Morgunblaðið - 05.04.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018
Nýjar vörur í hverri viku
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Lindon stretchbuxur
Margar týpur og litir
Stærðir 36-50
Verð frá 8.980
Tónlist er einnig í hávegum á há-
tíðinni, opinberir tónleikar verða í
Sjallanum og á Græna hattinum
Fjöldi tónlistarmanna kemur
fram á tónleikunum; Aron Can,
Emmsjé Gauti, JóiPé X Króli, Birn-
ir, Úlfur Úlfur, Flóni, KÁ-AKÁ,
GDRN, Young Karin, DJ SURA,
Yung Nigo Drippinmm svo ein-
hverjir séu nefndir. Þá verða tónlist-
armenn á ferð í nýrri verslun 66
Norður og á Akureyri Backpackers
á morgun, föstudag.
Akureyrarbæjar og Hollvina-
félag Húna II hafa samið til 2020.
Bærinn styrkir félagið vegna ýmissa
verkefna í þágu bæjarbúa og um leið
gerir samningurinn Húnamönnum
kleift að standa undir rekstri bátsins
og halda honum við.
Eitt af því sem framundan er hjá
Húnamönnum er þátttaka í til-
raunaverkefninu Að míga í saltan
sjó, í samvinnu við ungmennahúsið
Rósenborg. Það gengur út á að
bjóða ungmennum, sem hafa verið í
félagslegum vanda, að taka þátt í líf-
inu um borð og fræðast.
Morgunblaðið/Skapti
Gert klárt Undirbúningur var á fullu í gær efst í Gilinu þar sem hápunktur hátíðarinnar verður á laugardagskvöld.
Enn skal stokkið af stað
Snjóbretta- og tónlistarhátíðin AK Extreme um helgina
Hollvinir Húna II semja við bæinn og halda sínu striki
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Snilld Keppendur sýndu glæsileg til-
þrif í fyrra á brettum og vélsleðum.
Hér er Hákon Birkir Gunnarsson
sem vann stökkkeppni sleðamanna.
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
AK Extreme, árleg snjóbretta- og
tónlistarhátíð, hefur fest sig ræki-
lega í sessi á Akureyri og fer nú
fram enn einu sinni, í miðbænum og
Hlíðarfjalli.
Hátíðin hefst í dag kl. 18.30 með
fjallabruni á skíðasvæðinu í Hlíð-
arfjalli, þar sem einnig verður grill-
veisla fyrir þá sem gera sér ferð á
svæðið til að fylgjast með.
Annað kvöld verða brettamenn á
ferð efst í Gilinu og leika listir sínar,
á sama stað og gámastökkið verður
á laugardagskvöldið; hápunktur há-
tíðarinnar, þar sem mikill fjöldi fólks
hefur jafnan safnast saman til að
horfa á og hefur verið boðið upp á
mikil tilþrif. Að þessu sinni verða all-
ir bestu brettamenn Íslands meðal
keppenda, að sögn aðstandenda há-
tíðarinnar, ásamt erlendum hetjum.
Stéttarfélagið Framsýn boðar
aukna hörku í komandi kjaraviðræð-
um og málefnum lífeyrissjóða í
harðorðri ályktun sem félagið sendi
frá sér í gær: „Samtök atvinnurek-
enda óttast breytingarnar sem
framundan eru með nýju fólki í
brúnni hjá öflugustu stéttarfélögum
landsins. Það er vel, enda löngu
tímabært að íslenska verkalýðs-
hreyfingin hristi af sér doðann og
bíti hraustlega frá sér. Látum þá
skjálfa!“, segir í niðurlagi ályktunar
sem ber yfirskriftina; Um vorið í ís-
lenskri verkalýðshreyfingu.
