Morgunblaðið - 24.04.2018, Blaðsíða 35
skíðakennara og fleiri upp í Kerling-
arfjöll en þá voru allar ár óbrúaðar.
Ég uppgötvaði eitt sinn ekki fyrr en
ég var mætt á staðinn að ég væri bara
á sandölunum og í pilsi meðan allir
aðrir voru í skíðagöllunum.“
Kristín fékk starf sem skrifstofu-
maður þegar Kjarvalsstaðir voru
opnaðir árið 1973 og starfaði þar í tíu
ár. Hún fór einnig sem fararstjóri
með eldri borgara til Spánar nokkur
haust. Kristín tók svo við starfi sem
forstöðumaður Félags- og þjónustu-
miðstöðvarinnar í Hvassaleiti 56-58
árið 1986, en það var fyrsta félags-
miðstöðin sem byggð var í samvinnu
við VR í Reykjavík. Þar starfaði hún í
sextán ár.
Kristín starfar í Soroptimista-
klúbbi Bakka og Selja og er í Svöl-
unum, sem er félagsskapur flug-
freyja. Hún var í fyrstu stjórn
Markarholts, hjúkrunarheimilis og
íbúða fyrir eldri borgara, og í stjórn
Hlíðar og Múlabæjar.
„Ég fer mikið í leikhús og á tón-
leika og lestur góðra bóka er mikið
áhugamál hjá mér. Svo spila ég brids
einu sinni í viku með góðum hópi vin-
kvenna. Ég nýt lífsins með fjölskyldu
og góðum vinum sem eru mér mikils
virði á þessum tímamótum. Við ætl-
um að vera í Gullmolanum okkar í
Húsafelli í tilefni dagsins.“
Fjölskylda
Kristín giftist 19.3. 1963 Valdimar
Örnólfssyni, f. 9.2. 1932, fyrrverandi
íþróttastjóra Háskóla Íslands. For-
eldrar hans voru hjónin Örnólfur
Valdimarsson, f. 5.1. 1893, d. 3.12.
1970, kaupmaður og útgerðarmaður,
og Ragnhildur Kristbjörg Þorvarðar-
dóttir, f. 24.2. 1905, d. 16.9. 1986,
kennari og húsmóðir. Þau bjuggu á
Suðureyri við Súgandafjörð til 1945
er þau fluttu til Reykjavíkur.
Synir Kristínar og Valdimars eru:
1) Jónas, f. 3.6. 1963, véla- og orku-
verkfræðingur í Kaupmannahöfn, var
kvæntur Elsebeth Aller og eru börn
þeirra Laura Kristín fréttamaður,
Dagmar, listnemi í Kaupmannahöfn,
og Valdimar Björn, nemi í mennta-
skóla; 2) Örnólfur, f. 4.11. 1964, bækl-
unarskurðlæknir, bús. í Garðabæ, var
kvæntur Sóleyju Þráinsdóttur tauga-
lækni og eru börn þeirra Hinrik Þrá-
inn verkfræðinemi, Kristín Valdís
verslunarskólanemi og Valdimar
Kári grunnskólanemi; 3) Kristján, f.
12.1. 1967, bæklunarskurðlæknir í
Bodö í Noregi, en kona hans er Car-
oline Saga Tun skurðlæknir og börn
þeirra Una Kristín, Edda Sofie og
Sturla grunnskólanemar.
Bróðir Kristínar er Kári Jónasson,
f. 11.2. 1940, fyrrverandi fréttamaður,
og kona hans er Ragnhildur Valdi-
marsdóttir skrifstofumaður frá Sel-
fossi.
Foreldrar Kristínar voru hjónin
Jónas Jósteinsson, f. 7.9. 1896, d. 4.3.
1989, yfirkennari í Reykjavík, og
Gréta Kristjánsdóttir, f. 22.1. 1901, d.
21.9. 1993, húsmóðir.
Úr frændgarði Kristínar Jónasdóttur
Kristín Jónasdóttir
Geirlaug Gunnarsdóttir
húsfreyja í Varmadal
Þorlákur Jónsson
bóndi í Varmadal á Kjalarnesi
Sigríður Þorláksdóttir
húsfreyja í Álfsnesi
Gréta Kristjánsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Kristján Þorkelsson
bóndi og hreppstjóri í Álfsnesi á Kjalarnesi
Birgitta Þorsteinsdóttir
húsfreyja í Helgadal
Þorkell Kristjánsson
bóndi í Helgadal í Mosfellssveit
Mínerva
ósteins-
dóttir
húsfr. í
Rvík
JBryndísJónasdóttir
hjúkrunarfr.
