Morgunblaðið - 24.04.2018, Side 1

Morgunblaðið - 24.04.2018, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 4. A P R Í L 2 0 1 8 Stofnað 1913  95. tölublað  106. árgangur  PÖDDULÍFIÐ KVIKNAÐI HRESSILEGA EINSTAKT ÓPERUHÚS HÓTELSTJÓRI Á HARÐAHLAUPUM Í VESTMANNAEYJUM MARGRAVIAL 41 MAGNÚS BRAGASON 12BIRKINU ÓGNAÐ 14 Ekki er tiltækt í landinu bóluefni gegn lifrarbólgu A og B eins og margir láta sprauta sig með fyrir ferðalög á framandi slóðir. Gagnvart þessu bera til dæmis nemendur framhaldsskóla sem eru á leiðinni í útskriftarferðir nokkurn kvíðboga og í raun eru fyrirhuguð ferðalög þeirra í uppnámi. Þetta segir Jara Birna Þorkelsdóttir, en hún er ein 190 nemenda við Menntaskólann í Reykjavík sem í lok júlí stefna til Mexíkó. Þeir sem þangað fara þurfa bóluefni við báðum fyrnefndum af- brigðum af lifrarbólgu svo og tauga- veiki. Að sögn Þórólfs Guðnasonar sótt- varnalæknis er skortur á bóluefni þekkt vandamál í seinni tíð eftir að lyfjaframleiðsla færðist á færri hendur. Framleiðendur og innflytj- endur lyfjanna skuldbinda sig til að eiga ákveðinn skammt af þeim til- tækan á hverjum tíma, en óviðráð- anlegar aðstæður geta alltaf breytt þeirri stöðu. „Það er ekki stórhætta ef fólk er að fara á staði þar sem hreinlæti er gott og aðbúnaður góður,“ segir Þór- ólfur um hvort viðsjárvert sé að fara til staða þar sem bólusetning þykir almennt nauðsynleg í aðdraganda ferða. Stundi fólk ekki háskalegt líf- erni og hugi að hreinlæti, drekki ekki kranavatnið og gæti að sér varðandi mat eigi flestu að vera óhætt, þó bólusetning sé til bóta. Bóluefni eru ekki tiltæk  Mótefni gegn lifrarbólgu og taugaveiki ekki til á landinu  Uggur meðal út- skriftarnema sem ætla í utanlandsferðir  Þekkt vandamál, segir sóttvarnalæknir M Bóluefnaskortur ... »6Bólusetning Allur er varinn góður. Morgunblaðið/Sigurður Jökull Níu létu lífið og sextán slösuðust þeg- ar karlmaður ók hvítum sendiferðabíl á gangandi vegfarendur í miðborg Toronto-borgar í Kanada í gærkvöldi. Sendiferðabílnum, sem hafði verið tekinn á leigu, var í kjölfarið ekið á brott en ökumaðurinn var handtekinn stuttu síðar. Atburðurinn átti sér stað á Yonge-stræti við hornið á Finch- breiðstræti. Ekki hafði verið staðfest að um ásetning hefði verið að ræða, þegar Morgunblaðið fór í prentun, en lýsingar sjónarvotta bentu eindregið til þess og það var einnig mat kan- adískra fjölmiðla. Forsætisráðherra Kanada, Justin Trudeau, ræddi atburðinn í kanad- íska þinginu þar sem hann sagði hug þingmanna hjá þeim sem orðið hefðu fyrir bifreiðinni, vinum þeirra og vandamönnum. Trudeau sagði ekki tímabært að segja meira um málið. „Hann ók mjög hratt,“ sagði Alex Shaker sem varð vitni að atburðinum. „Það eina sem ég sá var fólk sem var ekið niður, hvert af öðru. Það voru svo margir sem lágu á götunni.“ Maður sem ók fyrir aftan sendibílinn sagði hann hafa ekið á 60 til 70 km hraða á gangstéttinni. Árásir þar sem bifreiðum er ekið á gangandi vegfarendur hafa átt sér stað í ýmsum borgum á undanförnum árum, svo sem London, París og New York. Atvikið í Toronto gerist á sama tíma og fundur ráðherra öryggismála sjö helstu iðnríkja heimsins, Banda- ríkjanna, Japans, Bretlands, Þýska- lands, Frakklands, Ítalíu og Kanada, fer fram í borginni. Ekki er vitað hvort tengsl eru á milli atburðarins og fundarins. Þá verður fundur utan- ríkisráðherra sömu landa haldinn í Toronto um næstu helgi. Almannavarnaráðherra Kanada, Ralph Goodale, sagði engar upplýs- ingar hafa komið fram sem bentu til þess að hækka þyrfti hryðjuverkavið- vörunarstig í landinu, sem nú er miðl- ungs, sem þýðir að hryðjuverkaárás geti átt sér stað. thorgerdur@mbl.is 9 látnir og 16 slasaðir eftir að bíll ók á vegfarendur  Atvikið varð í miðborg Toronto í Kanada  Um ásetning virðist hafa verið að ræða AFP Árás Skömmu eftir atvikið mátti sjá lík þeirra látnu undir appelsínugulum dúkum á gangstéttinni. Sá grunaði er sagður hafa ekið bílnum á 60-70 km hraða.  Alls 25 teg- undir fugla á Ís- landi gætu lent á válista en nú er unnið að gerð staðbundins lista fyrir fugla í hættu á Íslandi, sem aftur bygg- ist á samantekt Birdlife sem er Alþjóðasamband fuglaverndarfélaga. Fuglategundir sem tengjast Ís- landi, það er varpfuglar og gestir, eru alls um 400. Af þeim er lundinn í bráðri hættu, enda er ætisskortur á slóðum hans við sunnanvert land- ið. Þá eru fýllinn og átján aðrar tegundir, svo sem fálki og haförn, í hættu. Á hinum alþjóðlega válista eru alls 1.469 fuglategundir, þar af 222 í bráðri hættu og þar á meðal eru lundi og snæugla. »18 Lundinn á alþjóð- legum válista yfir fugla í bráðri hættu Heimsfræga rokkhljómsveitin Guns N’ Roses er á leið til landsins og ætl- ar að halda risatónleika á Laug- ardalsvelli þann 24. júlí. Í tilkynningu segir að um stærstu tónleika sem haldnir hafa verið á Íslandi sé að ræða. Það eru skipuleggjendur Secret Solstice sem ætla að flytja hljóm- sveitina til landsins. Sviðið verður 65 metra breitt, en um það bil viku mun taka að undirbúa Laugardalsvöll fyr- ir tónleikana. Búnaður verður fluttur til landsins í 35 gámum, og með hljómsveitinni koma 150 manns til að sjá um uppsetningu. Guns Ń’ Roses var stofnuð í Los Angeles árið 1985 og er líklega ein allra stærsta hljómsveit rokksög- unnar og hefur hún selt yfir 100 millj- ón plötur á ferli sínum. Aðalmenn sveitarinnar, söngvarinn Axl Rose og gítarleikarinn Slash, hafa ekki alltaf átt skap saman en árið 2016 var til- kynnt að Slash hefði gengið aftur í sveitina. Síðan þá hefur hljómsveitin ferðast um heiminn og hefur verið uppselt á alla tónleika hennar. Tónleikarnir verða þeir síðustu í hljómleikaferð Guns N’ Roses um Evrópu í sumar. »4 Guns N’ Roses til Íslands Tónleikar Koma hljómsveitarinnar er stórviðburður í tónlistarlífinu.  Tónleikar á Laug- ardalsvelli 24. júlí

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.