Morgunblaðið - 24.04.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 24.04.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2018 Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is Úrval af íslenskri hönnun Unicorn hálsmen frá 5.400,- SEB köttur - gylltur frá 18.600,- Alda hálsmen frá 9.600,- Birki armbands spöng frá 24.900,- Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Frá áramótum hefur verið lokið við gerð alls 20 nýrra kjarasamninga, sem samþykktir hafa verið í at- kvæðagreiðslum félagsmanna sem þeir ná til. Þetta má lesa út úr yfirliti embættis Ríkissáttasemjara. Nýgerður kjarasamningur Félags framhaldsskólakennara og Samn- inganefndar ríkisins, sem skrifað var undir sl. laugardagskvöld er sá 21. í röðinni en eftir er að bera hann undir atkvæði, sem á að vera lokið 11. maí. Langflestir þessara samninga eru því marki brenndir að gilda aðeins í stuttan tíma eða til 31. mars á næsta ári og kveða þ.a.l. á um minni launa- hækkanir en samið var um í kjara- viðræðum á umliðnum árum. Af þeim sautján aðildarfélögum BHM sem voru með lausa samninga við ríkið frá 1. september sl. þegar gerðardómur rann út er enn ósamið við tvö þeirra en það eru Félag ís- lenskra hljómlistarmanna og Ljós- mæðrafélag Íslands. Næsti sátta- fundur í kjaradeilu ljósmæðra og ríkisins er boðaður á fimmtudag. Svipaðar hækkanir Kjarasamningar BHM-félaganna sem liggja fyrir gilda allir afturvirkt frá 1. september 2017 til 31. mars 2019 og kveða á um sambærilegar launahækkanir á þeim mánuðum sem samningarnir ná yfir. Kennarasamningurinn er einnig sagður vera í samræmi við launalið þessara kjarasamninga, sem stéttar- félög opinberra starfsmanna hafa skrifað undir síðustu mánuði. Samningur sem grunnskólakenn- arar felldu í atkvæðagreiðslu á dög- unum átti einnig að gilda til 31. mars 2019. Talið er ólíklegt að kjaravið- ræður grunnskólakennara og Sam- bands íslenskra sveitarfélaga komist á skrið á nýjan leik fyrr en eftir að ný viðræðunefnd Félags grunnskóla- kennara hefur tekið formlega við um- boðinu á aðalfundi félagsins 18. maí. Auk opinberu félaganna hafa náðst fjórir kjarasamningar frá áramótum vegna flugmanna og flugvirkja og einn samningur var gerður vegna starfsmanna við fiskimjölsverk- smiðju í Helguvík. Gildistími samn- inganna í fluginu er lengri en hjá op- inberu starfsmönnunum. Félag íslenskra atvinnuflugmanna og Ice- landair sömdu til ársloka 2019 og sami gildistími er í kjarasamningum Flugvirkjafélagsins við Flugfélag Ís- lands og Atlanta. Samningur flug- virkja við WOWAir gildir aftur á móti til ársloka 2020. Örfáir samningar á vinnumarkað- inum verða lausir á komandi mánuð- um en um næstu áramót losnar um stóran pakka kjarasamninga á al- menna vinnumarkaðinum, milli aðild- arfélaga ASÍ og atvinnurekenda og auk þess nokkrir samningar BSRB- félaga, samningar Blaðamanna- félagsins o.fl. Alls renna út um 80 kjarasamningar um áramótin. Í kjölfarið, aðeins þremur mánuð- um síðar, renna út nær tvöfalt fleiri kjarasamningar meirihluta opinberu félaganna. Samtals munu þá losna um 150 kjarasamningar, samkvæmt yfirliti Ríkissáttasemjara. Gera má ráð fyrir að ASÍ félögin muni leggja upp hinar stóru línur í kjarasamningum í upphafi næsta árs og félögin sem þurfa að endurnýja samningana í mars ætli að meta stöðu sína og kröfur í framhaldi af því. Samningarnir sem gerðir hafa verið til skamms tíma að undanförnu, ekki síst að ósk ríkisins, eru því nokk- urs konar fleytisamningar fram yfir viðræðurnar á almenna vinnumark- aðinum. Mikil aðsókn á námstefnu um gerð kjarasamninga Samningafólk stéttarfélaga og at- vinnurekenda mun augljóslega hafa í nógu að snúast á næstu mánuðum við undirbúninginn. Ríkissáttasemjari býður öllum sem sæti eiga í samn- inganefndum bæði launþega og launagreiðenda til námstefnu í samn- ingagerð í næstu viku, 2.