Morgunblaðið - 24.04.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.04.2018, Blaðsíða 34
Ég er að trappamig niður ívinnunni, það er ágætt að gera það þann- ig í stað þess að hætta al- veg einn daginn því ég hef ennþá gaman af því að vinna,“ segir Reynir Adamsson arkitekt sem á 70 ára afmæli í dag. „Ég seldi teiknistofu og íbúðarhús við Laugaveg í fyrra og við hjónin fluttum í Lund í Kópa- vogi. Ég get því farið að ráða meira tímanum mínum og hvað ég tek mér fyrir hendur.“ Reynir hefur verið að ljúka ýmsum verkefnum eins og hönnun nýs hót- els í Reykjavík en er núna aðallega að sinna minni verkum eins og að hanna íbúðarhús og sumarbústaði. „Ég vil ekki binda mig núna við verkefni sem geta tekið mörg ár.“ Reynir var einnig fararstjóri fyrir þýska ferðamenn á Íslandi og ís- lenska ferðamenn í Þýskalandi. „Það eru nokkur ár síðan ég fór síðustu ferðina sem leiðsögumaður. Ég lærði arkitektúr í München og vann þar í þrjú ár eftir námið. Veran úti mótaði mann mikið en ég fór þangað beint eftir stúdentspróf í MA og er alinn upp á Akureyri. Ég hef alltaf haft mjög gaman af því að ferðast, hef ferðast mikið um fjöll og firnindi á Íslandi og mikið farið til útlanda. Svo eigum við hjónin lítið gamalt hús í Hrunamannahreppi þar sem mér finnst gott að vera, en ég er líka smiður og hef gaman af því að smíða og gera upp gömul hús og byggja ný. Í tilefni dagsins má segja að ég verði í faðmi konunnar því öll börnin eru í útlöndum en það stendur til að ná þeim saman þegar haustar og halda veislu.“ Eiginkona Reynis er Margrét Magnúsdóttir, hjúkrunar- og geisla- fræðingur, og vann hún lengi hjá Krabbameinsfélaginu. Börn hennar og fósturbörn Reynis eru Magnús Már, málari í Noregi, og Dóróthea Huld, verslunarmaður í Reykjavík, og saman eiga þau hjónin Sunnu, kennara í Noregi. Hjónin Reynir og Margrét á ferð í Toskana á Ítalíu fyrir nokkrum árum. Minnkar smám sam- an við sig vinnuna Reynir Adamsson er sjötugur í dag 34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2018 K ristín Jónasdóttir fædd- ist 24. apríl 1933 í Reykjavík Hún átti heima fyrstu árin á Egilsgötu 30, en síðan flutti hún í Mávahlíð 8. „Ég fór í Sundhöllina á hverjum degi og man vel í stríðinu hvað hermennirnir voru góðir og elskulegir. Þegar var snjór þá vildu þeir keyra mann heim á sleð- anum úr sundinu og svo gáfu þeir mér svo mikið súkkulaði að móðir mín var farin að hafa áhyggjur.“ Kristín lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar og fór síðan í Samvinnuskólann í Reykjavík og útskrifaðist árið 1951. Hún var í Húsmæðra- og uppeldisskóla í Silki- borg í Danmörku 1955 og fór til Mad- rid í spænskunám veturinn 1962. Kristín vann í bókhaldsdeild SÍS í fimm ár en fékk starf hjá Loftleiðum sem flugfreyja 1957 og starfaði þar til ársins 1963. „Ég varð að hætta þá vegna þess að ég gifti mig, en flug- freyjur máttu ekki vera giftar í þá daga. Ég var heimavinnandi hús- móðir í 10 ár og gætti bús og barna. Ég tók líka þátt í starfinu í Kerlingar- fjöllum, pantaði vörur og keyrði Kristín Jónasdóttir, fv. flugfreyja og forstöðumaður – 85 ára Fjölskyldan Kristín og Valdimar ásamt sonum og barnabörnum heima í Bláskógum árið 2016. Mátti ekki vera flug- freyja eftir giftingu Hjónin Á skíðum í Madonna di Campiglio á Ítalíu fyrir tíu árum. Kópavogur Kári Týr Kristinsson fæddist 27. desember 2017. Hann vó 4.150 g og var 55 cm langur. For- eldrar Kára eru Kristinn Jakobsson og Telma Huld Ragnars- dóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. SMÁRALIND www.skornirthinir.is Kíktu á verðið Tilboðsverð 7 .995 -41ær r Scandi inniskór Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.