í Rvík
Mínerva
Haralds-
dóttir
tónlistar-
kennari í
Rvík
Guðrún
Eva
Mínervu-
dóttir rit-
höfundur
Svava
ósteinsdóttir
húsfreyja á
Akureyri
J
Jóhann
Konráðsson
söngvari á
Akureyri
Jóhann Már
Jóhannsson
söngvari og bóndi
Kristján Jóhannsson
óperusöngvari
Baldvin
Björnsson
ullsmiður í Rvíkg
Björn Th. Björnsson
listfr. og rithöfundur
Salvör
Kristjánsdóttir
húsfr. á Heiðarbæ
í Þingvallasveit
Björn Árnason
gullsmiður á
Ísafirði
ári Jónasson
fyrrverandi
fréttamaðurDaði Kárason
vélaverkfræðingur í Rvík
K
Þórunn Káradóttir
sjóntækjafræðingur í Rvík
Kristján Karl
Kristjánsson
prentari í Rvík
Kristján
Kristjánsson
hljómsveitarstjóri
KK sextettsins
Pétur
Kristjánsson
söngvari
Björg Jónsdóttir
húsfreyja á Grænhóli,
síðar í Kanada
Sigurgeir Sigurðsson
bóndi á Grænhóli á
Barðaströnd, síðar í
Kanada
Ingibjörg Sigurgeirsdóttir
húsfreyja áAkureyri
Jósteinn Jónasson
húsmaður og bóndi í Naustavík í Hegranesi
Steinunn Jónsdóttir
ráðskona í Hróarsdal
Gísli Jónasson
kólastjóri í Rvíks
Jónas Gíslason
guðfræðiprófessor og
vígslubiskup í Skálholti
Jónas Jónsson
bóndi, smáskammtalæknir
og ljósfaðir í Hróarsdal í
Hegranesi, Skag.
Jónas Jósteinsson
yfirkennari í Reykjavík
Flugfreyjan Kristín árið 1961.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2018
Sigursveinn Davíð Kristinssonfæddist 24. apríl 1911 áSyðsta-Mói í Fljótum í Skaga-
firði. Foreldrar hans voru hjónin
Kristinn Jónsson, f. 1878, d. 1967,
bóndi þar og k.h., Helga Sigurlaug
Grímsdóttir, f. 1875, d. 1957.
Sigursveinn var í námi í fiðluleik
hjá Theódóri Árnasyni 1936-1937 og í
Tónlistarskólanum í Reykjavík og
lauk þar prófi í tónsmíðum 1954. Sig-
ursveinn var í tónlistarnámi í Kaup-
mannahöfn 1950-1951 og í tónsmíði
og kórstjórn í Deutsche Hochschule
fur Musik í Berlín 1956-1957.
Sigursveinn var söngkennari í
barnaskólanum á Ólafsfirði 1948-
1949 og annaðist jafnframt músík-
kennslu fyrir barnaskólann á Siglu-
firði. Sigursveinn var skólastjóri
Tónskóla Sigursveins D. Kristins-
sonar í Reykjavík frá stofnun hans
árið 1964 til ársins 1985 og var einn af
stofnendum félags tónlistarskóla-
stjóra 1969 og var í fyrstu stjórn
þess.
Sigursveinn var söngstjóri karla-
kórsins Kátra pilta á Ólafsfirði 1944-
1950, stofnaði Samkór Verkalýðs- og
sjómannafélags Ólafsfjarðar 1948 og
stjórnaði honum til 1950. Sigursveinn
stofnaði Söngfélag verkalýðssamtak-
anna í Reykjavík í mars 1950 og
stjórnaði því til 1957 og var stjórn-
andi Söngfélags Siglufjarðar 1958-
1962. Hann lamaðist 1924 og beitti
sér fyrir stofnun fyrstu Sjálfsbjarg-
arfélaganna árið 1958 og var hann
varaformaður Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra, 1959-1982 og í
stjórn Öryrkjabandalagsins. Sig-
ursveinn var bæjarfulltrúi í Ólafsfirði
frá stofnun kaupstaðar 1944 til 1946.
Sigursveinn samdi sönglög fyrir
einsöng og kór, einnig stærri verk
fyrir orgel og hljómsveit, sum flutt af
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Kona
Sigursveins var Ólöf Grímea Þorláks-
dóttir, f. 26.9. 1895, d. 9.10. 1988, list-
málari. Sonur Sigursveins og Gerdu
Jacobi: Kristinn, f. 1957. Synir Ólaf-
ar: Kristinn, Eggert og Rögnvaldur.
Sigursveinn lést 2.5. 1990.