Þar segir að með kjöri á nýrri for-
ystu í stærstu stéttarfélögum innan
ASÍ sé að verða til ný sýn á baráttu
verkafólks. ,,Þar er meðal annars
talað fyrir löngu tímabærum breyt-
ingum á lífeyrissjóðakerfinu.“ Lýsir
Framsýn sig reiðubúna að starfa
með nýju fólki að málefnum verka-
fólks og breytingum. Sameining og
gagnsæi lífeyrissjóða, reglur um há-
marks-stjórnarsetu innan þeirra,
ásamt siðferði í fjárfestingum lífeyr-
issjóða séu atriði sem m.a. hafi verið
félaginu hugleikin. Það sé t.a.m. sið-
laust að forstjóri olíufélags fái
greiddar bónusgreiðslur og hagnist
með því persónulega á að halda niðri
launum annarra starfsmanna, það
gerist í skjóli lífeyrissjóða sem eru í
eigu viðkomandi starfsmanna. „Það
verður ekki síst verkefni nýrrar
verkalýðshreyfingar að vinna á móti
siðleysi af þessu tagi og skera upp
lífeyrissjóðakerfið, þá með hags-
muni sjóðfélaga að leiðarljósi.“
Hreyfingin bíti
hraustlega frá sér
Boðar breytingar með nýju fólki í
brúnni og uppskurð lífeyrissjóðakerfis
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Unglingar í Garðaskóla í Garðabæ
hafa ekki farið í skólasund frá því á
haustönninni 2016 vegna viðgerða á
Ásgarðslaug.
Brynhildur Sigurðardóttir, skóla-
stjóri í Garðaskóla, segir að ekki
hafi verið möguleiki á að fara með
nemendurna annað. Í Garðaskóla
eru nemendur á unglingastigi frá 8.
til 10. bekkjar og er kennt eftir ein-
staklings stundarskrá. Brynhildur
segir að ef það hefði átt að koma
sundinu inn með akstri til og frá
hefðu unglingarnir þurft að vera í
skólanum langt fram eftir degi sem
hefði ekki gengið upp.
Skortur á sundkennslu brýtur
ekki í bága við aðalnámskrá grunn-
skóla. „Svo lengi sem við kennum
einhverjar íþróttir og svo lengi sem
við náum að útskrifa nemendur með
tíunda stig í sundi er þetta í lagi.
Það þarf ekki að liggja ákveðið
tímamagn á bak við þá áfanga sem
nemendur þurfa að klára í sundi
heldur snýst þetta um ákveðna
hæfni. Nemendur í 10. bekk taka
sundprófið um leið og Ásgarðslaug
verður opnuð nú í apríl. Við vitum
að langflestir unglinganna eru vel
syndir og ná prófinu en þeir sem
vantar eitthvað upp á hæfnina hjá fá
sundtíma fram að skólalokum í vor
og taka þá prófið.“
Í Garðaskóla og Flataskóla, sem
er fyrir 1. til 7. bekk, eru hátt í
1.000 nemendur samtals. Brynhild-
ur segir að það hafi verið hægara
sagt en gert að ætla að koma þeim í
aðrar sundlaugar eftir að Ásgarðs-
laug var lokað, það séu allar sund-
laugar í fullri notkun í skólasundi.
Sundkennsla hluta vetrar
Ólöf S. Sigurðardóttir, skólastjóri
Flataskóla, segir alla bekki þar, ut-
an 2. bekkjar, hafa verið í sundi í
vetur en ekki fengið eins mikla
sundkennslu og þau hefðu annars
fengið. „Annar bekkur fékk meiri
sundkennslu en hann átti að fá í
fyrra en ekkert núna í vetur, en þau
byrja svo þegar Ásgarðslaug verður
opnuð og verða út skólaárið. Fyrsti
bekkur er búinn að vera í sundi í all-
an vetur en aðrir árgangar hafa
fengið sundkennslu hluta vetrar.“
Ólöf segir að sundkennslunni hafi
verið bjargað í vetur með herkjum
en nemendurnir voru keyrðir í
Álftaneslaug og Sjálandslaug. Þó að
nemendurnir fái færri sundtíma en
ella er gætt að því að þau fái sína
íþróttatíma í hverri viku. „Ef sundið
dettur út eru kenndar aðrar íþrótt-
ir. Það fara t.d. allir bekkir í Bláfjöll
einu sinni yfir veturinn á skíði og
vorum við að ljúka síðustu skíða-
ferðinni núna,“ segir Ólöf.
Samkvæmt upplýsingum frá
Garðabæ á að opna Ásgarðslaug
formlega eftir breytingarnar sum-
ardaginn fyrsta.
Engin sundkennsla í vetur
Nemendur í Garðaskóla í Garðabæ hafa ekki fengið
sundkennslu í vetur vegna lokunar Ásgarðslaugar
Morgunblaðið/Ásdís
Skólasund Allir grunnskólanemendur eiga að fá sundkennslu hvern vetur.