einar Einarsson
framkvæmdastjóri lætur af störfum,
en hann hefur verið starfsmaður fyr-
irtækisins allt frá stofnun, en síðast-
liðin tæp 30 ár, frá hausti 1988, fram-
kvæmdastjóri. Við starfi Einars
tekur Stefán Logi Haraldsson. sem
verið hafur framkvæmdastjóri Límt-
rés Vírnets í Borgarnesi.
Afkoma fyrirtækisins hefur
verið mjög góð um árabil og fram-
leiðsla og sala síðastliðins árs á pari
við það sem var á árunum 2006-2007,
og verksmiðjan fór í gegnum hið
margumtalaða og fræga hrun án tap-
rekstrar. Afkoma síðasta árs var
einnig mjög góð þrátt fyrir tvær al-
varlegar bilanir í október sl. sem urðu
vegna sendingar á gölluðum raf-
skautum. Í fyrirtækinu er nú unnið á
þremur vöktum og eru starfsmenn
36.
Allmiklar framkvæmdir eru á
vegum sveitarfélagsins. Tekinn verð-
ur í notkun á vordögum nýr upphit-
aður gervigrasvöllur, en hann ásamt
endurbótum á sundlauginni, og mal-
bikun á bílastæðum og plönum við
íþróttahús og Árskóla mun gera
íþróttasvæði bæjarins glæsilegra en
áður. Þá eru áætlaðar allmiklar mal-
bikunarframkvæmdir bæði á Sauð-
árkróki og annars staðar í sveitarfé-
laginu.
Fullhönnuð verður viðbygging
við Grunnskólann austan vatna á
Hofsósi fyrir nýjan leikskóla og
byggður verður nýr körfuboltavöllur
við Varmahlíðarskóla ásamt því að
skipt verður um laugarkerfi í sund-
lauginni þar.
Auk malbikunar við íþrótta-
svæðið verða slíkar framkvæmdir á
verndarsvæði á höfninni og á nokkr-
um götum sem þurfa nú endurbóta
við.
Þá eru áætlaðar 80 milljónir í
endurbætur á „Gamla samlaginu“ við
Aðalgötuna en þar eru aðgerðir sem
miða að því að fegra og bæta útlit
hússins og forða því frá frekari
skemmdum.
Sveitarfélagið var með ágætlega
jákvæðan rekstur á sl. ári og gerði
fjármálastjóri ráð fyrir yfir 100 millj-
óna rekstrarafgangi, þannig að Skag-
firðingar láta sig engu skipta þó að sí-
fellt skipti veður um ham, með roki,
rigningu eða hríð, því að dag er tekið
að lengja verulega og vorið fram-
undan.
Sundlaugin endurbætt
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Sauðárkrókur Miklar endurbætur fara nú fram á Sundlaug Sauðárkróks.