Merkir Íslendingar
Sigursveinn D. Kristinsson
85 ára
Birgir Ólafsson
Guðmundur Eggertsson
Halldóra Jafetsdóttir
Hörður Bergmann
Kristín Jónasdóttir
Sveinbjörn Tryggvason
Þórunn Böðvarsdóttir
80 ára
Dóra Egilson
Emil Wilhelmsson
Guðríður Karlsdóttir
Hanna G. Ingibergsdóttir
Þórhalla Haraldsdóttir
75 ára
Christa Hauksson
Jacob Jacobsen
Lúther Olgeirsson
Ólafur Kristinn Sigurðsson
Ólöf Kristín Magnúsdóttir
Phyllis Nduku Mureithi
Sigríður K. Sól Ólafsdóttir
70 ára
Aðalheiður Ingvarsdóttir
Ása Norðfjörð
Bára Björk Lárusdóttir
Guðmundur J. Jónsson
Hafsteinn Guðmundsson
Hanna Kristín Guðmundsd.
Hildur B. Guðlaugsdóttir
Hildur Ósk Leifsdóttir
Óli Viðar Thorstensen
Reynir Adamsson
Steinar Karlsson
60 ára
Ásgeir Kristjánsson
Ásgerður Ólöf Þórarinsd.
Ásta Sólrún Guðmundsd.
Bjarnfríður Hjartardóttir
Eggert Smári Eggertsson
Elín Ástríður Gunnarsdóttir
Guðfinna Gísladóttir
Hróbjartur Ágústsson
Ingibjörg M. Jóhannsdóttir
Íris Víglundsdóttir
Jón Sveinsson
Lilja Víglundsdóttir
Margrét H. Þorsteinsdóttir
Stefanía Erla Pétursdóttir
50 ára
Anna Lilja Marshall
Anne Mette Pedersen
Drífa Dröfn Geirsdóttir
Gísli Þór Magnússon
Guðrún Erla Jónsdóttir
Harpa Guðmundsdóttir
Júlíus Örn Arnarson
Kristinn Wium Tómasson
Loftur Steinar Loftsson
Róbert Sævar Magnússon
Sveinn Rúnar V. Pálsson
Unnar Kristinn Erlingsson
Þórarinn Finnbogason
40 ára
Atli Hafþórsson
Ágúst Gunnarsson
Eiður Örn Harðarson
Gunnar Þór Jóhannesson
Ívar Júlíusson
Lilja Rún Sigurðardóttir
Markéta Foley
Oddný Eva Böðvarsdóttir
Sigurvin Rúnar Leifsson
30 ára
Arnhildur Hálfdánardóttir
Ásgeir Bjarnason
Dennis Lindkvist Pedersen
Jenny Katarína Pétursdóttir
Kristín Jónsdóttir
Margrét Kjartansdóttir
Páll Elvar Pálsson
Sandra Sæbjörnsdóttir
Sara Guðrún Þorkelsdóttir
Sigríður Björk Bragadóttir
Steinunn Birgisdóttir
Telma Huld Ragnarsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Eiður er frá Sel-
fossi en býr á Hvolsvelli.
Hann vinnur hjá bygg-
ingadeild Landstólpa.
Maki: Anna Rún Einars-
dóttir, f. 1984, sjúkraliði
og íþróttakennari.
Börn: Arnþór Elí, f. 2006,
Eyþór Orri, f. 2010, og
Ævar Þór, f. 2017.
Foreldrar: Hörður Hans-
son, f. 1942, rútubílstjóri,
og Svanlaug Eiríksdóttir,
f. 1950, vann hjá HSU.
Þau eru bús. á Selfossi.
Eiður Örn
Harðarson
30 ára Páll fæddist í
Gautaborg en býr í Kópa-
vogi. Hann er viðskipta-
fræðingur og sér um
sölu- og markaðsmál hjá
Eimverk Distillery.
Systkini: Sandra Dögg, f.
1978, og Eva María, f.
1983.
Foreldrar: Páll Breiðfjörð
Pálsson, f. 1958, hita-
veitustjóri á Egilsstöðum,
og Agnes Huld Hrafns-
dóttir, f. 1961, sálfræð-
ingur.
Páll Elvar
Pálsson
30 ára Telma býr í Kópa-
vogi og er læknir á LSH.
Maki: Kristinn Jakobsson,
f. 1981, verkefnastjóri hjá
Markmar.
Börn: Katla Rakel, 2016,
Kári Týr, f. 2017. Stjúpbörn:
Kristjana Lind, f. 2003,
Kristinn Þór, f. 2007, og
Katrín Emma, f. 2012.
Foreldrar: Ragnar Jóns-
son, f. 1966, og Elín Lára
Jónsdóttir, f. 1966. Fóstur-
faðir: Snorri Páll Einarsson,
f. 1968.
Telma Huld
Ragnarsdóttir
Við útvegum hæfa starfskrafta
í flestar greinar atvinnulífsins
Markmið okkar er að spara viðskiptavinum
tíma, fyrirhöfn og fjármuni.
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK
Handafl er traust
og fagleg
starfsmannaveita
með margra ára
reynslu á markaði þar
sem við þjónustum
jafnt stór sem smá
fyrirtæki.
Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk. | SÍMI 419 9000 | info@handafl.is | handafl.is