-4. maí á Bif- röst og er aðsóknin mikil, skv. upp- lýsingum embættisins. Önnur námstefna verður svo haldin í októ- ber og er þegar fullbókað á hana. 20 kjarasamningar gerðir frá áramótum  Um 230 samningar losna á næstu átta til ellefu mánuðum Vinna Semja þarf fyrir nær allan vinnumarkaðinn áður en ár er liðið. Morgunblaðið/Eggert Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Í fréttum um þrengsli og álag á Landspítalanum (LSH) á dögunum vegna mikils ferðamannafjölda kom fram í máli forstjórans, Páls Matt- híassonar, á Vísi.is, að endurtekið hafi tryggingafélög erlendis verið treg við að flytja sjúklingana á sjúkrastofnanir erlendis, enda sé þjónusta LSH gjarnan ódýrari. Morgunblaðið sendi fyrirspurn á skrifstofu forstjórans um hverju það sætti, hvaðan ferðamennirnir sem nýta þjónustu spítalans væru og hversvegna. Í svörunum kemur fram að í skýrslu Mckinsey frá 2016, sem birt sé á vef stjórnarráðsins, sé vand- lega farið yfir rekstur LSH og gerður samanburður við sambærileg sjúkra- hús og rekstur spítalans sé mjög hag- kvæmur í samanburði. Ferðamenn spara á LSH Þegar komi að meðferð ósjúkra- tryggðra gildi gjaldskrá velferðar- ráðuneytisins. LSH eins og aðrar heilbrigðisstofnanir fylgi þeirri gjald- skrá sem taki mið af beinum kostnaði við veittar meðferðir, en heimili 10% álag á þær fjárhæðir. Þrátt fyrir það álag sé meðferð á LSH gjarnan mun ódýrari en annars staðar. LSH hafi ítrekað óskað eftir að álagið verði hækkað, enda endurspegli það ekki kostnað sem falli til við umsýslu þess- ara sjúklinga og aðstandenda þeirra. Gjaldskrá fyrir heilbrigðisþjón- ustu/spítalavist erlendra ferðamanna fari eftir ákvæðum í reglugerð sem velferðarráðherra setur um heil- brigðisþjónustu við ósjúkratryggða og greiðslur fyrir heilbrigðisþjón- ustu. Hún taki til allra sem eru ósjúkratryggðir, ekki eingöngu er- lendra ferðamanna. Þegar um inn- lögn sé að ræða skuli greiða meðaltal DRG-kostnaðar eins og það sé reikn- að af Landspítala, enn fremur að fyr- ir komur á dag-, göngu- og bráða- deildir skuli innheimta tiltekin gjöld, sem byggjast á raunkostnaði við þjónustuna. Spítalinn fái greiddan kostnað við veitta þjónustu til erlendra ferða- manna og LSH innheimti fullt gjald hjá sjúklingunum sjálfum. Framvísi þeir greiðsluskuldbindingu frá tryggingafélagi sínu séu reikning- arnir stílaðir á tryggingafélagið, sem greiði reikninginn beint til spítalans. Hluti krafna innheimtist ekki Framvísi sjúklingar evrópsku sjúkratryggingarskírteini og um bráðatilvik sé að ræða greiði Sjúkra- tryggingar Íslands reikninginn fyrir leguna. SÍ fái endurgreitt frá sjúkra- tryggingum viðkomandi landa. Árlega sé þó afskrifaður hluti krafna sem ekki innheimtist en það sé ekki eingöngu bundið við ósjúkra- tryggða sjúklinga. Fjölmennustu ríkisföng ferða- manna sem fengu þjónustu á LSH árið 2017 voru Bandaríkin, Bretland, Þýskaland, Danmörk, Kína, Kanada, Spánn, Ástralía, Svíþjóð og Noregur. Tæplega 3000 einstaklingar með samtals yfir 100 ríkisföng fengu þjón- ustu, sumir oftar en einu sinni. Tveir þriðju ofangreindra einstaklinga höfðu skráða ástæðu við komu/inn- lögn, sjúkdóm eða skylt ástand ótengt áverkum og hjá einum þriðja voru slys/áverkar skráðir sem ástæða við komu eða innlögn. Morgunblaðið/Ómar Landspítalinn við Hringbraut Þjónusta heilbrigðisstofnana á Íslandi er er- lendum ferðamönnum og tryggingafélögum þeirra erlendis hagstæð. Álag á gjaldskrá LSH of lágt  Endurspeglar ekki kostnað spítalans vegna þjónustu við erlenda ferðamenn Lyfjastofnun framkvæmdi í síðustu viku úttekt á geislavirku lyfi, sem gefa þarf þeim sjúklingum sem fara í jáeindaskannann. Þetta staðfesti Bogi Brimir Árnason, heilbrigðis- verkfræðingur á röntgendeild Landspítala, í samtali við mbl.is Öllum undirbúningi við skannann er nú lokið og leyfi Lyfjastofnunar vegna lyfsins er það eina sem stendur eftir, en lyfið er svo skammlíft að framleiðsla þess fer fram á spítalanum. Bogi sagði ströngum stöðlum fylgt við framleiðsluna líkt og ann- ars staðar, en að hans sögn er mis- jafnt í öðrum löndum hvort lyfið er framleitt á spítala eða annars stað- ar. Hann kvaðst líkt og áður gera ráð fyrir að afstaða Lyfjastofnunar til framleiðslunnar lægi fyrir innan mánaðar frá úttektinnni. Heildarkostnaður verkefnisins er 1.038 milljónir og stærsti hlutinn er gjöf Íslenskrar erfðagreiningar til íslensku þjóðarinnar, en hlutur spít- alans er 188 milljónir króna. Lyfjastofnun gerði úttekt vegna jáeindaskannans Morgunblaðið/Eggert Jáendaskanni Nú er beðið niður- stöðu úttektar Lyfjastofnunar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.